Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Side 37
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 35
HJÚKRU
N
AR
FR
Æ
ÐINEMINN SITUR FYRIR SVÖRUM
Helga Jóhannsdóttir
?
Eftirminnilegasti kennarinn ætti að fá
Óskarinn fyrir leikþætti í færnisetrinu
Nafn: Helga Jóhannsdóttir, nemi á fjórða ári.
Aldur: 25 ára
Hvers vegna valdir þú hjúkrunarfræði?
Ég er mjög mikill hrakfallabálkur og hef þess vegna þurft að heimsækja
heilbrigðisstofnanir frá því að ég man eftir mér, auk þess fannst mér
búningarnir sem hjúkrunarfræðingarnir voru í svo flottir, það var því ekki
aftur snúið, ég ákvað að fara í hjúkrun.
Skemmtilegasta fagið?
Heilsugæsla og samfélagið.
Eitthvað sem hefur komið á óvart í náminu?
Hvað það er virkilega krefjandi en skemmtilegt á sama tíma.
Hvað, ef eitthvað, finnst þér vanta í námið?
Það eru samskiptaáfangar í náminu sem eru gríðarlega mikilvægir.
Þeir mættu vera fleiri, eða gera þá stærri. Mér finnst slíkir áfangar gera
svo mikið fyrir skjólstæðinga heilbrigðiskerfisins og þeir hvetja líka til
einstaklingsbundinnar hjúkrunar.
Eftirminnilegasti kennarinn?
Þorsteinn Jónsson fær þennan heiður, hann hefur óbilandi trú á öllum
nemendum. Einnig ætti hann að fá Óskarinn fyrir leikþætti sína í
færnisetrinu.
Önnur menntun, lærðir þú eitthvað annað áður en þú ákvaðst að
fara í hjúkrun?
Nei, stefnan hefur alltaf verið á hjúkrun.
Fyrirmyndir í lífinu og/eða hjúkrun?
Ég lifi við þau forréttindi að hafa margar fyrirmyndir í mínu lífi. Foreldrar
mínir eru klárlega þær manneskjur sem ég lít hvað mest upp til, bróðir
minn hefur líka kennt mér margt. Ömmur mínar eru valkyrjur en önnur
þeirra setti Íslandsmet í hástökki 70 ára og eldri um árið, hún er alveg
mögnuð manneskja.
Draumastarfið?
Heilsugæsluhjúkrun, forstjóri jafnvel. Veit ekki alveg en ég hef háleit
markmið.
Hvað heillar þig mest við hjúkrunarfræði?
Klárlega hvað hjúkrunarfræðin er fjölbreytt, þú getur algjörlega fundið
eitthvað við þitt hæfi og getur nánast verið viss um að fá vinnu í hvaða
heimshorni sem er.
Mælirðu með þessu námi?
Ég mæli 100% með þessu námi, þetta er fjölbreytt, krefjandi og
skemmtilegt nám sem hefur átt sinn þátt í því að móta mig sem
einstakling. Það er ekki bara þetta klíníska nám, heldur lærir maður líka
mikið í mannlegum samskiptum.
Besta nestið?
Þegar ég gleymi nestinu heima og næli mér í kjúklingasalat í Hámu.
Hvernig slakar þú á eftir erfiðan dag?
Ég á mjög góðan sófa þar sem ég slaka vel á.
Uppáhaldshreyfingin?
Það er síbreytilegt, ég hef gaman af því að fara út að skokka og hlusta þá
á gott hlaðvarp í leiðinni. Ég er svo farin að mæta á íshokkíæfingar fyrir
byrjendur og það er með því skemmtilegra sem ég hef gert.
Þrjú stærstu afrek þín í lífinu hingað til
Næla mér í algjöran súkkulaðibita af manni og eignast tvær gullfallegar
dætur með honum.
Hvað gerir þú fyrir umhverfið?
Flokka rusl, nota fjölbreyttan ferðamáta, það er að segja ég nota
ekki bílinn þegar áfangastaðurinn er í göngufæri og nota einnig
almenningssamgöngur. Ég er mjög meðvituð um neysluvenjur, fer ekki
svöng í búðina og forðast þannig að kaupa of mikið og henda ónýtum
mat.
Hvað gleður þig mest?
Fjölskyldustund á föstudegi eftir langa viku, heimgerð pítsa, popp og
bíómynd.
Hvað hryggir þig helst?
Þegar þeir sem eru mér nákomnir eiga í erfiðleikum.
Uppáhaldsveitingastaður?
Ég á mér engan uppáhaldsveitingastað en þegar ég fer heim þarf ég að fá
mér brauðstangir með bernaise-sósu á Greifanum á Akureyri.
Fallegasta borg sem þú hefur heimsótt?
Munich í Þýskalandi fær þann heiður en St. Petersburg hefur sína kosti
líka.
Besti bar fyrir hamingjutíma?
Götubarinn á Akureyri er einstaklega kósí.
Dýrmætasti hlutur sem þú átt?
60 ára gamall skápur sem amma mín
fékk í fermingargjöf
Ef ekki hjúkrunarfræðingur hvað
þá?
Ég kem af mikilli kennaraætt, ætli
ég hefði ekki orðið íþróttakennari
eins og pabbi gamli ef ég hefði ekki
farið í hjúkrun.
Hvernig myndir þú lýsa þér í
einni setningu?
Ég myndi nota veðurlýsingu:
Mjög bjart á köflum, heiðskýrt
og stillt en skýjað inn á milli
með stöku skúrum.
Hjúkrunarfræðineminn