Bændablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
Hvað segja bændur nú?
– Reynslusaga úr sveitinni
Árið 2017 festi
undirritaður
kaup á Multiore
6313 liðléttingi
sem nota skyldi
við hefðbundin
störf, tað-
m o k s t u r ,
heygjöf og
fleira, með
aðsetur í
hlöðunni sem á seinni stigum
málsins þótti vélinni ekki
bjóðandi, sökum breytilegs hita
og rakastigs.
Þó er þarna Bruvik 62 cm 5
hraða vifta sem sogar út allan raka
á skammri stund, ef einhver er.
Fljótlega fór að bera á
ýmsum krankleikum í tækinu,
taðgreip veikbyggð og þurfti að
endurhanna og bæta, suður gáfu
sig við tjakkstangir (suðurnar
ófullnægjandi), soðnar með
bændavír. Til dæmis er 46,16
stál 37. Þetta var nú lagað heima
fyrir þar sem karlinn á bænum er
eld-, ketil- og plötusmiður. Nú
hrönnuðust upp óveðursský. Eftir
aðeins 303 vinnustunda brúk tærðist
í sundur smurrör, olía sprautaðist
af vélinni. Smurljós virkaði ekki
(sannað mál með rannsókn), vélin
í steik – úrbrædd. Nú voru góð ráð
dýr. Með seljanda í ráðum var farið
í að útvega nýja vél! Ný og ekki
ný? Heim var haldið með tækið
í kjölfarið. Kom svo harðsoðinn
reikningur fyrir nánast öllu tjóninu
– „goodwill“ þetta eða hitt er
marklaus þvæla.
Hvað skal nú til bragðs taka? Átti
að kyngja bitanum og borga brúsann
eða leita réttlætis? Hvar væri það
svo sem að finna?
Seljandi stefndi kaupanda og
fyrir Héraðsdóm Norðurlands
vestra skyldi haldið. Dómskvaddur
matsmaður gerði á mjög faglegan
og skilyrtan hátt grein fyrir því
að bilunin í vél tækisins stafaði af
verulegum tvenns konar göllum.
Efnisgæði smurrörs sem tærðist í
sundur var langt fyrir neðan allar
gæðakröfur. Svona bilunar væri
vart að vænta í vél, hugsanlega
eftir 15 ár eða jafnvel aldrei á
líftíma vélarinnar. Hvað þá eftir
303 vinnustundir. Það kom einnig
fram í matsgerðinni á tæknilegan
útskýrðan hátt að smurljós virkaði
ekki.
Seljandi kom ásamt sínum
undirsáta með mjög svo mærðarlega
lýsingu á því hvað þeir hefðu teygt
sig út fyrir ystu sjónarrönd með
því markmiði að minnka skaða
kaupanda. Ja hérna, öllu má nú
nafn gefa, miskunnsami samverjinn
fellur gjörsamlega í skuggann fyrir
slíkri ljúfmennsku.
Þarna urðu kaflaskil.
„Hæstvirtir“ gráðum prýddir
langskólagengnir dómarar með
áratuga reynslu viknuðu og misstu
gjörsamlega sjónar af hálli braut
réttlætis við að greina kjarnann frá
hisminu. Í stefnu var kaupanda gert
að svara til saka og síðan dæmdur
sekur á þeim forsendum að ekki
hafi verið sýnt fram á að orð, af
vilyrði sem höfð voru uppi, hafi
aldrei verið sögð. Orð skulu standa
var ekki í heiðri haft í dómsal.
Það þarf ekki langa setu til að
komast að því að orð gegn orði
verða vart sönnuð, enda snerist
málið ekki um það. Dómsmálið
snerist um fyllilega sannaðan
meingalla á vélinni, sem leiddi
til eyðileggingar hennar, og
bótaskyldu seljanda og/eða
framleiðanda. Ekki flókið – alveg
borðliggjandi. Það var ömurleg
upplifun fyrir vinnandi mann að
skynja þann drunga, eða var þetta
kulnun, sem ríkti þarna í dómsal
Héraðsdóms Norðurlands vestra.
Hugmyndafræðileg eyðimörk: það
er gangverk lýsing eftir reynsluna
af fyrirbærinu. Illur fengur illa
forgengur. Ef til vill koma þessir
aurar seljanda til góða í rekstri
sínum, hver veit.
Tilvitnun í lokaorð dóms.
„Raunar er það álit dómsins að
fjárhæð sem stefnandi krefur
stefnda um vegna vinnu sé
augljóslega lægri en vænta má fyrir
það verk sem unnið var.“
Hvað skyldi dómurinn vita um
það? Nákvæmlega ekkert frekar
en stefndi, þar sem reikningur frá
stefnanda var ekkert sundurliðaður.
Svavar Hákon Jóhannsson
bóndi.
Svavar Hákon
Jóhannsson.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrindahús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 9,0m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
2
Ögurhva fi 8 133
haukur@hhauk son.is
7-18 tonn