Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 21

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 21
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 19 þá fær hann ekkert að gera fyrr en hann hefur verið tékkaður af með hjúkrunarkennara sem sér um gæðaeftirlit. Þetta á líka við um einföldustu verk eins og að setja upp nál eða þvaglegg. Þegar tekið er á móti nýjum sjúklingi þarf svo að fara í gegnum fimm til tíu tékklista og það er strangt að því sé fylgt eftir. En hérna eru engir sjúkraliðar á bráðamóttökum og varla innan spítalans þannig að við göngum í öll þau störf líka. Á móti kemur að það eru færri sjúklingar á hvern hjúkrunarfræðing, þeir halda fast í þau mönnunarviðmið sem hér eru og til að mynda er einn hjúkrunarfræðingur á hverja fjóra sjúklinga á almenna svæðinu á bráðamótttökunni. Það er einn hjúkrunarfræðingur með einn til tvo sjúklinga í endurlífgunarherbergjum og hver hjúkrunarfræðingur er með fjóra til sex sjúklinga á skammverueiningu. Teymisvinna er mikilvæg og við hjálpumst mikið að hérna á bráðamóttökunni. Mönnunarviðmiðin númer eitt, tvö og þrjú Gunnar segir að helsti kosturinn við heilbrigðiskerfið í Ástralíu sé sá að almenna kerfið sé algjörlega ókeypis. ,,Ég hef persónulega þurft að nota heilbrigðiskerfið hérna og hef ekki borgað krónu fyrir. Hérna er líka blandað kerfi þannig að einkageirinn tekur vissan þunga af almenna kerfinu, þannig náum við oft að leggja sjúklinga beint inn á einkaspítalann af bráðamóttökunni sem hjálpar heilmikið til þegar spítalinn er sprunginn. Þetta var okkur mikil hjálp þegar heimsfaraldurinn stóð sem hæst.“ Hann segir að starfsfólkið sé vel menntað og þjálfað, tækjabúnaðurinn sé til fyrirmyndar, (að minnsta kosti á stóru sjúkrahúsunum), og flæðið tiltölulega gott. ,,Verkferlar eru skilvirkir og rík áhersla er lögð á öryggi sjúklinga, eins og til að mynda byltuvarnir, smitvarnir, meðhöndlun ofbeldisfullra sjúklinga og þar fram eftir götunum. Ókostirnir eru að hérna er almennum hjúkrunar- fræðingum ekki veitt jafnmikið frelsi til að beita klínískri þekkingu eins og heima á Íslandi. Öll almenn hjúkrunarstörf eru fast bundin í nákvæma verkferla, án svigrúms til að beita klínískri þekkingu. Til dæmis ef sjúklingur er með brjóstverk þá er strax kallað til viðbragsteymi, eins ef púls fer upp í 122 í nokkrar sekúndur þá er strax kallað til endurlífgunarteymi. Annað sem ég hef tekið eftir er að það virðist sem nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar hérna hafi ekki hafa mikla verklega þekkingu þótt sú bóklega sé mikil. Þetta skapar verulegt óöryggi,“ segir hann. En telur Gunnar að við Íslendingar ættum að taka okkur eitthvað til fyrirmyndar þegar kemur að heilbrigðisþjónustu og störfum hjúkrunarfræðinga í Ástralíu? ,,Já, ef ég á að nefna eitthvað þá eru það mönnunarviðmiðin númer eitt, tvö og þrjú,“ svarar Gunnar án umhugsunar. ,,Launin hérna eru svipuð og á Íslandi og jafnvel mun lægri en á móti kemur að starfsánægjan virðist vera meiri hérna. Það er vegna þess að starfsfólkið er ekki eins útkeyrt eftir vaktirnar því það heldur yfirleitt sama sjúklingafjölda gegnum vaktirnar sem gefur því meiri tíma til að klára þau verk sem þarf að klára. Það er gríðarlegur munur þegar við erum tveir hjúkrunarfræðingar, ásamt hópstjóra með aðeins átta sjúklinga, fá að halda þeim fjölda og passa vel upp á að allir komist í matartíma á réttum tíma og fái viðeigandi aðstoð á vaktinni. Og það má bæta því við að hérna er starfsfólkið ekki að keyra sig út á aukavöktum.“ ,,Launin hérna eru svipuð og á Íslandi og jafnvel mun lægri en á móti kemur að starfsánægjan virðist vera meiri hérna. Það er vegna þess að starfsfólkið er ekki eins útkeyrt eftir vaktirnar …“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.