Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 68
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Niðurstöðurnar sýna að HAM sem
veitt er hjá heilsugæslunni virðist gefa góðan
árangur og er árangursrík meðferð við andlegri
vanlíðan og kvíða hjá konum.
Þekking: Mikilvægt er að rannsaka árangur
og gildi hugrænnar atferlishópmeðferðar fyrir
mæður og konur með andlega vanlíðan. Þannig
skapast þekking og skilningur á reynsluheimi og
líðan þeirra. Með aukinni þekkingu starfsfólks
í heilsugæslunni aukast síðan líkurnar á að
konurnar fái viðeigandi meðferð.
Hagnýting: Niðurstöður rannsóknarinnar
er hægt að nýta til að skipuleggja og efla
þjónustuna enn frekar og gera HAM að sýnilegra
úrræði á heilsugæslunni. Hægt væri að búa
til fleiri HAM- hópa til dæmis fyrir konur sem
eru heima í fæðingarorlofi sem hittast, deila
reynslu sinni og styrkja hver aðra samkvæmt
aðferðafræði HAM.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Til að
veita konum meiri stuðning er aðferðafræði
HAM hjálplegt úrræði sem ljósmæður og
hjúkrunarfræðingar sem starfa í ungbarna-
verndinni gætu horft til og notað með
markvissari hætti í sínu faglega starfi. Það að
þekkja HAM-aðferðafræði, nota í samræðum
við skjólstæðinga, bjóða upp á námskeið og að
geta vísað konum í sérhæfða þjónustu t.d. hjá
sérhæfðum sálfræðingum er því mikill kostur.
Hugræn atferlismeðferð (HAM) er árangursrík meðferð sem
er notuð við andlegri vanlíðan, streitu og kvíða. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna reynslu kvenna með andlega
vanlíðan af áhrifum HAM-námskeiða sem haldin eru á
heilsugæslunni og kanna hvaða áhrif námskeiðin hafði á líðan
þeirra.
Notast var við aðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði.
Þátttakendur voru átta konur valdar með tilgangsúrtaki á
tveim heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu og notast
við hálfstaðlaðan viðtalsramma. Konurnar voru á aldrinum
26-47 ára og glímdu við andlega vanlíðan og höfðu lokið sex
vikna hópnámskeiði í HAM á heilsugæslustöð. Samtals voru
tekin átta einstaklingsviðtöl.
Yfirþema rannsóknarinnar var: að ná tökum á kvíðanum
og láta hann ekki stjórna. Það lýsir reynslu kvenna með
andlega vanlíðan af hugrænni atferlishópmeðferð. Alls voru
greind fimm meginþemu; að reyna að gera það besta úr
sínum aðstæðum; að ná tökum á kvíðanum og láta hann
ekki stjórna; að hafa meiri stjórn á huganum og líkamanum;
stuðningurinn og eftirfylgnin skiptir öllu máli; bjargráðin
að nýta sér alls konar hluti. Niðurstöður rannsóknarinnar
gefa vísbendingu um að upplifun kvenna af gagnsemi
námskeiðsins í hugrænni atferlismeðferð sé góð og flestar lýsa
jákvæðri upplifun við að ná tökum á kvíðanum og láta hann
ekki stjórna sér. Konurnar reyndu að nýta sér það sem þær
höfðu lært á HAM-námskeiðunum og áframhaldandi stuðning
heilbrigðisstarfsfólks til að bæta líðan sína og aðstæður. Eftir
námskeiðin náðu þær margar meiri stjórn á líðan sinni og í
kjölfar meðferðar voru þær einnig meðvitaðri um að grípa til
eigin bjargráða til að bæta líðan sína og félagsleg virkni þeirra
jókst.
Mikilvægt er að heilsugæslan haldi áfram að bæta og styrkja
geðheilsuverndina sem veitt er á heilsugæslustöðvum fyrir
konur sem glíma við andlega vanlíðan eða kvíða en hugræn
atferlismeðferð virðist vera árangursrík meðferð.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Lykilorð:
Hugræn atferlismeðferð (HAM), reynsla, konur, andleg
vanlíðan, heilsugæsla.
Ályktun
Að ná tökum á kvíðanum