Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 29
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 27
Sóttkví í orlofi
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) telur það
skýrt að hjúkrunarfræðingar eiga ekki að nota
orlofsdaga þá daga sem þeir eru í sóttkví. Dæmi
eru um að ríkisstofnanir hafi túlkað það þannig að
umræddur tími í sóttkví teljist til orlofs, óháð því
hvort viðkomandi hafi tilkynnt sóttkví eður ei. Fíh
og önnur heildarsamtök og stéttarfélög opinberra
starfsmanna hafa óskað eftir því að stjórnvöld
tryggi að starfsfólk ríkisstofnana þurfi ekki að nota
orlofsdaga þurfi það að fara í sóttkví í orlofi sínu.
Fíh, ASÍ, BSRB, BHM, KÍ og LÍ hafa sent sameiginlegt
erindi á kjara- og mannauðssýslu ríkisins vegna
réttarstöðu starfsfólks sem gert er að sæta sóttkví í
orlofi sínu.
Fíh og önnur heildarsamtök og stéttarfélög opinberra
starfsmanna hafa óskað eftir því að stjórnvöld
tryggi að starfsfólk ríkisstofnana þurfi ekki að nota
orlofsdaga þurfi það að fara í sóttkví í orlofi sínu.
Í sameiginlegu bréfi Fíh, heildarsamtaka og
stéttarfélaga til Kjara- og mannauðssýslu ríkisins
er bent á að borið hafi á því að ríkisstofnanir
neiti að breyta orlofsskráningu starfsfólks
hafi það þurft að sæta sóttkví að fyrirmælum
heilbrigðisyfirvalda, meðan á sumarorlofi
stendur. Rökstuðningur stofnana fyrir því er að
farið sé eftir svörum Kjara- og mannauðssýslu
ríkisins. Undir bréfið ritaði forsvarsfólk Fíh,
Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna,
Kennarasambands Íslands, BSRB og Læknafélags
Íslands.
„Finna má fjölmörg dæmi þar sem ríkisstofnanir hafa
svarað starfsfólki sínu þannig að umræddur tími í
sóttkví teljist til orlofs, óháð því hvort viðkomandi
hafi tilkynnt um sóttkví eður ei, líkt og ber að gera
vegna veikinda í orlofi. Þessari túlkun erum við
ósammála og teljum að við þessar aðstæður eigi
starfsfólk rétt á því að fresta orlofstöku sinni og ljúka
henni í samráði við vinnuveitanda eins fljótt og hægt
er eftir að sóttkví lýkur,“ segir meðal annars í bréfinu.
Í bréfinu er óskað eftir því að Kjara- og
mannauðssýsla ríkisins endurskoði afstöðu sína
og upplýsi ríkisstofnanir um þá breytingu, enda
samræmist núverandi túlkun hvorki lögum né
ákvæðum kjarasamninga.
Það er mat Fíh og annarra samtaka launafólks að
sóttkví í orlofi megi jafna við veikindi í orlofi. Þar
er skýrt að veikist starfsfólk í orlofi telst sá tími sem
það er veikt ekki til orlofs. Þá er bent á að niðurstaða
Kjara- og mannauðssýslu ríkisins samræmist ekki
markmiðum laga um tímabundnar greiðslur vegna
launa einstaklinga í sóttkví. Með því að halda
orlofsskráningu til streitu sé komið í veg fyrir að
starfsfólkið geti sótt um greiðslu launa í sóttkví.
Óskað er eftir formlegri afstöðu og viðbrögðum Kjara-
og mannauðssýslu ríkisins til málsins. Félögin vilja
reyna að ná farsælli niðurstöðu sem fyrst.
„Þess skal getið að mál sem þessi eru í síauknum
mæli að valda starfsfólki sem og stéttarfélögum
erfiðleikum vegna óskýrra skilaboða sem
og síbreytilegra reglna ríkisstofnana og því
nauðsynlegt að bregðast við sem fyrst,“ segir í
bréfi heildarsamtakanna og verkalýðsfélaganna. Þar
segir jafnframt að náist ekki farsæl niðurstaða í þessu
máli geti reynst nauðsynlegt að fá úr því skorið fyrir
dómstólum.
Bréf Fíh og annarra samtaka launafólks til Kjara- og
mannauðssýslu ríkisins má finna í frétt á hjukrun.is
Kjara- og réttindasvið Fíh
Texti: Harpa Júlía Sævarsdóttir
Harpa Júlía Sævarsdóttir,
sérfræðingur í kjaramálum