Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 28
26 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021
Fréttir frá kjara- og
réttindasviði Fíh
Í dag starfa hjúkrunarfræðingar á fjórum
kjarasamningum þar sem viðsemjendur
eru fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs (ríkið),
Samband íslenskra sveitarfélaga (SNS),
Reykjavíkurborg og Samtök fyrirtækja
í velferðarþjónustu (SFV). Launaröðun
samkvæmt kjarasamningum Reykja-
víkurborgar og SNS byggja á starfsmati
og þess vegna eru ekki gerðir sérstakir
stofnanasamningar við þá. Gerðir eru
stofnanasamningar milli Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga (Fíh) og einstakra
stofnana hjá ríki og SFV og eru þeir hluti
af kjarasamningi. Þeim er meðal annars
ætlað að tryggja launaþróun og stuðla
að skilvirkara launakerfi sem tekur mið
af þörfum og verkefnum sérhverrar
stofnunar og starfsfólks hennar.
Með úrskurði gerðardóms frá 1. september 2020
fékk Fíh það verkefni að útdeila fjármununum
sem dómurinn úrskurðaði að ríkið skyldi leggja
viðkomandi stofnunum til og skyldi það gert með
endurnýjuðum stofnanasamningum. Í kjölfar
úrskurðarins hófst sú vinna.
Fíh hefur nú þegar lokið við gerð allra stofnana-
samninga við ríkisreknar stofnanir en þær eru
Landspítali, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins,
Sjúkrahúsið á Akureyri, Embætti landlæknis,
Sjúkratryggingar Íslands og Lyfjastofnun Íslands
ásamt þeim sex heilbrigðisstofnunum sem
staðsettar eru úti á landsbyggðinni. Þessar
sex heilbrigðisstofnanir eru Heilbrigðisstofnun
Austurlands, Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og
Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Mikil vinna var
lögð í að samræma stofnanasamninga sem
Vinnu við gerð stofnanasamninga er að ljúka
gerðir voru við heilbrigðisstofnanir á lands-
byggðinni. Það var yfirgripsmikið verk þar sem
þeir voru um margt ólíkir í grunninn. Þegar nýr
stofnanasamningur liggur fyrir fellur eldri samningur
úr gildi og er hjúkrunarfræðingum endurraðað
samkvæmt fyrirliggjandi forsendum og gildir
launaröðun frá gildistöku samningsins. Við gerð
stofnanasamninganna var lögð áhersla á að bæta
kjör almennra hjúkrunarfræðinga og var það gert
samkvæmt ábendingu úr gerðardómnum en þar segir
meðal annars að; ,,brýnast sé að bæta kjör almennra
hjúkrunarfræðinga með tilliti til ábyrgðar fremur en
þeirra sem gegna stjórnunarhlutverki eða eru í stöðu
sérfræðinga.“
Auk þess að gera stofnanasamninga við ríkisreknar
stofnanir, eru gerðir slíkir samingar við stofnanir/
fyrirtæki sem eru aðilar að kjarasamningi SFV. Nú
þegar hefur verið lokið við að gera stofnanasamninga
við Dalbæ, Grundarheimilin, Hjúkrunar- og
dvalarheimilið Lund á Hellu, Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands, Hrafnistuheimilin,
Krabbameinsfélag Íslands, MS setrið, SÁÁ, Sjálfs-
bjargarheimilið, Sóltún og Sólvang. Einungis á
eftir að ljúka við gerð stofnanasamninga við örfáar
stofnanir en þær eru hjúkrunarheimilin Eir, Hamrar
og Skjól, Fellsendi, Hornbrekka, Múlabær/Hlíðabær,
Reykjalundur og Vigdísarholt.
Það fjármagn sem gerðardómur úrskurðaði nam
um 2% að meðaltali af launakostnaði hverrar
stofnunar að meðtöldum launatengdum gjöldum.
Niðurstaða gerðardóms var mikil vonbrigði og
augljóst að fjárhæðin dygði ekki til þess að leiðrétta
laun hjúkrunarfræðinga til samræmis við aðrar
viðmiðunarstéttir eða tryggja að þeir fengju laun
í samræmi við ábyrgð í starfi eins og bent var á í
gerðardómnum. Rétt er að benda á að yfirleitt fylgir
ekki fjármagn með við gerð stofnanasamninga þar
sem þeir eru hluti af miðlægum kjarasamningi. Nú er
þessari vinnu við endurnýjun stofnanasamningana
að ljúka.
Kjara- og réttindasvið Fíh
Texti: Jón Tryggvi Jóhansson Jón Tryggvi Jóhansson,
sviðsstjóri kjara- og réttindasviðs
Eva Hjörtína Ólafsdóttir,
kjararáðgjafi