Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 66
Breytingar á verkaskiptingu á heimili meðal starfandi feðra og mæðra í fyrstu bylgju COVID-19
66 ..
að segja hvenær og hvar þeir vinna (Correll o.fl., 2014).
Fjarvinna getur þó einnig ýtt undir hefðbundna verkaskiptingu umönnunar og heimilisstarfa. Ef
faðirinn gegnir starfi utan heimilis og móðirin vinnur fjarvinnu heima eru mæður líklegri til að sinna
heimilisstörfum og umönnun í meira mæli en feður gera í sömu sporum. Mæður hafa einnig meiri
tilhneigingu til að nýta þann tíma sem sparast við fjarvinnu í að hugsa um heimilið en feður, sem
nýta tíma sem sparast frekar í aukna vinnu eða í eigin frítíma. Þá er vinnutími mæðra í fjarvinnu oftar
rofinn af heimilisverkum og umönnun en hjá feðrum í fjarvinnu, sem eykur streitu og ójafnvægi
milli vinnu og einkalífs meira hjá mæðrum en feðrum (Lyttelton o.fl., 2020).
Líkt og á Íslandi, varð mikill vöxtur í fjarvinnu í Bandaríkjunum vegna COVID-19. Rannsókn
á kynbundinni verkaskiptingu foreldra þar, fyrir og á meðan farsóttin stóð yfir, sýnir að það hvort
foreldrar unnu heima eða á vinnustaðnum í farsóttinni hefur áhrif á hvernig þeir skipta með sér
umönnun barna og heimilisstörfum en með ólíkum hætti. Mæður og feður sem unnu bæði alfarið
heima vörðu meiri tíma í heimilisstörf en foreldrar sem unnu á vinnustaðnum eða að hluta til heima.
Í fyrri hópnum, sem vann alfarið heima, var skipting heimilisstarfa ójafnari milli feðra og mæðra en
meðal foreldra sem unnu að hluta til á vinnustaðnum. Á hinn bóginn kom í ljós að umönnun barna
var jafnari meðal fjarvinnufólks en hópsins sem vann að hluta til á vinnustaðnum. Samkvæmt niður-
stöðunum verja feður í fjarvinnu þannig meiri tíma í umönnun barna borið saman við feður sem
vinna á vinnustað, en fjarvinnufeðurnir verja ekki meiri tíma í heimilisstörf en feður sem ekki vinna
fjarvinnu (Lyttelton o.fl., 2020).
Niðurstöður annarrar könnunar, sem framkvæmd var í Bandaríkjunum í apríl 2020 meðal tæp-
lega 500 sambúandi foreldra og ríflega 150 einstæðra foreldra, sýndi að lokun skóla og dagvistunar
í farsóttinni jók álag á starfandi foreldra. Niðurstöður sýndu einnig að þetta viðbótarálag var kyn-
bundið, líkt og umönnun og heimilisstörf almennt. Þannig sögðust ríflega sex af hverjum tíu starf-
andi mæðrum og fimm af tíu starfandi feðrum hafa aukið tíma við heimilisstörf eftir að farsóttin
skall á. Tæplega helmingur mæðra en ríflega þriðjungur feðra sagðist hafa varið meiri tíma í um-
önnun eftir að farsóttin skall á (Dunatchik o.fl., 2021).
Þá kom einnig fram að breyting á heimilisstörfum og umönnun var ólík eftir því hvort foreldrar
unnu alfarið fjarvinnu eða unnu á vinnustaðnum. Þar sem báðir foreldrar unnu á vinnustaðnum var
auknu umönnunarálagi og heimilisstörfum svarað með jafnara framlagi beggja foreldra. Á heimilum
þar sem báðir foreldrar unnu fjarvinnu báru mæður stærri hluta aukins álags vegna farsóttarinnar.
Þegar mæður unnu fjarvinnu en faðirinn ekki voru þær mun líklegri til að hafa aukið vinnu við heim-
ilishald en mæður þar sem báðir foreldrar unnu fjarvinnu. Þegar feður unnu fjarvinnu en móðirin
vann á vinnustaðnum lögðu feður minna til heimilisstarfa og umönnunar borið saman við heimili þar
sem mæður unnu fjarvinnu en faðirinn vann á vinnustaðnum (Dunatchik o.fl., 2021).
Niðurstöður ofangreindra rannsókna eru því ekki einhlítar. Annars vegar má sjá vísbendingar
um að fjarvinna ýti undir kynbundna verkaskiptingu, þ.e. að mæður axli stærri hluta byrðanna sem
farsóttin veldur í takt við þá verkaskiptingu sem var fyrir hana. Hins vegar má finna rannsóknir sem
sýna hið gagnstæða; að í hópi fjarvinnufólks taki feður á sig aukinn hluta þeirra byrða sem farsóttin
skapaði, einkum hvað varðar umönnun barna. Raunar virðast rannsóknarniðurstöður frekar sýna að
afleiðingar faraldursins hafi verið þær að feður hafi aukið þátttöku sína í umönnun barna sinna en
hitt (Barker o.fl., 2021; Del Boca o.fl., 2020; Herzberg-Druker o.fl., 2020; Mangiavacchi o.fl., 2020;
Shafer o.fl., 2020; Zamberlan o.fl., 2021).
Þetta gæti þýtt að faraldurinn dragi úr kynbundnum mun á umönnun og heimilisstörfum og að
hugsanlega muni feður sem auka þátttöku sína í heimilisstörfum og barnaumönnun ekki draga aftur
úr framlagi sínu eftir að farsóttinni lýkur (Farré og González, 2019; Patnaik, 2019; Tamm, 2019).
Ísland
Ísland er áhugavert í þessu sambandi af nokkrum ástæðum. Í fyrsta lagi kom aldrei til útgöngubanns
eða allsherjar lokunar skóla og eru Ísland og Svíþjóð einu Evrópulöndin sem aldrei lokuðu skólum