Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 75
Guðný Björk Eydal, Ingólfur V. Gíslason og Tómas Bjarnason
75 ..
7). Allar breytur voru settar inn samtímis. Líkanið í heild er vel marktækt (F = 4,1; Df = 6; p < .001)
en skýrð dreifing var lítil (Adj. R2 = 6%).
Tafla 7. Breytur í OLS aðhvarfsgreiningu – háð breyta er breyting á ábyrgð á
heimilisstörfum
Hlutfall Fjöldi (n)
Breyta Gildi
Kyn Kona = 1 54% 430
Menntun Háskólapróf = 1 69% 319
Börn Börn eldri en 6 ára á heimili = 1 55% 429
Staðvinna/fjarvinna a. Báðir foreldrar vinna heima =1 37% 430
Staðvinna/fjarvinna b. Maki er heima en ég vinn á vinnustaðnum = 1 17% 430
Staðvinna/fjarvinna c. Ég er heima en makinn er á vinnustaðnum = 1 22% 430
Víxlverkun kyns og fjarvinnu heima Mæður í fjarvinnu heima = 1 33% 430
Hópur d., „Báðir foreldrar vinna á vinnustaðnum“, var notaður sem viðmiðunarhópur (=0).
Í jöfnuna var svo bætt víxlverkun kyns og heimavinnu, þ.e. mæðrum sem vinna fjarvinnu heima.
Þetta er gert með vísan í niðurstöður sem sýna að mæður sem vinna heima taka oft stærri skerf heim-
ilisstarfa og umönnunar en feður gera í sömu sporum. Þetta líkan er í heild einnig marktækt (F = 3,6;
Df = 7; p < .001) en áhrif víxlverkunarinnar voru ekki marktæk og skýringarhlutfallið jókst ekki við
þessa viðbót og er það líkan því ekki túlkað frekar.
Tafla 8. Niðurstöður aðhvarfsgreiningar. Háð breyta er breyting á ábyrgð á heimilisstörfum
B Staðalvilla p-gildi
Breytur í jöfnu
Fasti -0.03 0.07 E.m.
Kyn (kona = 1) +0.20 0.05 p < .001
Menntun (háskólamenntun = 1) +0.04 0.06 E.m.
Aldur barna (barn eldra en sex ára á heimili = 1) -0.03 0.05 E.m.
Staðsetning vinnu
a. Báðir vinna heima -0.11 0.07 E.m.
b. Maki vinnur heima, ég á vinnustað +0.05 0.08 E.m.
c. Ég vinn heima, maki á vinnustað -0.18 0.08 p < .05
Víxlverkun; Mæður í fjarvinnu heima - - -
Adj. R2 6%
F-próf (tvíhliða próf) F = 4,1; Df = 6; p < .001
Hópur d., „Báðir foreldrar vinna á vinnustaðnum“, var notaður sem viðmiðunarhópur og sést því ekki í jöfnunni.
E.m. er Ekki marktækt
Í greiningunni má sjá jákvæð áhrif kyns á ábyrgðarskiptingu heimilisstarfa. Það þýðir að mæður
segjast hafa gefið eftir í hlutdeild sinni í heimilisstörfum eftir að farsóttin skall á og feður aukið hlut-
deild sína. Einnig má sjá neikvæð áhrif staðsetningar vinnunnar hvað varðar hóp c. „Ég vinn heima,
maki á vinnustað.“ Það þýðir að hópur c. eykur við hlutdeild sína í heimilisstörfum við farsóttina að
teknu tilliti til annarra breyta í jöfnunni.
Marglínuleiki (multicollinearity) var skoðaður með því að skoða „variance inflation factor“ (VIF)
fyrir allar breytur. Hæsti VIF-stuðullinn var 3,6, sem er undir viðmiðunarmörkum til að greina marg-
línuleika (Robinson og Schumacker, 2009).