Bændablaðið - 17.11.2022, Qupperneq 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. nóvember 2022
LÍF&STARF
Margir unnendur lífrænt vottaðra
gulróta kannast við Akursels
gulrætur, frá Akurseli í Öxarfirði.
Í byrjun þessa árs keypti
Akur organic, sem er nýtt
garðyrkjufyrirtæki í lífrænt vottaðri
ræktun, allan rekstur Akursels og
hefur á undanförnum vikum verið
að uppskera og selja sína fyrstu
uppskeru undir sínum merkjum
– alls um 65 tonn af gulrótum og
fjögur tonn af rófum.
Eigendur Akurs organic eru
tvenn hjón; Brynja Reynisdóttir
og Jóhannes Ingi Árnason á
Hallgilsstöðum 2 í Þistilfirði og
Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir
og Benedikt Líndal Jóhannsson á
Brúarlandi 2 í Langanesbyggð.
Sólardagar í haust
björguðu uppskerunni
Að sögn Ólínu var sumarið á
Norðausturlandinu mjög kalt og
útlit fyrir uppskerubrest í lok ágúst
en svo komu sólardagar í september
sem björguðu uppskerunni alveg.
Hún segir að sjálfsögðu engin
eiturefni notuð við ræktunina
og allt illgresi sé fjarlægt með
höndum tvisvar á hverju sumri og
því ljóst að að baki því verki liggi
mörg handtökin. Þá þurfi að taka
dúkana af beðunum og setja svo
aftur yfir. Einnig þurfi að passa
akrana fyrir ágangi gæsa, þær hafi
einu sinni komist í gulrótaakurinn
og náðu að valda þó nokkru tjóni.
Lífrænn áburður frá Ísfélagi
Vestmannaeyja
Ísfélag Vestmannaeyja framleiðir
allan lífrænan áburð fyrir Akur
organic, í formi loðnumjöls síðasta
vor, og því kolefnissporið í lágmarki
enda ekki nema tæplega 20 kílómetra
flutningsleið frá framleiðanda á
Þórshöfn og út á akrana.
Ólína segir að þrír akrar séu í
notkun hjá þeim í dag, einn fyrir
lífræna rótargrænmetið og svo tveir
aðrir sem eru að hvíla, en þar verði
lífrænu hveiti sáð.
Bæði hjón eru sauðfjárbændur
Að sögn Ólínu reka þau Brynja
og Jóhannes Ingi sauðfjárbú á
Hallgilsstöðum.
„Brynja var áður starfandi ritari
hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands
í rúm 20 ár, fyrst á Raufarhöfn sem
ritari og umsjónarmaður apóteks
og svo á Þórshöfn sem ritari en
einbeitir sér nú að rekstri Akurs
Organic ehf.
Benedikt er reynslumikill í rekstri
fyrirtækja, hefur rekið og starfað á
Ökumælum ehf. í Reykjavík frá
árinu 1999 og gerir enn ásamt því
að reka hestaflutningafyrirtæki
um margra ára skeið. „Við hjónin
rekum skólabíla, sumarhús í útleigu
ásamt sauðfjárbúi, en erum smátt og
smátt að fækka fénu,“ segir Ólína
en hún er menntuð á sviði viðskipta
og segir að það komi sér vel í
rekstrinum og markaðssetningunni.
Dyrhólagulrætur breyttust í
Akurselsgulrætur
Akur organic keypti sem fyrr
segir allan rekstur Akursels ehf. í
upphafi ársins 2022 af þeim hjónum
Sigurbjörgu Jónsdóttur og Stefáni
Gunnarssyni.
En Akursel ehf. er rótgróið
fyrirtæki sem hóf starfsemi árið 1980
sem Dyrhólagulrætur. Árið 1995
breyttist nafnið í Akurselsgulrætur,
þegar félagið fékk lífræna vottun.
Að sögn Ólínu starfaði Jóhannes
Ingi, hjá Dyrhólagulrótum fyrir
fjölmörgum árum og þekkti því
aðeins til starfseminnar.
Hún segir að hjónin Sigurbjörg
og Stefán séu með reynslumestu
ræktendum landsins í lífrænni
ræktun. Sigurbjörg hafi verið
þeim til halds og trausts á fyrsta
rekstrarárinu og leiðbeint þeim eftir
þörfum.
Eigendur Akurs organic. Benedikt Líndal Jóhannsson, Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, Brynja Reynisdóttir og
Jóhannes Ingi Árnason. Myndir / Akur organic
Gulræturnar eru aðallega teknar upp með upptökuvél, en vegna mikillar
bleytu þurfti í haust að handtína hluta af uppskerunni.
Akur organic, sem er nýtt garðyrkjufyrirtæki í lífrænt vottaðri ræktun, skar
upp um 65 tonn af gulrótum og fjögur tonn af rófum í haust.
Uppskera 65 tonn af lífrænum gulrótum
– Akur organic er nýr lífrænt vottaður framleiðandi gulróta og gulrófna
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Við bjóðum nú sérsniðnar
gúmmímottur í ýmsum gerðum
fyrir allar gerðir gripahúsa
Flestir eru sammála að steypt
undirlag er ekki náttúrulegt
fyrir kýr og getur valdið því að
þeim líði illa og framleiði þar af
leiðandi minna magn af mjólk.
Motturnar eru sérskornar fyrir
hvert verkefni fyrir sig og fer
því nánast ekkert til spillis auk
þess sem fljótlegt er að leggja
þær á gólfið.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
BÁSAMOTTUR
5 ÁRA FRAMLEIÐSLUÁBYRGÐ
bondi@byko.is