Bændablaðið - 17.11.2022, Síða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
UMHVERFISMÁL – TÍSKA
FUGLINN: RJÚPA
Rjúpa er einn af einkennisfuglum íslenskrar náttúru og er eini hænsnfuglinn sem lifir hérna villtur. Hún er að öllu leyti staðfugl og útbreidd um allt land. Rjúpan er einstaklega harðgerður fugl og þolir vel íslenska
veðráttu. Þegar mestu vetrarhörkurnar ganga yfir grafa þær sig í snjó til að fá einangrun frá kuldanum. Nú á vetrarmánuðum hefur stofninn stokkast upp og fuglarnir hafa dreift sér í sína vetrarhaga. Þá leitar
rjúpan upp í fjöll eða snjólínu þar sem hún kemst enn þá í æti. Þegar jarðbönn verða til heiða leita þær meira niður í kjarr og jafnvel í byggð eftir æti. Þegar vorar stokkast stofninn aftur upp og karrarnir helga
sér óðöl sem þeir verja af krafti gegn öðrum körrum. Þótt rjúpu megi finna um allt land frá fjöru og upp á hálendi þá eru meginuppeldisstöðvar þeirra lágheiðar og láglendismóar. Þessi svæði eru því mjög
mikilvæg fyrir rjúpu og aðra mófugla. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
20. og 21. öldin:
Um aldamótin síðustu …
Þeir eru þó nokkrir lesendur
Bændablaðisins sem minnast
unlingsáranna sveipuðum því sem
mætti kallast ... töfraljóma.
Ekki eru allir jafn heppnir að sjá
slíkt fyrir sér og má segja að sú kynslóð
sem gjarnan er nefnd „Xennials“ sé
þar fremst í flokki. Fyrir þá sem ekki
hafa haft veður af henni er víst best
að skilgreina hugtakið nánar. Um
ræðir einstaklinga fædda á árunum
1977-1983/5 og vilja sumir meina að
þarna séu á ferð gulleintök aldanna,
fólkið sem náði í skottið á því sem
þykir óhindruð náttúrumenning, en
hafa að sama skapi þor og dug er
kemur að því að tileinka sér nýjungar
á samfélagsmiðlum.
Bátasímarnir
Fyrstu farsímarnir voru fimm kílóa
hlunka bátasímar sem sumir erfðu
frá foreldrum sínum, geisladiskar
voru nýjung, tóku við af plötum og
einhvers staðar úti í hinum ameríska
heimi var til sjónvarpsstöð sem hét
MTV. (Eða öllu heldur, því látlausa
nafni Music Television.) Stöðin hóf
útsendingar þann 1. ágúst 1981 og var
þá aðalmarkmið sjónvarpsstöðvarinnar
að sýna tónlistarmyndbönd – sem
þessir sömu sumir ólust upp við.
Heimurinn var semsé að opnast.
(Þess ber að geta að við Íslendingar,
ævinlega með puttann á púlsinum,
vorum þarna skrefum á undan
forsvarsmönnum MTV en tónlistar-
þátturinn Skonrokk fór í loftið hjá
Ríkissjónvarpinu a.m.k. tveimur
árum áður undir stjórn Þorgeirs
Ástvaldssonar, fjölmiðlamannsins
víðfræga.)
Rótgrónar stjörnur framtíðar
Nú, Xennials ólust því upp með
annan fótinn í forinni og hinn á
barmi framtíðar og voru fyrst um
sinn sem blómi í eggi. Unglingsárin
hófust síðar en þau gera í dag, flestir
gagnfræðaskólanemar hófu daginn
á snúsnú og joggingbuxur þóttu
heitar. Sumir voru djarfiri og mættu
í rifnum gallabuxum og heitasta
dressi Vinnufatabúðarinnar þess tíma
– fighter-jakka og hermannaskóm.
Er leið á unglingsárin og heimurinn
opnaðist enn frekar, hóf þó þessi milda
stilling jafnvægis að bresta.
Plokkaðar augabrýr, brúnn
varablýantur, hvítur eða silfurblár
eyeliner, mjaðmabuxur þar sem
nærfatnaður var togaður vel upp
fyrir strenginn, keðja um mittið,
naflahringur, magabolir, plastföt,
pils yfir buxur, þykkar strípur í hárið,
Buffalo skór, samstæð velúr-íþróttaföt
…
Ungdómurinn í dag
Svona má lengi telja ýmist misvel
lukkað, enda margt sem kemur
upp í hugann. Sem er allt
gott og blessað á sinn
hátt, barns síns tíma.
Eða hvað? Erum
við ekki vön því að
tískan fari í hringi?
Héldum við kannski
að þessi ólukkulega gleði þeirra sem
nutu sín hvað best í kringum aldamótin
myndi bara aldrei birtast á ný? Það
mátti vona.
Nú er því miður annað komið
á daginn. Greinarhöfundur á t.a.m.
barn sem er að stíga sín fyrstu skref
inn í unglingsárin, nú nýlega þrettán
ára. Barn sem hefur alla tíð verið
vel gyrt og settlegt en rigsar nú um í
lágum mjaðmabuxum fatamerkisins
True Religion (sem jú, var akkúrat
stofnað árið 2002) gyrðir hins vegar
nærfatnaðinn helst til vel, notar hvítan
eyeliner og klæðist magabolum. Með
rave tónlist í eyrunum. (Reyndar ekki
með ferðageislapilara frá Sony heldur
AirPods Pro.)
Í framhaldinu sér móðirin fyrir sér
að næstu skref þessa tískugjörnings
verði samsetning kjóla yfir buxur,
þykkar strípur í hárið og plastfatnaður.
Nú eða velúrfatnaður merkja á borð við
Juicy Couture og Buffalo skór, með
tónlist Britney Spears í eyrunum og
naflahring.
Guð hjálpi
oss. /SP
Þær voru hámóðins fyrirmyndir tískunnar fyrir um tuttugu árum – sem
tröllríður ungdómnum aftur í dag. Söngkonurnar Christina Aguilera, Rhianna
og Britney Spears til hægri, auk dökkhærðrar Parisar Hilton ef einhver vill
leita eftir þeirri persónu á netinu. Gjörið svo vel.
Dæmi um samstæðan velúrgalla sem
situr afar neðarlega á mjöðmunum.