Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Qupperneq 10
— Alþýðusambandi Svíþjóðar: Lars Westerberg
— Alþýðusambandi Noregs: Odd Höydal
— Alþýðusambandi Finnlands: Pekka Oivio og Ilkka M. Erich
— FTF, Danmörku: Anton Dalsgaard
— TCO, Svíþjóð: Bertil Axelsson
— Föroya Fiskimannafelag: Óli Jakobsen
— Alþýðusambandi Sambandsríkisins Þýskalands: Gerhard
Schmidt
— Alþýðusambandi þýska alþýðulýðveldisins: Hans Lorenz og
Bruno Kress
— Alþýðusambandi Bandaríkja N.-Ameríku: Edward Carlougb
— Alþýðusam'bandi Sovétríkjanna: Elvira Kliger og Arvo Alas
Frá TCO, Finnlandi, hafði Kari Virtanen boðað komu sína, en
forfallaðist sökum veikinda á síðustu stundu.
Einnig höfðum við boðið fulltrúa grænlensku verkalýðssamtak-
anna, en vegna erfiðra og dýrra samgangna milli grannlandanna,
gat ekki orðið af því að þessu sinni.
Um leið og við fögnum erlendum gestum okkar, minnumst við
og þökkum ánægjuleg, vinsamleg og gagnleg samskipti ASÍ og
þeirra samtaka, sem þeir eru fulltrúar fyrir og margvíslegan stuðn-
ing, sem þau hafa veitt okkur á liðnum árum. Koma þessara full-
trúa á þing okkar er vissulega líka tákn þess, að verkalýðshreyfingin
á íslandi stendur ekki ein í baráttu sinni. Hún minnir okkur á, að
hún á sér öfluga bandamenn og vini, sem í raun reynast, og hún
minnir okkur einnig á skyldur okkar við lrina alþjóðlegu verkalýðs-
hreyfingu, sem samband okkar er hluti af. Ég læt þá einlægu von í
ljós, að þátttaka hinna erlendu gesta okkar megi enn styrkja bræðra-
böndin milli ASÍ og samtakanna, sem gestir okkar eru fulltrúar
fyrir.
Þá vil ég sérstaklega fagna því, að við höfum hér á meðal okkar,
sem heiðursfulltrúa á afmælisþingi, fjóra af fyrrverandi forsetum
sambandsins, þá Guðgeir Jónsson, Helga Hannesson, Hannibal Valdi-
marsson og Hermann Guðmundsson, sem að vísu er einnig kjörinn
fulltrúi sins stéttarfélags. í þessum hópi höfðum við einnig vonast
eftir að hafa meðal okkar Stefán Jóhann Stefánsson, en hann gat
ekki, sakir þungrar vanheilsu, þekkst boð okkar að þessu sinni.
6