Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 58

Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022 UMHVERFISMÁL – TÍSKA FUGLINN: RJÚPA Rjúpa er einn af einkennisfuglum íslenskrar náttúru og er eini hænsnfuglinn sem lifir hérna villtur. Hún er að öllu leyti staðfugl og útbreidd um allt land. Rjúpan er einstaklega harðgerður fugl og þolir vel íslenska veðráttu. Þegar mestu vetrarhörkurnar ganga yfir grafa þær sig í snjó til að fá einangrun frá kuldanum. Nú á vetrarmánuðum hefur stofninn stokkast upp og fuglarnir hafa dreift sér í sína vetrarhaga. Þá leitar rjúpan upp í fjöll eða snjólínu þar sem hún kemst enn þá í æti. Þegar jarðbönn verða til heiða leita þær meira niður í kjarr og jafnvel í byggð eftir æti. Þegar vorar stokkast stofninn aftur upp og karrarnir helga sér óðöl sem þeir verja af krafti gegn öðrum körrum. Þótt rjúpu megi finna um allt land frá fjöru og upp á hálendi þá eru meginuppeldisstöðvar þeirra lágheiðar og láglendismóar. Þessi svæði eru því mjög mikilvæg fyrir rjúpu og aðra mófugla. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson 20. og 21. öldin: Um aldamótin síðustu … Þeir eru þó nokkrir lesendur Bændablaðisins sem minnast unlingsáranna sveipuðum því sem mætti kallast ... töfraljóma. Ekki eru allir jafn heppnir að sjá slíkt fyrir sér og má segja að sú kynslóð sem gjarnan er nefnd „Xennials“ sé þar fremst í flokki. Fyrir þá sem ekki hafa haft veður af henni er víst best að skilgreina hugtakið nánar. Um ræðir einstaklinga fædda á árunum 1977-1983/5 og vilja sumir meina að þarna séu á ferð gulleintök aldanna, fólkið sem náði í skottið á því sem þykir óhindruð náttúrumenning, en hafa að sama skapi þor og dug er kemur að því að tileinka sér nýjungar á samfélagsmiðlum. Bátasímarnir Fyrstu farsímarnir voru fimm kílóa hlunka bátasímar sem sumir erfðu frá foreldrum sínum, geisladiskar voru nýjung, tóku við af plötum og einhvers staðar úti í hinum ameríska heimi var til sjónvarpsstöð sem hét MTV. (Eða öllu heldur, því látlausa nafni Music Television.) Stöðin hóf útsendingar þann 1. ágúst 1981 og var þá aðalmarkmið sjónvarpsstöðvarinnar að sýna tónlistarmyndbönd – sem þessir sömu sumir ólust upp við. Heimurinn var semsé að opnast. (Þess ber að geta að við Íslendingar, ævinlega með puttann á púlsinum, vorum þarna skrefum á undan forsvarsmönnum MTV en tónlistar- þátturinn Skonrokk fór í loftið hjá Ríkissjónvarpinu a.m.k. tveimur árum áður undir stjórn Þorgeirs Ástvaldssonar, fjölmiðlamannsins víðfræga.) Rótgrónar stjörnur framtíðar Nú, Xennials ólust því upp með annan fótinn í forinni og hinn á barmi framtíðar og voru fyrst um sinn sem blómi í eggi. Unglingsárin hófust síðar en þau gera í dag, flestir gagnfræðaskólanemar hófu daginn á snúsnú og joggingbuxur þóttu heitar. Sumir voru djarfiri og mættu í rifnum gallabuxum og heitasta dressi Vinnufatabúðarinnar þess tíma – fighter-jakka og hermannaskóm. Er leið á unglingsárin og heimurinn opnaðist enn frekar, hóf þó þessi milda stilling jafnvægis að bresta. Plokkaðar augabrýr, brúnn varablýantur, hvítur eða silfurblár eyeliner, mjaðmabuxur þar sem nærfatnaður var togaður vel upp fyrir strenginn, keðja um mittið, naflahringur, magabolir, plastföt, pils yfir buxur, þykkar strípur í hárið, Buffalo skór, samstæð velúr-íþróttaföt … Ungdómurinn í dag Svona má lengi telja ýmist misvel lukkað, enda margt sem kemur upp í hugann. Sem er allt gott og blessað á sinn hátt, barns síns tíma. Eða hvað? Erum við ekki vön því að tískan fari í hringi? Héldum við kannski að þessi ólukkulega gleði þeirra sem nutu sín hvað best í kringum aldamótin myndi bara aldrei birtast á ný? Það mátti vona. Nú er því miður annað komið á daginn. Greinarhöfundur á t.a.m. barn sem er að stíga sín fyrstu skref inn í unglingsárin, nú nýlega þrettán ára. Barn sem hefur alla tíð verið vel gyrt og settlegt en rigsar nú um í lágum mjaðmabuxum fatamerkisins True Religion (sem jú, var akkúrat stofnað árið 2002) gyrðir hins vegar nærfatnaðinn helst til vel, notar hvítan eyeliner og klæðist magabolum. Með rave tónlist í eyrunum. (Reyndar ekki með ferðageislapilara frá Sony heldur AirPods Pro.) Í framhaldinu sér móðirin fyrir sér að næstu skref þessa tískugjörnings verði samsetning kjóla yfir buxur, þykkar strípur í hárið og plastfatnaður. Nú eða velúrfatnaður merkja á borð við Juicy Couture og Buffalo skór, með tónlist Britney Spears í eyrunum og naflahring. Guð hjálpi oss. /SP Þær voru hámóðins fyrirmyndir tískunnar fyrir um tuttugu árum – sem tröllríður ungdómnum aftur í dag. Söngkonurnar Christina Aguilera, Rhianna og Britney Spears til hægri, auk dökkhærðrar Parisar Hilton ef einhver vill leita eftir þeirri persónu á netinu. Gjörið svo vel. Dæmi um samstæðan velúrgalla sem situr afar neðarlega á mjöðmunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.