Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Qupperneq 108
ný vandamál hafa skapast og þekking aukist varðandi vinnuverndar-
mál. Nú er unnið að nýrri vinnuverndarlöggjöf í Svíþjóð og Noregi.
Samband alþýðusambanda á Norðurlöndum hefur gefið út stefnu-
yfirlýsingu um vinnuverndarmál, og ráðagerðir um samræmda vinnu-
vemdarlöggjöf fyrir Norðurlöndin öll hafa verið lengi á döfinni,
en eigi er vitað, hvenær þau áform nái fram að ganga.
Vegna þessa telur 33. þing ASÍ, að vinnuverndarfrumvarpið frá
1973 þurfi að endursemja sem fyrst.
Við samningu nýs frumvarps á grundvelli hins gamla, verður að
tryggja, að meginmarkmið verkalýðshreyfingarinnar um gjörbreytt
vinnuumhverfi nái fram, og ennfremur að tekið sé tillit til stöðugra
breytinga á atvinnuháttum og aukinnar einbæfni starfa með vax-
andi iðnvæðingu og kyrrsetustörfum, sem býður heim hættunni á
nýjum tegundum atvinnusjúkdóma, er berjast verður gegn með
stóraukinni líkamsrækt og í sérstökum æfingastofnunum.
33. ]ring ASf. Þingskjal nr. 70.
Ýmsar aðrar tillögur
Ríkisstjórnin segi af sér.
33. þing Alþýðusambands Islands minnir á, að framleiðslukerfi
íslendinga er að nær tveimur þriðju hlutum í höndum ríkis, sveitar-
félaga og samvinnubreyfingar. Hlutskipti einkaatvinnurekenda er
ráðið af albingi og ríkisstjórn ár hvert, og fer oft mestur tími alþingis
í þvílíka fyrirgreiðslu. Því er það fyrst og fremst ríkisstjóm og
stefna hennar, sem ákveða skiptingu þjóðartekna og skera úr um
lífskjör launafólks, aldraðs fólks og öryrkja. Núverandi ríkisstjórn
hefur ráðist af einstæðri hörku og tillitsleysi á lífskjör launafólks
og kcmur það harðast niður á þeim, sem lakast vom settir fvrir. Er
nú svo komið, að lífskjör láglaunafólks munu óvíða í Evrópu vera
jafn bágborin og á íslandi í samanburði við þjóðartekjur. Skiptir
meginmáli, að allt alþýðufólk geri sér Ijóst, að þar er fvrst og fremst
um að ræða afleiðingar af stefnu ríkisstjórnar og störfum.
Stuðningsflokkar ríkisstjórnarinnar boðuðu þveröfuga þróun i
loforðum sínum fyrir síðustu alþingiskosningar. Ekkert hefur á það
104