Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 56

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 56
54 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021 Eigindlegar rannsóknir – Áhrif á líkamlega og sálfélagslega líðan Í öllum þremur eigindlegu rannsóknunum voru skoðuð viðhorf einstaklinga til veittrar dansmeðferðar og sálfélagslegrar líðanar eftir dansmeðferð. Notast var við hálfstöðluð viðtöl sem greind voru með efnisgreiningu (Beerenbrock o.fl., 2020), hálfstöðluð viðtöl og þemagreiningu með notkun Nvivo (Kunkel o.fl., 2018) og grundaða kenningu (Rocha o.fl., 2017). Í rannsókn Beerenbrock og félaga (2020) tóku einstaklingar með PS þátt í vikulegum 1,5 klukkustunda danstíma með argentínskan tangó, alls 15 klukkustundir. Inngripið fól í sér upphitun og gerðar voru æfingar með því markmiði að efla samhæfingu hreyfinga og örva vitræna getu. Áhersla var lögð á að draga athygli frá eigin sjúkdómsástandi. Áhrif dansmeðferðar var skipt í: (1) Líkamsvitund, (2) Upplifun á hreyfigetu, (3) Tilfinningaleg líðan, (4) Tilfinningar í garð eigin líkama, (5) Tilfinningar varðandi sjúkdómsástand og (6) Öryggi við göngulag. Einstaklingar með PS upplifðu minni líkamlega þreytu, kvíða, skömm og vonbrigði gagnvart sjálfum sér eftir meðferðina. Jafnframt jókst gleði, stolt, forvitni og áhugi á þátttöku. Áhrif þess að dansa hafði jákvæð áhrif á líkamsvitund, stjórn á eigin líkama og sálfélagslega líðan. Jafnframt tóku dansfélagar eftir jákvæðum breytingum á líkamlegri líðan hjá dansfélögum sínum með PS. Í rannsókn frá Kunkel og félögum (2018) var boðið upp á blandaðan dans í klukkustundar danstíma í senn, tvisvar í viku, í alls 20 klukkustundir. Síðan var rætt við þátttakendur um viðhorf þeirra. Niðurstöðum var skipt í fjóra flokka: (1) Viðhorf til þess að dansa við maka eða sjálfboðaliða, (2) Áskoranir/erfiðleikar sem tengjast dansmeðferð, (3) Upplifun á því að vera dansfélagi og (4) Viðhorf til þess að halda dansmeðferð áfram. Einstaklingar með PS upplifðu aukna ánægju ef þeir þekktu dansfélaga sinn eða ef þeim líkaði við hann. Karlmönnum sem tóku þátt þótti sérstaklega erfitt að geta ekki leitt dansinn. Dansfélagar sem tóku þátt nutu félagslegu samskiptanna og þótti ánægjulegast að geta dansað við maka eða aðstandendur. Ef dansað var við sjálfboðaliða var mikilvægt að sá aðili hefði reynslu í dansi, sýndi einlægan áhuga á dansinum og væri félagslega fær. Mikilvægt var einnig að fá aðstoð við að komast á vettvang og hafa gott bílastæðaaðgengi. Sú rannsókn er sú eina þar sem tekið var fram hver upplifun þátttakenda var af danskennurum. Mikilvægt var að danskennarinn þekkti einkenni PS. Í síðustu eigindlegu rannsókninni söfnuðu Rocha og félagar (2017) upplýsingum í gegnum spjallþráð um dans á netinu hjá einstaklingum með PS sem höfðu tekið þátt í dansmeðferð í óskilgreindan tíma. Niðurstöðunum var skipt í fjóra flokka sem ná yfir atriði sem þarf að taka tillit til þegar verið er að skipuleggja skilvirka dansmeðferð: (1) Tillit til sjúkdómsstigs, (2) Fjölbreytt áhrif dansmeðferðar, (3) Vandað val á tónlist og (4) Valdar fýsilegar leiðir til danshreyfinga. Niðurstöður vörpuðu ljósi á mikilvægi þess að huga vel að sjúkdómsstigi og hreyfigetu þátttakenda þegar dansmeðferð er útfærð. Mikilvægt er einnig að vanda val á tónlist, til að mynda hvað varðar hraða, svo meðferðin verði fýsileg og hvetjandi. Einstaklingum með væg til miðlungs alvarleg sjúkdómseinkenni fannst óhentugt að vera í danstíma með einstaklingum sem voru með langt genginn PS. Meðferðin hafði víðtæk jákvæð áhrif á sálfélagslega líðan. Sterkur taktur í tónlistinni hjálpaði þegar einstaklingar upplifðu tilhneigingu til þess að ,,frjósa“ og þótti þeim kunnugleg tónlist vera hvetjandi. Tónlist með texta gat truflað vegna þess að athygli fór frá framkvæmd hreyfinga. Einnig kom fram mikilvægi þess að danskennari væri með sérþekkingu á PS og að góður dansfélaga væri mikilvægur til að halda jafnvægi og auka öryggistilfinningu. Fýsileikarannsóknir – Hjálplegir þættir og áskoranir Í fýsileikarannsóknunum sex voru teknar út upplýsingar varðandi hvetjandi og hindrandi þætti sem tengdust dansmeðferð. Hjálplegir þættir Ein rannsókn tók fram að við útfærslu dansmeðferðar þurfti að tryggja að þátttakendur myndu dansa bæði sem leiðendur og sem fylgjendur og að slík skipting skilaði ávinningi (Seidler o.fl., 2017). Rannsóknir Michels og félaga (2018) og Rocha og félaga (2018) lýstu því að jafnvel stutt dansmeðferð var álitin ánægjuleg og örugg. Allir þátttakendur sögðust mæla með meðferðinni fyrir aðra einstaklinga með PS og aðstandendur þeirra og að ánægja sem þátttakendur upplifðu við að dansa var hjálplegur þáttur fyrir meðferðarheldni almennt. Af þremur rannsóknum sem könnuðu fýsileika heimaæfinga samhliða hópæfingum voru myndbandsupptökur notaðar til stuðnings við heimaæfingar. Ein rannsóknin lýsti góðri meðferðarheldni við heimaæfingar, auk þess að þátttakendur greindu frá því að sambland af hóp- og heimaæfingum hafi komið sér vel (Rocha o.fl., 2018). Meðferðarheldni jókst ef skilaboð af einhverju tagi voru send til að minna á æfingarnar (Shanahan o.fl., 2017). Gagnlegt var að hafa dansæfingar heima en þær virðast ekki geta komið fyllilega í staðinn fyrir dansmeðferð á vettvangi. Sérstakur kostur við heimadansæfingar var minni kostnaður við útfærslu (Albani o.fl., 2019). Ein rannsóknanna fjallaði sérstaklega um útfærslu dansmeðferðar með fjarfundarbúnaði, en þar tóku skjólstæðingar þátt í hópmeðferð í gegnum Internetið sem leidd var af danskennara (Seidler o.fl., 2017). Rannsóknin gaf til kynna að notkun fjarfundarbúnaðar væri fýsileg og með slíkum búnaði væri jafnvel hægt að bæta félagslega virkni ef það væri skipulagt á réttan hátt. Allar rannsóknirnar unnu með tónlist samfara dansmeðferð og ávallt var notast við taktfasta tónlist af einhverju tagi. Þátttakendum fannst hjálplegt að dansinn væri taktfastur, orkumikill og félagslegur. Aðeins þrjár þeirra tóku hins vegar fram að tónlist sem spiluð er í dansmeðferð geti ein og sér haft jákvæð áhrif á einkenni PS, auk þess að hjálplegt sé að velja viðeigandi tónlist fyrir þátttakendur (Albani o.fl., 2019; Rocha o.fl., 2018; Shanahan o.fl., 2017). Í rannsókn Shanahan og félaga (2017) og rannsókn Solla og félaga (2019) lýstu þátttakendur að það hefði verið hjálplegt að fylgjast með danssporum annarra til að læra og þora að stíga skrefin sjálfir. Eina rannsóknin sem tók saman kostnað við framkvæmd dansmeðferðarinnar var hjá Rocha og félögum (2018) en þar var bent á að meðferð sem fól í sér vikulegan tíma, auk 40 mínútna vikulegra heimaæfinga yfir átta vikur kostaði samtals það sem nemur um 30.000 ISK á hvern þátttakenda. Dansmeðferð til að efla hreyfingu, vitræna færni og sálfélagslega líðan hjá einstaklingum með parkinsonssjúkdóm
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.