Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
Nýverið greind-
ist Bovine Para-
influenza Virus
3 (BPIV3) í
fyrsta skipti
hér á landi.
Um er að
ræða veiru
sem veldur
vægri öndunar-
f æ r a s ý k i n g u
í nautgripum. Ekki er talin
ástæða til að grípa til sérstakra
aðgerða vegna greiningarinnar
en Matvælastofnun vill upplýsa
um málið og um leið minna á
mikilvægi sóttvarna í umgengni
við nautgripi.
Ekki hafa verið mæld mótefni
reglubundið gegn þessari veiru
þannig að ekki er vitað hvort
um er að ræða einstakt tilfelli
eða hvort veiran sé útbreidd í
nautgripastofninum. Veiran veldur
oftast vægum einkennum og
sýking getur því hafa farið það dult
að ekki hafi orðið vart við hana.
Öndunarfærasýkingar eru
mjög sjaldgæfar í nautgripum á
Íslandi og sýni því sjaldan tekin
til rannsókna á smitefnum sem
þeim valda og ekki hefur verið
talin ástæða til þess að skima
fyrir þeim sérstaklega. En í ljósi
þessarar greiningar er stefnt að því
að kanna útbreiðslu veirunnar á
næstunni.
Tilefni þess að gerð var mæling
á mótefnum gegn þessari veiru,
ásamt fleiri veirum, var að á kúabúi
á NA-landi voru kýr með skitu og
einkenni frá öndunarfærum á sama
tíma. Kýrnar voru að veikjast
af skitu í annað sinn á einu ári,
sem er óvanalegt. Þær urðu mun
veikari í seinna skiptið og sýndu
eins og áður segir einkenni frá
öndunarfærum á sama tíma.
Um var að ræða þurran hósta,
mæði við áreynslu og blóðnasir.
Einkennin fóru yfir allt fjósið en
minna virtist vera um blóðnasir
hjá kálfunum. Tekin voru
sýni úr 6 kúm á bænum og sá
Tilraunastöð HÍ í meinafræði
að Keldum um að senda sýnin
til erlendra rannsóknarstofa í
viðeigandi rannsóknir miðað við
sjúkdómseinkenni. Sýnin voru
öll neikvæð m.t.t. mótefna gegn
smitandi slímhúðarpest (BVD),
smitandi barkabólgu (IBR (BHV1))
og smitandi öndunarfærabólgu
(BRSV) en 5 sýni af 6 voru jákvæð
hvað varðar mótefni gegn Bovine
Parainfluensa 3 virus (BPIV3).
BPIV3 er landlæg í nautgripum
víðast hvar í heiminum. Veikindi
eru algengust í kálfum sem ekki
hafa fengið næg mótefni í gegnum
brodd. Sýkingin er yfirleitt væg.
Helstu einkenni eru hiti, nefrennsli
og þurr hósti. Í kjölfar BPIV3
sýkingar geta komið önnur
smitefni, sem valda mun alvarlegri
einkennum. Ekki varð vart við
nein alvarlegri einkenni í kjölfar
sýkingarinnar á umræddum bæ og
hafa gripirnir allir náð sér og eru
einkennalausir.
Þó BPIV3 hafi ekki greinst áður
hér á landi telur Matvælastofnun
ekki ólíklegt að BPIV3 sé í
einhverjum mæli til staðar í
nautgripum. Fyrirhugað er að
taka sýni víða á landinu á næstu
mánuðum til að kanna útbreiðslu
veirunnar.
Mikilvægt er að bændur og
allir sem starfa sinna vegna
koma inn á kúa- og nautaeldisbú
gæti ávallt vel að sóttvörnum.
Mikilvægustu liðir í að draga
úr hættu á smitdreifingu er að
klæðast hreinum hlífðarfatnaði,
þrífa skófatnað vel eftir hverja
heimsókn og þvo hendur.
Tekið skal fram að veiran
veldur ekki sýkingum í fólki
og hefur ekki áhrif á heilnæmi
mjólkur og kjöts.
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir,
sérgreinadýralæknir nautgripa-
og sauðfjársjúkdóma hjá MAST.
Bovine Parainfluensa 3 vírus
greinist í fyrsta sinn hér á landi
SIgurbjörg Ólöf
Bergsdóttir.
LANDGRÆÐSLAN
Sjá nánar á land.is
AUGLÝSIR STYRKI
TIL VARNA GEGN
LANDBROTI
Við forgangsröðun verkefna verður
m.a. höfð hliðsjón af verðmæti þess lands
eða mannvirkja sem landbrotið ógnar.
Hámarksfjárhæð styrks er kr. 4.000.000
Umsóknarfrestur er til og með
31. janúar 2023
Frekari upplýsingar veitir Sigurjón Einarsson
í tölvupósti: se@land.is eða í síma: 856-0432
www.land.is
Reynsla, virðing,
fagmennska
Baritón
Veiti einnig ráðgjöf
vegna tónlistar og
útvega sönghópa
SÖNGUR VIÐ ÚTFARIR
Jón Svavar Jósefsson
jonsvavar.is s: 864 2407
jonljon@gmail.com
facebook/jarðarfarasöngvarinn
www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-4540050
SOLIS 50 StageV
Ný og endurbætt vél með
vendigír við stýri.
Túrbína og intercooler
Endurhannað stjórnrými
Verð: 4.980.000+vsk
Með ámoksturstækjum
6.180.000+vsk
TIL Á LAGER