Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 25
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 23
„Þetta hefur verið miklu
erfiðara en ég bjóst við og
það hefur tekið mig langan
tíma að aðlagast starfinu.“
að sameina áhuga minn á gjörgæsluhjúkrun og
ljósmóðurfræðum.
Hvaða sjúklingahóp sinnið þið á deildinni?
Nýburagjörgæsla er fyrir veika nýbura og
litla fyrirbura niður í viku 22. Það eru nokkrar
nýburagjörgæslur í Stokkhólmi og sú sem ég vinn á
sérhæfir sig í minnstu fyrirburunum og fyrirburum
sem þurfa að fara í kviðarholsaðgerð.
Var tungumálið hindrun?
Ég var fljót að ná sænskunni. Ég kunni aðeins norsku
og dönsku þegar ég fór út og náði að bjarga mér á
skandinavísku. Til að læra sænskuna sem best henti
ég mér bara í djúpu laugina og byrjaði að reyna að
tala hana. Það gekk mjög hratt fyrir sig og það leið
ekki langur tími þar til ég skildi nánast allt sem sagt
var og fólk skildi mig sömuleiðis. Tungumálið var því
engin hindrun.
Áttu skemmtilega sögu af misskilningi vegna
tungumáls?
Já, vegna reynslu minnar af hjúkrun COVID-19
sjúklinga heima á Íslandi var var ég send á COVID-
hágæsludeild í tvo mánuði síðasta vetur. Þar varð
skemmtilegur misskilningur milli mín og eins
sjúklings. Ég hélt að ,,ingen aning“ þýddi ,,það var
svo lítið“ en í raun þýðir það ,,ég hef ekki hugmynd“.
Ég sagði það nokkrum sinnum við sjúklinginn minn
á einni næturvaktinni en var grunlaus um að ég væri
sífellt að segjast ekki hafa hugmynd. Það var ekki
fyrr en sjúkraliðinn sem var með mér talaði við mig
um þetta að ég fattaði misskilninginn. Ég fór þá og
útskýrði þetta fyrir sjúklingnum og við hlógum mikið.
Er öflug teymisvinna á deildinni sem þú starfar?
Já, mjög öflug teymisvinna, sérstaklega á milli
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Hér eru sjúkraliðar
með mjög mikla ábyrgð. Hjúkrunarfræðingar vinna
náið með sjúkraliðum saman í teymi með tvo
sjúklinga. Svo er auðvitað líka góð teymisvinna við
aðrar starfsstéttir á deildinni þar sem ég er.
Hvernig hefur gengið að aðlagast starfinu?
Þetta hefur verið miklu erfiðara en ég bjóst við og
það hefur tekið mig langan tíma að aðlagast starfinu.
Deildin er krefjandi og hjúkrunarfræðingar bera
mikla ábyrgð. Núna er rúmlega ár síðan ég flutti
hingað og ég upplifi mig enn þá frekar nýja í starfi. Ég
Viðtal