Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022 Hvað segja bændur nú? – Reynslusaga úr sveitinni Árið 2017 festi undirritaður kaup á Multiore 6313 liðléttingi sem nota skyldi við hefðbundin störf, tað- m o k s t u r , heygjöf og fleira, með aðsetur í hlöðunni sem á seinni stigum málsins þótti vélinni ekki bjóðandi, sökum breytilegs hita og rakastigs. Þó er þarna Bruvik 62 cm 5 hraða vifta sem sogar út allan raka á skammri stund, ef einhver er. Fljótlega fór að bera á ýmsum krankleikum í tækinu, taðgreip veikbyggð og þurfti að endurhanna og bæta, suður gáfu sig við tjakkstangir (suðurnar ófullnægjandi), soðnar með bændavír. Til dæmis er 46,16 stál 37. Þetta var nú lagað heima fyrir þar sem karlinn á bænum er eld-, ketil- og plötusmiður. Nú hrönnuðust upp óveðursský. Eftir aðeins 303 vinnustunda brúk tærðist í sundur smurrör, olía sprautaðist af vélinni. Smurljós virkaði ekki (sannað mál með rannsókn), vélin í steik – úrbrædd. Nú voru góð ráð dýr. Með seljanda í ráðum var farið í að útvega nýja vél! Ný og ekki ný? Heim var haldið með tækið í kjölfarið. Kom svo harðsoðinn reikningur fyrir nánast öllu tjóninu – „goodwill“ þetta eða hitt er marklaus þvæla. Hvað skal nú til bragðs taka? Átti að kyngja bitanum og borga brúsann eða leita réttlætis? Hvar væri það svo sem að finna? Seljandi stefndi kaupanda og fyrir Héraðsdóm Norðurlands vestra skyldi haldið. Dómskvaddur matsmaður gerði á mjög faglegan og skilyrtan hátt grein fyrir því að bilunin í vél tækisins stafaði af verulegum tvenns konar göllum. Efnisgæði smurrörs sem tærðist í sundur var langt fyrir neðan allar gæðakröfur. Svona bilunar væri vart að vænta í vél, hugsanlega eftir 15 ár eða jafnvel aldrei á líftíma vélarinnar. Hvað þá eftir 303 vinnustundir. Það kom einnig fram í matsgerðinni á tæknilegan útskýrðan hátt að smurljós virkaði ekki. Seljandi kom ásamt sínum undirsáta með mjög svo mærðarlega lýsingu á því hvað þeir hefðu teygt sig út fyrir ystu sjónarrönd með því markmiði að minnka skaða kaupanda. Ja hérna, öllu má nú nafn gefa, miskunnsami samverjinn fellur gjörsamlega í skuggann fyrir slíkri ljúfmennsku. Þarna urðu kaflaskil. „Hæstvirtir“ gráðum prýddir langskólagengnir dómarar með áratuga reynslu viknuðu og misstu gjörsamlega sjónar af hálli braut réttlætis við að greina kjarnann frá hisminu. Í stefnu var kaupanda gert að svara til saka og síðan dæmdur sekur á þeim forsendum að ekki hafi verið sýnt fram á að orð, af vilyrði sem höfð voru uppi, hafi aldrei verið sögð. Orð skulu standa var ekki í heiðri haft í dómsal. Það þarf ekki langa setu til að komast að því að orð gegn orði verða vart sönnuð, enda snerist málið ekki um það. Dómsmálið snerist um fyllilega sannaðan meingalla á vélinni, sem leiddi til eyðileggingar hennar, og bótaskyldu seljanda og/eða framleiðanda. Ekki flókið – alveg borðliggjandi. Það var ömurleg upplifun fyrir vinnandi mann að skynja þann drunga, eða var þetta kulnun, sem ríkti þarna í dómsal Héraðsdóms Norðurlands vestra. Hugmyndafræðileg eyðimörk: það er gangverk lýsing eftir reynsluna af fyrirbærinu. Illur fengur illa forgengur. Ef til vill koma þessir aurar seljanda til góða í rekstri sínum, hver veit. Tilvitnun í lokaorð dóms. „Raunar er það álit dómsins að fjárhæð sem stefnandi krefur stefnda um vegna vinnu sé augljóslega lægri en vænta má fyrir það verk sem unnið var.“ Hvað skyldi dómurinn vita um það? Nákvæmlega ekkert frekar en stefndi, þar sem reikningur frá stefnanda var ekkert sundurliðaður. Svavar Hákon Jóhannsson bóndi. Svavar Hákon Jóhannsson. KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is ALLAR STÆRÐIR AF CAT RAFSTÖÐVUM Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika. Stöðvar í gám Víkurhvarf 5 Vagnar og stálgrindahús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 9,0m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 S K E S S U H O R N 2 01 2 Ögurhva fi 8 133 haukur@hhauk son.is 7-18 tonn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.