Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022 LÍF&STARF Margir unnendur lífrænt vottaðra gulróta kannast við Akursels­ gulrætur, frá Akurseli í Öxarfirði. Í byrjun þessa árs keypti Akur organic, sem er nýtt garðyrkjufyrirtæki í lífrænt vottaðri ræktun, allan rekstur Akursels og hefur á undanförnum vikum verið að uppskera og selja sína fyrstu uppskeru undir sínum merkjum – alls um 65 tonn af gulrótum og fjögur tonn af rófum. Eigendur Akurs organic eru tvenn hjón; Brynja Reynisdóttir og Jóhannes Ingi Árnason á Hallgilsstöðum 2 í Þistilfirði og Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir og Benedikt Líndal Jóhannsson á Brúarlandi 2 í Langanesbyggð. Sólardagar í haust björguðu uppskerunni Að sögn Ólínu var sumarið á Norðausturlandinu mjög kalt og útlit fyrir uppskerubrest í lok ágúst en svo komu sólardagar í september sem björguðu uppskerunni alveg. Hún segir að sjálfsögðu engin eiturefni notuð við ræktunina og allt illgresi sé fjarlægt með höndum tvisvar á hverju sumri og því ljóst að að baki því verki liggi mörg handtökin. Þá þurfi að taka dúkana af beðunum og setja svo aftur yfir. Einnig þurfi að passa akrana fyrir ágangi gæsa, þær hafi einu sinni komist í gulrótaakurinn og náðu að valda þó nokkru tjóni. Lífrænn áburður frá Ísfélagi Vestmannaeyja Ísfélag Vestmannaeyja framleiðir allan lífrænan áburð fyrir Akur organic, í formi loðnumjöls síðasta vor, og því kolefnissporið í lágmarki enda ekki nema tæplega 20 kílómetra flutningsleið frá framleiðanda á Þórshöfn og út á akrana. Ólína segir að þrír akrar séu í notkun hjá þeim í dag, einn fyrir lífræna rótargrænmetið og svo tveir aðrir sem eru að hvíla, en þar verði lífrænu hveiti sáð. Bæði hjón eru sauðfjárbændur Að sögn Ólínu reka þau Brynja og Jóhannes Ingi sauðfjárbú á Hallgilsstöðum. „Brynja var áður starfandi ritari hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands í rúm 20 ár, fyrst á Raufarhöfn sem ritari og umsjónarmaður apóteks og svo á Þórshöfn sem ritari en einbeitir sér nú að rekstri Akurs Organic ehf. Benedikt er reynslumikill í rekstri fyrirtækja, hefur rekið og starfað á Ökumælum ehf. í Reykjavík frá árinu 1999 og gerir enn ásamt því að reka hestaflutningafyrirtæki um margra ára skeið. „Við hjónin rekum skólabíla, sumarhús í útleigu ásamt sauðfjárbúi, en erum smátt og smátt að fækka fénu,“ segir Ólína en hún er menntuð á sviði viðskipta og segir að það komi sér vel í rekstrinum og markaðssetningunni. Dyrhólagulrætur breyttust í Akurselsgulrætur Akur organic keypti sem fyrr segir allan rekstur Akursels ehf. í upphafi ársins 2022 af þeim hjónum Sigurbjörgu Jónsdóttur og Stefáni Gunnarssyni. En Akursel ehf. er rótgróið fyrirtæki sem hóf starfsemi árið 1980 sem Dyrhólagulrætur. Árið 1995 breyttist nafnið í Akurselsgulrætur, þegar félagið fékk lífræna vottun. Að sögn Ólínu starfaði Jóhannes Ingi, hjá Dyrhólagulrótum fyrir fjölmörgum árum og þekkti því aðeins til starfseminnar. Hún segir að hjónin Sigurbjörg og Stefán séu með reynslumestu ræktendum landsins í lífrænni ræktun. Sigurbjörg hafi verið þeim til halds og trausts á fyrsta rekstrarárinu og leiðbeint þeim eftir þörfum. Eigendur Akurs organic. Benedikt Líndal Jóhannsson, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Brynja Reynisdóttir og Jóhannes Ingi Árnason. Myndir / Akur organic Gulræturnar eru aðallega teknar upp með upptökuvél, en vegna mikillar bleytu þurfti í haust að handtína hluta af uppskerunni. Akur organic, sem er nýtt garðyrkjufyrirtæki í lífrænt vottaðri ræktun, skar upp um 65 tonn af gulrótum og fjögur tonn af rófum í haust. Uppskera 65 tonn af lífrænum gulrótum – Akur organic er nýr lífrænt vottaður framleiðandi gulróta og gulrófna Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Við bjóðum nú sérsniðnar gúmmímottur í ýmsum gerðum fyrir allar gerðir gripahúsa Flestir eru sammála að steypt undirlag er ekki náttúrulegt fyrir kýr og getur valdið því að þeim líði illa og framleiði þar af leiðandi minna magn af mjólk. Motturnar eru sérskornar fyrir hvert verkefni fyrir sig og fer því nánast ekkert til spillis auk þess sem fljótlegt er að leggja þær á gólfið. Hafðu samband: bondi@byko.is BÁSAMOTTUR 5 ÁRA FRAMLEIÐSLUÁBYRGÐ bondi@byko.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.