Þingtíðindi Alþýðusambands Íslands ... - 29.11.1976, Side 130
þeirri aukningu, sem virðist hafa orðið á fyrri hluta þessa árs. Viku-
legur vínnutími er sýndur á mynd 6 fyrir hvern ársfjórðung frá
ársbyrjun 1972 og fram á mitt ár 1976.
Árin 1972 og 1973 og fram á mitt ár 1974 var vikulegur vinnu-
tími verkamanna nokkru lengri en vinnutími iðnaðarmanna, en frá
miðju ári 1974 hefur munurinn minnkað mikið.
Vikulegur vinnutími verkakvenna er mun styttri en vinnutími
karla, en það kemur tæplega á óvart.
Kaup og kjör yfir lengra tímabil.
Á þessari öld hafa orðið algjör umskipti í kjörum íslensks verka-
fólks. Þeirri breytingu verður ekki reynt að lýsa hér, en þar sem
upplýsingar liggja fyrir um verð vöru og þjónustu frá 1914, er hér
sett með mynd, sem sýnir kaupmátt tímakaupstaxta í almennri hafnar-
vinnu í Reykjavík frá þeim tíma til þessa árs.
Á myndinni sést ekki að verðlag hefur meira en þrjúhundruð-
faldast á tímabilinu og kauptaxtinn er árið 1976 um ellefuhundruð-
sinnum það, sem var árið 1914. Lokaniðurstaðan, sem sést á mynd
7, er sú, að kaupmáttur tímakaupstaxta hafnarverkamanns í al-
mennri hafnarvinnu í Reykjavík er um 3/2 sinnum það, sem var
árið 1914.
Myndin sýnir Ijóslega, að kaupmáttur hefur sveiflast mikið frá
ári til árs. Sveiflurnar gera það að verkum, að ef afmarkað tímabil er
skoðað, er það mjög háð byrjunar- og lokaári, hvort kaupmáttur
reynist hafa hækkað eða ekki. Þá er rétt að vara við því, að nota
einn tímakaupstaxta sem algildan mælikvarða á kjaraþróunina og
minna jafnframt á þau ótalmörgu atriði önnur en kaupið, sem
ákvarða raunveruleg kjör.
Frá árinu 1963 og fram á mitt þetta ár eru fyrir hendi upplýs-
ingar um greitt tímakaup verkamanna og iðnaðarmanna í Reykja-
vík. Tölur um greitt tímakaup verkakvenna ná aftur til ársins 1966.
Upplýsingum þessum hefur kjararannsóknarnefnd safnað og birt
í fréttabréfi sínu. Kaupmáttur þessara hópa er sýndur á mynd 8
fyrir árin 1963—1976. Á mynd 8 eru þannig hliðstæðar upplýsing-
ar og á mynd 4.
Á mynd 8 kemur fram, að kaupmáttur greidds tímakaups í dag-
vinnu er töluvert hærri árið 1975 en hann varð hæstur á 7. ára-
126