Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 26
24 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021
Viðtal
ráðfæri mig mikið við reyndari hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða. Það góða og jákvæða við þetta allt saman
er hvað allir sem ég vinn með eru hjálpsamir, hafa
verið í sömu sporum og skilja mig mjög vel.
Er starfsumhverfið í Svíþjóð, þar sem þú starfar
núna, ólíkt því sem þú þekkir frá á Íslandi?
Það kom mér á óvart að það eru svipuð vandamál
hér og heima á Íslandi. Það vantar sárlega
hjúkrunarfræðinga, laun eru lág miðað við aðrar
stéttir með sambærilegt háskólanám og álagið er
mikið. Ég fæ skilaboð þar sem ég er spurð hvort ég
komist á aukavakt nánast daglega.
Er mikið unnið eftir verkferlum og
gæðaskjölum?
Já svo sannarlega, Svíar elska verkferla og gæða-
skjöl sem er mjög þægilegt fyrir mig þar sem ég
er ný í starfi. Það er auðvelt aðgengi að góðum
leiðbeiningum á öllum ferlum og verkum hérna sem
er gott.
Hvernig hafa vinnufélagarnir tekið þér?
Vinnufélagarnir hafa tekið mér mjög vel og ég hef
eignast góðar vinkonur í vinnunni sem ég hitti líka
reglulega utan vinnu. Deildin hittist líka stundum öll
saman utan vinnutíma. Svíar eru mjög skipulagðir og
tímanlega í öllu en þann 21. október fengum við boð
um drykk eftir vinnu þann 13. janúar 2022.
Hvernig er maturinn í mötuneytinu?
Svíar koma allir með nesti að heiman í glernestis-
boxum og því fer enginn í matsalinn í hléum. Fyrir
slugsa eins og mig er sjálfssali sem selur ágætan
frosinn mat. Ég fæ reglulega athugasemdir um að ég
þurfi að vera duglegri að koma með nesti í boxi og
hætta að borða frosinn sjálfssalamat.
Mælir þú með því að hjúkrunarfræðingar sem
starfa á Íslandi prófi að flytja og starfa við fagið
í öðrum landi?
Þetta hefur verið ótrúlega erfitt og krefjandi og ég
hef oft efast um þessa ákvörðun mína. Á sama tíma
hef ég lært svo ótrúlega margt þannig að ég mæli
heilshugar með því að stökkva til og prófa, bæði til
að kynnast annarri sjúkrahúsmenningu og læra nýja
hluti.
Eitthvað sem þú saknar sérstaklega frá Íslandi?
Ég sakna fjölskyldunnar, vina minna og ég á líka kött
sem ég sakna en ef ég á að nefna eitthvað annað þá
er það bragðarefurinn á Vesturbæjarís.
„Það vantar sárlega hjúkrunar-
fræðinga, laun eru lág miðað við
aðrar stéttir með sambærilegt
háskólanám og álagið er mikið.“