Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Qupperneq 40
38 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021
Viðtal
Upplifir þú vanþekkingu almennt á hversu
alvarlegar afleiðingar sálrænna áfalla geta verið
á heilsu þeirra sem fyrir þeim verða?
„Það hafa orðið mjög miklar breytingar á síðustu
tíu til tuttugu árum. Þegar ég byrjaði að vinna mína
meistararannsókn, sem ég lauk við 2007, var almennt
mjög lítil þekking, sérstaklega hvað varðar líkamlegar
heilsufarslegar afleiðingar, það var nánast ekkert
til um það hér á landi. Það var meiri þekking tengd
áfallastreituröskun og geðrænum afleiðingum. Ég
finn bara á aðsókninni í mín námskeið að það hefur
orðið gríðarleg vakning og aukinn áhuga á afleiðingum
sálrænna áfalla. Almennt er þó ákveðin vanþekking,
sérstaklega meðal einstaklinga sem átta sig ekki á því
að þetta geti verið möguleiki, hafa ekki sótt námskeið
eða lesið sig til um þetta. Það hafa nokkur hundruð
manns sótt mín námskeið og aðsóknin er alltaf að
aukast, sérstaklega í námsleiðina sem við erum með í
Háskólanum á Akureyri, þá komast stundum færri að
en vilja vegna fjöldatakmarkanna þar. Við þurfum að
fara í allsherjar vitundarvakningu og fara að taka mið af
þessu þegar við tölum um langa biðlista hér og þar og að
ákveðnar deildir séu að springa. Spurning um að fara að
taka upp áfallamiðaða nálgun og vinna út frá því, ég er
nokkuð viss um að það hefði mjög mikil áhrif.“
Hver er besta forvörnin svo sálræn áföll nái ekki
að stjórna lífi og líðan þeirra sem fyrir þeim
verða?
„Besta forvörnin að mínu mati væri að innleiða
áfallamiðaða nálgun inn í öll kerfi. Að byrja strax í
móðurkviði með skimun fyrir áföllum og fræðslu til
verðandi foreldra, ljósmæður eru kannski komnar
hvað lengst af okkur í þeirri vinnu og eru mjög góðar
fyrirmyndir. Það þarf fræðslu til allra skólastarfsmanna,
frá leikskólakennurum og starfsfólki þar upp í
framhaldsskóla. Áfallamiðuð nálgun gengur meðal
annars út á að fræða fólk um áföll, tíðni, einkenni,
afleiðingar o.fl. og lögð áhersla á að allt starfsfólk fái
slíka fræðslu, s.s. í skólum. Einnig þeir sem vinna í
mötuneyti, við ræstingar og húsvörslu því það geta
verið einstaklingar sem börn í vanda leita til. Fræðsla og
skimun, það er til dæmis mjög einfalt að leggja fyrir s.k.
ACE-lista (Adverse Childhood Experience) til að skima
fyrir erfiðri reynslu og áföllum í æsku. Við leggjum þann
lista til dæmis fyrr öll ungmenni í Berginu headspace þar
sem við höfum innleitt áfallamiðaða nálgun,“ útskýrir
Sigrún.
Hvar má nálgast upplýsingar um næstu
námskeið?
„Næsta námskeið til eininga á framhaldsstigi verður
haustið 2022 í Háskólanum á Akureyri, svo verð
ég með styttra námskeið í Endurmenntun HÍ 17.
nóvember, ég hef verið með fjögur styttri námskeið á
ári hjá Endurmenntun HÍ síðan 2019. Svo er ég búin
að bjóða Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga að vera
með námskeiðið hjá þeim, fyrir hjúkrunarfræðinga og
einnig bauð ég nýjum formanni KSÍ að fá námskeið fyrir
knattspyrnuhreyfinguna. Það er margt í gangi og margir
sem hafa samband og vilja fræðslu um sálræn áföll.“
Áfall þarf ekki að hafa alvarlegar heilsufarslegar
afleiðingar
„Ég vil hvetja fólk til að kynna sér áfallamiðaða nálgun,
það er einfalt að innleiða hana, miðað við margt annað
og hún getur skilað svo ótrúlega miklum árangri.
Áfallamiðuð nálgun getur einnig virkað vel til að koma
í veg fyrir, eða til að vinna með, kulnun sem tengist
„secondary traumatic stress“ sem eru áföll sem fólk
verður fyrir í starfi án þess endilega að átta sig á því.
Einnig hvet ég fólk til að leita sér hjálpar og úrvinnslu,
því það að verða fyrir áfalli þarf ekki að hafa alvarlegar
heilsufarslegar afleiðingar, bara ef það er unnið úr
áfallinu, hvort sem er í viðtalsmeðferð, áfallamiðuðu jóga
eða með öðrum leiðum. Hver og einn þarf að finna sína
leið, það er ekkert eitt sem hentar öllum og mikilvægt að
finna úrvinnslu sem hentar hverjum og einum. En þess
má geta að margar samþættar meðferðir eru að komar
sterkar inn,“ segir Sigrún að endingu.
,, Besta forvörnin að mínu
mati væri að innleiða
áfallamiðaða nálgun inn í öll
kerfi.”