Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 79

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Síða 79
3. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 77 Skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa er áhyggjuefni og allra leiða þarf að leita til að bæta megi mönnun í hjúkrun. Rannsóknir á því af hverju nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar ákveða að hætta í starfi sýna að þeir sem upplifa streitu og finna til kulnunar eru líklegir til að hætta. Jafnframt hafa þær sýnt að einkenni streitu og kulnunar byrja oft í hjúkrunarfræðinámi og að nemendur sem finna fyrir streitu og kulnun í námi eru mun líklegri til að finna slíkt þegar þeir hefja störf eftir útskrift (Boamah og Laschinger, 2016; Rudman og Gustavsson, 2012). Í þessari grein er fjallað um streitu og kulnun hjá hjúkrunarfræðinemendum við Háskólann á Akureyri (HA) og Háskóla Íslands (HÍ) vorið 2018. Háskólanemar eru taldir sérstaklega viðkvæmir fyrir streitu og þá sérlega nemendur á heilbrigðisvísindasviði (Seedhom o.fl., 2019). Streita er skilgreind sem ferli sem felur í sér streituvalda í umhverfi einstaklings og viðbrögð hans við þeim. Einstaklingurinn finnur til streitu þegar hann telur sig ekki geta ráðið við atburði eða aðstæður, sem hann telur bæði hættulegar og skaðlegar, á jákvæðan hátt (Lazarus og Folkman, 1987). Kulnun einkennist af tilfinningalegri örmögnun (e. emotional exhaustion), bölsýni/hlutgervingu (e. cynicism/depersonilasation) og minni persónulegri frammistöðu (e. personal accomplisment) og getur verið afleiðing af langvarandi vinnutengdri streitu (Maslach og Jackson, 1981). Samkvæmt Kristensen o.fl. (2005) er tilfinningaleg örmögnun lykilþáttur kulnunar og telja þau að orsakir kulnunar sé hægt að rekja til annarra þátta en starfstengdra þátta. Erlendar rannsóknir sýna að hátt hlutfall hjúkrunarfræðinema upplifi streitu og kulnun í námi, sem virðist aukast þegar líður á námið (Al- Zamil, 2017; Al-Zayyat o.fl., 2014; Rudman og Gustavsson, 2012). Námstengd streita (e. academic stress) er talin orsakast bæði af námstengdum- og persónu- bundnum þáttum (Al-Gamal o.fl., 2017; Galvin o.fl., 2015). Klíníski hluti hjúkrunarfræðinámsins er talinn vera sérstaklega streituvaldandi vegna hjúkrunar sjúklinga með flókin heilbrigði- svandamál, hlutverkaóvissu, tilfærslu milli klínískra vettvanga, klínískra verkefna, samskipta- örðuleika við kennara og starfsfólk og hræðslu við mistök (Al-Gamal o.fl., 2017; Rudman og Gustavsson, 2012). Fræðilegi hluti námsins er einnig streituvaldandi vegna mikils verkefnaálags, lærdóms eftir skóla, prófa og hræðslu við að standast ekki námskröfur (Galvin o.fl., 2015). Persónubundnir þættir geta verið aðskilnaður við fjölskyldu, vandamál innan fjölskyldu, fjárhagsáhyggjur og skortur á frítíma (Galvin o.fl., 2015). Niðurstöður rannsókna sýna að streita meðal hjúkrunarfræðinema er frá því að vera í meðallagi mikil yfir í það að vera alvarleg og er meiri en annarra nema í heilbrigðisvísindum (Al-Zayyat og Al-Gamal, 2014; Labrague o.fl., 2018) og eykst eftir því sem lengra líður á námið (Al Zamil, 2017). Niðurstöður rannsóknar Labrague (2018) sem gerð var á 547 hjúkrunarfræðinemum í þremur mismunandi löndum voru að meðaltali streitu á PSS-streitukvarðanum (Perceived INNGANGUR BIRNA G. FLYGENRING lektor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands HERDÍS SVEINSDÓTTIR prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands RAKEL DÍS BJÖRNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur hjá Heilsugæslunni Salahverfi SALOME JÓNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur á Landspítala Streita og kulnun hjúkrunarfræðinema á lokaári við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri Ritrýnd grein | Peer review Höfundar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.