Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 28
og margvísleg verkefni að eiga. Það hefur því sýnt sig að viss verk-
efni hafa orðið að ganga fyrir.
Stefnan er, samvinna um verkefni og vandamál, sem hundin eru
einstökum verkamönnum og einstökum vinnustöðum.
Stefnu okkar í þessu samstarfi hefur hingað til verið skipt niður í
þrjá aðalþætti. I fyrsta lagi upplýsingaskipti og samvinna á milli heild-
arsamtakanna, sem í raun þýðir skipti á hugmyndum, skoðunum, af-
stöðu og lausnum á einstökum vandamálum, í tengslum við það aðal-
verkefni sem þessi heildarsamtök glíma við á hverjum tíma.
í öðru lagi hefur þörfin á hagræðingu gagnvart hinum ýmsu stofn-
unum Norðurlanda stöðugt verið að færast í aukana. Hér er aðallega
um að ræða Norrænu Ráðherranefndina, Norðurlandaráð, Norrænu
Menningamálaskrifstofuna og hinn nýstofnaða Fjárfestingarbanka
Norðurlanda
Og í þriðja lagi hagræðingin á afstöðu norrænu samtakanna til
annarra alþjóðlegra félagasamtaka.
Hér er átt við Evrópska verkalýðssambandið og Alþjóðasam-
band frjálsra verkalýðsfélaga og fjölda annarra félaga og stofnana.
Á öllum sviðum höfum við, innan ramma norrænnar samvinnu,
náð umtalsverðum árangri. Við höfum orðið vitni að því, hvernig
daglegt samstarf heildarsamtakanna hefur leitt til umfangsmikilla
ályktanagerða og stefnumótunar varðandi m. a. vinnuumhverfi,
atvinnustefnu, fjölþjóðaauðhringa, fjölskyldumál o. s. frv. Við höf-
um einnig orðið vitni að því, hvernig afstaða okkar gagnvart nor-
rænum stofnunum — þar sem hlutverk Norrænu Ráðherranefnd-
arinnar eykst jafnt og þétt — hefur haft áhrif á þá pólitík sem rekin
er af stjórnvöldum á Norðurlöndum. Það hefur verið leitað álits
okkar á málefnum sem varða lausn yfirgripsmikilla þjóðfélagsvanda-
mála á Norðurlöndum.
Við höfum einnig orðið vitni að því, hvernig sameiginleg afstaða
okkar gagnvart Evrópska verkalýðssambandinu og Alþjóðasambandi
frjálsra verkalýðsfélaga, hefur gert okkar málum kleift að ná sam-
þykkt, þegar við höfum staðið saman.
Með öðrum orðum, þá erum við komin vel áleiðis, þó að við
gerum okkur fyllilega Ijóst, að verkefni mun ekki skorta á ókomnum
tímum.
Það er á sinn hátt mjög athyglisvert að sjá, við opnun þessa þings,
24