Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Blaðsíða 87
Þingið telur, að ljóst sé, að íslendingar megi eiga von á því, að
þeir þurfi að draga úr sókn sinni á fiskimiðin, með þeim fórnum
sem því kann að fylgja fyrir alþýðu manna. Þingið varar því ríkis-
stjórn og Alþingi mjög alvarlega við öllurn frekari samningum við
erlenda aðila um fiskveiðiheimildir þeim til handa innan íslenskrar
fiskveiðilögsögu og telur að slíkir samningar komi alls ekki til greina.
I dag, 1. desember 1976, fagna Islendingar merkum áfanga í
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Eftir margra alda rányrkju hverfa
bresk fiskiskip úr íslenskri landhelgi. Ótvíræð yfirráð íslendinga yfir
200 sjómílna fiskveiðilögsögu við strendur landsins eru þar með
viðurkennd.
Fundur 33. þings ASÍ, haldinn 1. desember 1976, fagnar unnum
sigrurn í þessu mesta hagsmunamáli þjóðarinnar og hvetur til að-
gæslu um stjórnun veiða og nýtingu helstu fiskistofna.
33. þing ASÍ 1976 skorar á verkalýðsfélögin um land allt að
koma sér upp fræðslusjóðum til þess að öflug starfsemi skapist innan
félaganna með námskeiðahaldi og til þess að gera félagsmönnum
kleift að sækja fræðslunámskeið MFA.
33. þing ASÍ. Þingskjal nr. 80.
Frá Vinnuverndar-, trygginga- og öryggismálanefnd.
33. þing ASÍ tekur undir og mælir með eftirtöldum samþykktum
10. þings Sjómannasambands Islands:
Þingið bendir enn einu sinni á nauðsyn þess, að öryggi í höfnum
sé aukið. Fýsing sé bætt, landgangar til staðar auk annars öryggis-
búnaðar. Þingið skorar á Slysavarnafélag íslands og sjóslysanefnd,
að fylgja þessum málum eftir.
Þingið felur væntanlegri stjórn að vinna að því, að lögum um
slysa- og örorkutryggingu sjómanna verði breytt þannig, að trygg-
ingarupphæðir haldi sínu raungildi og sé þá miðað við setningu lag-
anna 1972.
83