Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
LÍF&STARF
Rúningsdrottningar:
Lifa í ástríðunni
– Íslenska sauðkindin kann að sparka
Heimsmethafarnir Marie Pepple frá Bretlandi og Pauline Bolay frá
Kanada eru hér á landi til að lenda í rúningsævintýrum. Tilgangurinn
hér er ekki að slá met, heldur að hafa gaman og takast á við íslensku
sauðkindina – sem er alls ekkert lamb að leika sér við.
Svo bar við í lok ágústmánaðar
síðastliðinn að breskur sauðfjár-
bóndi, Marie Pepple, setti heimsmet
kvenna í átta tíma löngum rúningi á
fullorðnu fé. Hún rúði þá 370 ær sem
gerir 1,3 kindur á mínútu. Það væri
kannski ekki í frásögur færandi nema
fyrir þá staðreynd að Marie hefur
vanið komur sínar hingað til lands
síðastliðin ár til að rýja fé íslenskra
bænda ásamt vinkonu sinni, Heiðu
Guðnýju Ásgeirsdóttur, bónda á
Ljótarstöðum í Skaftártungu. Þær
voru staddar hér á landi í síðustu
viku og með í för var enn annar
kvenskörungur, Pauline nokkur
Bolay frá Kanada, sem á heimsmet
í rúningi á lömbum. Það met sló hún
árið 2019 og rúði þá 510 lömb á 8
klukkustundum.
„Okkur fannst tilvalið að hittast
einhvers staðar á meðan við gætum
enn báðar kallað okkur ríkjandi
heimsmethafa,“ segir Marie og
ekki seinna vænna því atlögur munu
verðar gerðar að heimsmetum þeirra
í janúar nk.
Þegar Bændablaðið bar að garði
á Gróustöðum í Reykhólasveit
voru Marie og Pauline eljusamar í
rúningi undir fjörugri tónlist meðan
heimamenn aðstoðuðu við rekstur
og frágang á ullinni. Þeim taldist
til að þær væru að rýja rúmlega 40
kindur á mann á 1,5 klukkustund.
Áður höfðu þær verið, í félagi við
Heiðu Guðnýju, á suðausturhorni
landsins. Þær létu ekki örlitla
alíslenska flensu á sig fá, en voru
glaðar að fá kaffisopa og heimabakað
bananabrauð milli anna.
Þær fara lofsamlegum orðum um
íslenska bændur sem þær starfa fyrir.
„Þeir færa okkur kaffi og mat og eru
svo rausnarlegir. Svo kunna þeir að
meta handbrögðin og verkin og eru
svo þakklátir.“
Lurkum lamdar
eftir íslenskar kindur
Íslenska sauðkindin er
ekkert sérstaklega auðveldur
skjólstæðingur, samanborið við
önnur sauðfjárkyn sem þær stöllur
meðhöndla alla jafna. Þær sýna
merki þess að vera lurkum lamdar
eftir störf sín síðustu daga.
„Íslenskar kindur eru rosalega
harðar af sér. Þær hafa auðvitað
verið ræktaðar til þess svo þær
þrífist við íslenskar aðstæður. Þetta
eru ótrúlegar skepnur og ég ber
mikla virðingu fyrir þeim. Þær eru
krefjandi í meðhöndlun, því þær eru
í svo góðu formi, sterkar og þéttar
og snarpar. Þær kunna líka virkilega
að sparka. Ef kind í Bretlandi myndi
sparka á þennan hátt myndi hún
bókstaflega fá hjartaáfall og deyja
vegna álags,“ segir Marie og hlær.
Í Bretlandi eru yfir 60 búfjárkyn
og ber Marie þeim allt aðra sögu.
„Sumar kindur sitja bara kyrrar –
þú færð ekki á þig eitt högg þótt
þú rýir allan daginn. Það væri
því eflaust gagnlegt fyrir íslenska
rúningsmenn að koma til Bretlands,
læra handtök, tækni og fá þjálfun á
slíkum kindum áður en þeir beita
þeim á þær íslensku.“
Keppnir sem kynna
landbúnaðarstörf
Löng hefð er fyrir keppnum í rúningi
á sauðfé og nær sú saga aftur í aldir.
Menn öttu gjarnan kappi sín á milli
á landbúnaðarsýningum og vakti,
og vekur enn, ávallt mikla lukku
meðal áhorfenda að verða vitni að
handbrögðunum.
Í dag eru slíkar keppnir efni
í stórviðburði, sér í lagi í Nýja-
Sjálandi og Ástralíu, hvar sauðfé
er reglulega rúið allt árið um kring.
Því eru þarlendir rúningsmenn oftar
en ekki fremstir meðal jafningja þó
breskir rúningsmenn hafi verið að
vekja nokkra athygli að undanförnu,
sbr. árangur Marie. Keppnisflokkar
rúnings eru margir; rúið er í átta
eða níu klukkutíma í senn, hægt er
að keppa í rúningi á kindum með
mismunandi ullargerðum, bæði
lömb og fullorðið fé og einnig er
hægt að keppa sem einstaklingur eða
sem keppnislið.
Marie nefnir að keppnir sem
þessar séu jákvæð kynning á
þessu sérhæfða starfi innan
sauðfjárbúskapar. Flestir viti lítið
sem ekkert um rúning og með
keppnum gefist almenningi tækifæri
á að sjá hvernig hann fer fram.
Hér á landi hefur verið
keppt í rúningi á sýningum og
sértækum landbúnaðarviðburðum
gegnum árin. Heiða Guðný
segir keppnismenninguna hér í
mýflugumynd enda lítil tækifæri
fyrir uppbyggingu og þjálfun
afreksrúningsmanna, þar sem
aðeins er rúið hér í tveimur stuttum
skorpum á ári. Fé var ekki rúið að
hausti hér á landi fyrr en farið var
að einangra fjárhús á níunda áratug
síðustu aldar.
Síðastliðin ár hafa íslenskir
rúningsmenn þó látið að sér
kveða á mótum erlendis og hefur
Heiða Guðný til að mynda tekið
þátt í tveimur mótum erlendis.
Íslandsmeistaramót í rúningi hefur
ekki farið hér fram síðan fyrir kóf.
„Við þurfum á því að halda að
íslenskir rúningsmenn fari erlendis,
læri að rýja og þjálfist í réttum
vinnubrögðum, rúningur er ekki
eitthvað sem hægt er að læra yfir
helgi. Eitt af því skemmtilega við
rúning er að það er endalaust hægt
að læra, bæta sig og slípa af sér
vitleysur. Rúningsmenn sem afla sér
góðrar þekkingar úti í hinum stóra
rúningsheimi myndu svo verða afar
gagnlegir þegar heim væri komið við
að miðla þekkingu sinni og reynslu
og bæta þannig rúningsmenninguna
á Íslandi. Aðstoða og fræða t.d. við
val og notkun á kömbum og hnífum.
Aukin þekking og bætt vinnubrögð
við rúning væru plús bæði fyrir
kindina, bóndann, afurðina og
rúningsmanninn,“ segir Heiða
Guðný.
Gæðin skapa orðsporið
Þótt takmarkið í keppnum sé að
afgreiða sem flestar kindur skipta
gæði handverksins einnig, og
ekki síður, máli. Dýravelferð er í
forgrunni starfsins. Marie bendir á að
rúningur sé nauðsynlegur kindum,
ekki eingöngu fyrir vellíðan þeirra
heldur einnig til að fyrirbyggja
sjúkdóma sem getur herjað á þær
ef ullin er ekki fjarlægð.
Vinnulag við rúning er einnig
miðað að því að draga úr streitu
gripanna eins og kostur er.
Tilgangurinn sé að reyna að ná
allri ull af fumlaust án þess að
skaða skepnuna. Þær Marie og
Pauline leggja áherslu á að gæði
rúningsins skapi orðspor þeirra
og þar með starfsgrundvöll. Slæm
vinnubrögð verða fljótt til þess að
viðkomandi rúningsmaður fær ekki
áframhaldandi verkefni.
En vinna við rúning er í eðli sínu
keppni segir Pauline. „Við rýjum
vanalega í hópi, erum þrjú til tíu
saman í verkum. Þegar við rýjum
hlið við hlið allan daginn verður
maður ósjálfrátt kappsamur, reynir
að afgreiða fleiri kindur en sá næsti.“
Verkefni rúningsmanns er afar tæknilegt og Marie Pepple segir að til þess að öðlast góða færni þurfi maður að vera
þolinmóður. „Þú þarft líka að búa að seiglu og geta haldið áfram þegar á reynir en um leið að vera alltaf rólegur
kringum skepurnar,“ segir Marie, sem lét alíslenska flensu hafa lítil áhrif á sig við vinnu á Gróustöðum.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Starf rúningsmanns er krefjandi á líkamann og Marie nefnir að það sé nokkuð
eðlilegt að rýja í átta tíma á dag, alla daga, meira og minna í 3–4 mánuði í senn.
Hnífarnir á kömbunum eru valdir af
kostgæfni.
Mikið álag er á bak rúningsmanna. Pauline notast hér við rúningsrólu til að
létta þunganum af bakinu við verkið.
Beðið eftir rúningi. Léttari á sér eftir á.