Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 15
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 13 Viðtal Hvað getum við gert til að bæta stöðuna? „Með fræðslu. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Þeir sjúklingar sem við sinnum eiga ekki að vera fastir í fræðsluhlutverki gagnvart sínum þjónustuveitanda. Heilbrigðisstofnanir þurfa að sýna frumkvæði og fá fræðslu. Háskólinn á Akureyri var nú í fyrsta skipti með hinsegin fyrirlestur inni í sinni námsskrá, Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands er með það í valfagi. Skólar á öllum stigum þurfa að hafa einhverja fræðslu og þá viðeigandi fyrir þann hóp sem á að fræða.“ Hvar innan heilbrigðiskerfisins upplifir hinsegin fólk helst fordóma og hvernig birtast þeir? „Fordómar birtast í mörgum mismunandi formum innan heilbrigðiskerfisins. Ég ræði í mínum fyrirlestrum um stofnanabundna og einstaklingsbundna fordóma. Birtingarmynd stofnanabundna fordóma getur komið fram í öráreitum, t.d. eyðublöð gera ekki ráð fyrir hinsegin einstaklingum eða aðstaða er ekki til staðar fyrir þá. Einstaklingsbundnir fordómar eru oftast meira beinskeyttir og fela í sér áreiti eða áhugaleysi frá heilbrigðisstarfsmanni gagnvart hinsegin einstaklingi. Allt slíkt kemur niður á þjónustu gagnvart hinsegin einstaklingum og gerir það að verkum að þessi hópur veigrar sér við að leita aðstoðar.“ Hvað varð til þess að þú ákvaðst að halda fyrirlestra um hinsegin heilbrigði? „Ég sá tækifæri í því að vera með fyrirlestra um hinsegin heilbrigði þar sem það var ákveðin eyða í námsskrám um þennan tiltekna málaflokk. Fyrirlestraform er fræðsla fyrir þann hóp sem fyrirlesturinn situr og fræðsla er eitt það áhrifamesta tól sem hinsegin einstaklingar hafa í sinni baráttu. Fræðsla, þolinmæði og þrautseigja.“ Hvernig hafa viðtökurnar verið? „Viðtökurnar komu verulega á óvart. Flestir hafa verið þakklátir fyrir fyrirlesturinn en það hefur komið mörgum á óvart hvað þeir höfðu takmarkaða þekkingu á þessum hópi. Það eru akkúrat viðbrögðin sem ég hafði vonast eftir, þar sem það vekur umræðu innan hópa eftir að fyrirlestrinum er lokið.“ Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart á þessari vegferð? „Það kom mér á óvart, en samt ekki, hvað heilbrigðisstéttin í heild er ómeðvituð um málefni hinsegin einstaklinga. Það kemur mér hins vegar mest á óvart hvað deildir Landspítalans hafa lítið fjármagn í höndunum til að sinna fræðslu gagnvart sínu starfsfólki og hafa því ekki burði til að sækja sér fræðslu.“ Hvar er hægt að nálgast fyrirlestur þinn og annað efni sem tengist hinsegin heilbrigði? „Ég hélt málstofu nýlega í Háskólanum á Akureyri sem var tekin upp og má finna á vefsíðu þeirra. Annars hef ég verið að halda fyrirlestur bæði í kennslustundum í skólum og fyrir vinnustaði. Þá má senda á mig skilaboð á netfangið sigurdur@ samtokin78.is. Sömuleiðis er hægt að panta hjá mér einstaklingsráðgjöf hjá Samtökunum 78 og eru upplýsingar inn á vefsíðu samtakanna.“ Eitthvað sem þú vilt segja að lokum? Hinsegin hópar hafa setið aftarlega á merinni þegar kemur að heilbrigðisþjónustu. Aðeins er ein deild sem hefur staðið sig með prýði þegar kemur að hinsegin hópum og sendi ég stórt hrós á göngudeild A3 á Landspítala fyrir það starf sem þau sinna í dag, sömuleiðis fær göngudeild húð- og kynsjúkdóma á Landspítala gott hrós fyrir að hafa verið í átaki til þess að bæta þjónustu sína til að sinna hinsegin hópum. Munum að hinsegin einstaklingar eru í öllum hópum sem leita í heilbrigðisþjónustu og þarf heilbrigðisstarfsfólk að vera með rétt tæki og tól í höndunum til að sinna þessum hópi. Ég hvet alla þá sem hafa lesið þetta viðtal til að skoða sinn vinnustað og íhuga hvort hinsegin einstaklingur sé að fá góða þjónustu þar. Aðstaða, orðræða og fræðsla skiptir höfuðmáli í góðri heilbrigðisþjónustu gagnvart minnihlutahópum. „Ég hvet alla þá sem hafa lesið þetta viðtal til að skoða sinn vinnustað og íhuga hvort hinsegin einstaklingur sé að fá góða þjónustu þar. Aðstaða, orðræða og fræðsla skiptir höfuðmáli í góðri heilbrigðisþjónustu gagnvart minnihlutahópum.“

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.