Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 19
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 17 á sambýli og í kjölfarið langaði hann að fara í sjúkraliðanám en áttaði sig fljótlega á því að hann hefði ekki skrokk í að vera sjúkraliði. Hjúkrunarfræðin býður upp á ótal möguleika í starfi og það varð úr, eftir að hann byrjaði að vinna hérna á sjúkrahúsinu, að hann dreif sig í hjúkrun,“ útskýrir hún. Fæðing, kistulagning og bráðaaðgerð allt á sömu vakt Upplifir þú mikla pressu að vera eini svæfinga- hjúkrunarfræðingurinn í fjórðungnum eða er álagið sem því fylgir innan þolmarka? ,,Já, það er það. Líka vegna þess að mér finnst við starfsfólkið hérna á spítalanum vinna sem eitt teymi. Þess vegna upplifi ég ekki að ég standi ein þótt ég sé ein með þessa sérfræðiþekkingu. Það er góður starfsandi hérna hjá okkur sem skiptir öllu máli á svona litlum stað. Ég er stundum á sömu vaktinni að aðstoða við fæðingu, þarf svo kannski að fara niður í líkhús og kistuleggja og get síðan líka verið kölluð í aðgerð, allt sama daginn. Starfið er því mjög fjölbreytt en ástæðan fyrir því að við kistuleggjum hér er að það er engin útfararþjónusta á Ísafirði. Ef ég væri að vinna á stóru sjúkrahúsi væri ég ekki að vinna á skurðstofu, legudeild, slysadeild og fæðingardeild. Mér finnst frábært að fá að flakka á milli deilda og vinna fjölbreytt hjúkrunarstörf, þótt ég sé bráðahjúkka í mér finnst mér líka gaman að fá að fara á öldrunardeildina og spjalla við gamla fólkið þar og sinna því.“ Sara segir að fyrir fram ákveðnar aðgerðir á sjúkra- húsinu á Ísafirði séu um það bil hundrað á ári en svo séu líka bráðaaðgerðir gerðar sem geta verið fleiri eða færri en þær aðgerðir sem eru ákveðnar fyrir fram. ,,Til dæmis voru fjórir keisarar gerðir hér í febrúarmánuði árið 2020 sem er vanalega sá fjöldi sem við gerum á ári þannig að þetta getur verið mjög breytilegt,“ útskýrir hún. Þá að veirunni sem setti allt á annan endann; hvernig tókust þið á við kórónuveiruna, þegar ástandið var sem verst? ,,Það var svolítið langt tímabil þar sem við unnum í hópum svo smit myndi ekki dreifast út fyrir hópana og engar fyrir fram ákveðnar aðgerðir voru gerðar á þessu tímabili. Það eru allar einingar hjá okkur svo litlar og það þarf svo fá smit til þess að einingarnar verði óstarfhæfar. Til dæmis eru bara þrír starfsmenn á rannsóknarstofunni og þrír hjúkrunarfræðingar á skurðdeildinni og ef einn starfsmaður smitast er stór hluti af deildinni frá.“ Draumastaða að hafa annan hjúkrunarfræðing með sömu sérþekkingu Sara segist vilja vera áfram á Ísafirði en að draumastaðan væri ef það væri annar svæfinga- hjúkrunarfræðingur við spítalann sem gæti unnið á móti henni. ,,Ég myndi vilja vera í hlutastarfi á Landspítalanum líka, þegar ég byrjaði var ég það og fór þá í tvær vikur í senn annan hvern mánuð á Landspítalann sem gerði mér gott sem fagmanneskju. Ég finn að mig vantar að vinna með öðrum svæfingahjúkrunarfræðingum til að þróast í starfi því það er mikil þróun í lyfjum og öðru sem ég næ illa að fylgjast með þegar ég er ein. Ég samt í góðu sambandi við aðra svæfingahjúkrunarfræðinga á LSH sem ég get alltaf leitað til. Gott bakland er mikils virði og ég er vel sett að því leytinu til. Skurðlæknirinn hérna á Ísafirði var lengi deildarlæknir á svæfingu og það er mikið öryggi fyrir mig að hafa hann og hans þekkingu að leita í. Ég fékk líka að ráða hjúkrunarfræðing í hlutastarf sem er mér til aðstoðar á skurðstofunni því það getur verið erfitt að vera ein við vissar aðstæður. Skurðhjúkrunarfræðingarnir hérna eru mér líka innan handar því þær hafa ákveðna þekkingu þegar kemur að svæfingum. Ég held að á flestum minni sjúkrahúsum sé þetta oft þannig að fagfólkið hefur breiðari þekkingu og starfar á fleiri en einni deild eins og ég geri sem gerir starfið mjög fjölbreytt og skemmtilegt.“ Ef þú ætlaðir að mennta þig meira innan hjúkrunar, hvaða nám myndir þú velja og hvers vegna? ,,Ég myndi velja gjörgæsluhjúkrun. Mér finnst það vera mjög rökrétt framhald af því sem ég er búin að læra. Gjörgæsluhjúkrun er líka mjög gagnlegt nám og góð þekking að hafa þegar maður starfar úti á landi, þótt vissulega sé ekki gjörgæsla hér, því við höfum hvorki fagfólk né tæki til þess, þá þurfum við oft að geta sinnt okkar sjúklingum á meðan við bíðum eftir flutningi á Landspítala, eða í einstaka tilfellum á Sjúkrahúsið á Akureyri,“ segir hún að endingu og við kveðjumst enda liðið á daginn og Sara þarf að komast heim eftir langa vakt. Viðtal

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.