Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 18

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 18
16 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021 og fleira fagfólk erum alltaf á bakvakt og getum verið kölluð út hvenær sem er en útkallsbyrðin er venjulega ekki mjög þung,“ útskýrir hún og bætir við að grundvallaratriði til þess að hægt sé að sinna fæðingarþjónustu á svæðinu sé að það sé svæfing á staðnum svo hægt sé að framkvæma keisara. Allt helst þetta þannig í hendur og krefst þess að mannskapur sé til staðar ef á þjónustunni þarf að halda. Eiginmaðurinn nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur Hvernig er hefðbundinn vinnudagur á sjúkrahúsinu á Ísafirði? ,,Ég er í 60% starfi á legudeildinni sem er hand- og lyflækningadeild og þar er ég aðallega á dagvöktum því við hjónin erum með börn en maðurinn minn er líka hjúkrunarfræðingur. Hann var að útskrifast núna í vor og við reynum eftir fremsta megni að vinna á móti hvort öðru þannig að annað okkar sé þá heima hjá börnunum. Við vorum að taka að okkur tvö yndisleg fósturbörn og reynum þess vegna að vera eins mikið og við getum heima til að sinna þeim og dóttur okkar. En hittist þið hjónin þá mikið? ,,Nei, að vísu ekki nógu mikið en þetta er bara tímabundið og við látum þetta ganga með aðstoð góðra vina og ættingja,“ segir Sara ánægð að búa í heimabænum nærri sínu fólki. En hvernig kom það til að eiginmaðurinn ákvað líka að skella sér í hjúkrunarfræði? ,,Þegar við bjuggum úti í Noregi fór hann að vinna aðhlynningarstarf ,,Í mörgum tilfellum er hlutverk mitt, ásamt samstarfsfólki, að sinna bráðveiku fólki á meðan beðið er eftir sjúkraflugi á Landspítalann, …“ vantaði svæfingahjúkrunarfræðing því sá sem vann hérna í mörg ár var alveg að fara á eftirlaun á þessum tíma. Það má því segja að valið hafi að hluta til ráðist af vöntun á svæfingahjúkrunarfræðingi á Ísafjörð og spítalinn studdi mig í að fara til Reykjavíkur í námið.“ Alltaf á bakvakt Sara kláraði diplóma árið 2018 og hefur síðan þá starfað sem svæfingahjúkrunarfræðingur, sá eini á Vestfjörðum, hvernig gengur það? ,,Ég er alltaf á bakvakt, alla daga og get ekki farið úr bænum nema fá afleysingu sem er mjög bindandi. En þetta er sem betur fer að breytast núna, ég er farin að fá reglulegar afleysingar eina viku í mánuði, um það bil, og þær sem voru með mér í svæfinganáminu hafa verið duglegastar að koma og leysa mig af. Það sem breytti stöðunni og auðveldaði mér mikið að fá fólk til að koma er að við fengum nýja svæfingavél í fyrra sem góðgerðarsamtökin Stöndum saman Vestfirðir, gáfu. Gamla vélin var allt öðruvísi en sú sem er á Landspítalanum en það flækir málin að vera með öðruvísi og eldri tæki. Ákveðið var að kaupa alveg eins vél og er á Landspítalnum því þegar tækin eru orðin kunnugleg þá er auðveldara að fá fólk til að koma hingað í afleysingar. Það er ekki svæfingalæknir á Vestfjörðum og eiginlega ekki grundvöllur fyrir því, nema þá í hlutastarfi, það er of lítið að gera eingöngu í svæfingum. Það kemur stundum svæfingalæknir hingað, sá er héðan og leysir af á heilsugæslunni og mig af í leiðinni. Venjulega vinna svæfingahjúkrunarfræðingar og svæfingalæknar mjög náið saman en þar sem hér er ekki svæfingalæknir alla jafna svæfi ég ekki fólk með flókin veikindi, við veljum hraust fólk sem fer í fyrir fram ákveðnar aðgerðir. Aðalástæðan fyrir því að hafa svæfingahjúkrunarfræðing á vakt eru bráðatilfellin, eins og til dæmis heilablæðingar, öndunarvegserfiðleikar, botnlangaaðgerðir, keisarar og endurlífganir. Í mörgum tilfellum er hlutverk mitt, ásamt samstarfsfólki, að sinna bráðveiku fólki á meðan beðið er eftir sjúkraflugi á Landspítalann,“ útskýrir Sara en hver er þá staðan þegar það verða slys eða óvænt bráðatilfelli í þessum landsfjórðungi sem nær yfir stórt svæði og langt í bráðaþjónustu Landspítalans? ,,Ég, skurðhjúkrunarfræðingar, læknar Viðtal
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.