Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 80
78 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021
Stress Scale) var 2,06 (af=0,62) sem telst vera meðalstreita.
Aðalstreituvaldurinn var verkefnavinna og vinnuálag.
Í rannsókn Onieva-Zafra o.fl. (2020) var streita einnig
könnuð með PSS-streitukvarðanum hjá spænskum
hjúkrunarfræðinemum (N=192) á öllum fjórum námsárunum
og kom í ljós að 48% hjúkrunarfræðinemanna fundu fyrir
meðalstreitu (PSS=22,78) og 25% mikilli streitu. Streitan
mældist mest hjá þeim nemendum sem lengst voru komnir í
náminu.
Niðurstöður rannsóknar á streitu meðal háskólanema
við HÍ árið 2016 sýndu að meðaltalsstig þátttakenda var
20,6 (heildarspönn=0-40) á PSS-streitukvarðanum og að
86% þátttakenda fundu til frekar/mjög miklillrar streitu.
Þættir námstengdrar streitu sem höfðu mest áhrif voru
námskröfur og skortur á námsleiðbeiningum (Sigríður
Lilja Magnúsdóttir og Valdís Ingunn Óskarsdóttir, 2016).
Eldri rannsókn, sem mældi streitu hjúkrunarfræðinema á
fyrsta og öðru ári í hjúkrunarfræðinámi við HA árið 2016
sýndi að meðaltalsstreitustig þátttakenda var 17,2 á PSS–
streitukvarðanum og mældust 56% yfir meðaltalsstigum sem
var 13,0 (Eva Mjöll Júlíusdóttir og Helga Berglina Hreinsdóttir,
2010).
Námstengd streita getur leitt til kulnunar ef háskólanemar
búa ekki yfir bjargráðum til að takast á við streituvalda (da
Silva o.fl., 2014; Sharififard o.fl., 2020). Námstengdri kulnun
hefur verið lýst þannig að nemendanum finnst hann ekki
fær um að leggja sig fram og gefa af sér og leiðir þetta síðan
til neikvæðrar hegðunar, efasemda og áhugaleysis gagnvart
náminu (Valero-Chillerón o.fl., 2019). Kulnun er þekkt
meðal hjúkrunarfræðinema, meðal annars vegna mikils
álags í námi, skorti á frítíma, samskiptavanda við sjúklinga
og vantrausts á eigin starfshæfni (Ayaz-Alkaya o.fl., 2018).
Niðurstöður rannsóknar á brasilískum hjúkrunarfræðinemum
voru að 24,7% þeirra fundu fyrir kulnun. Þar af fundu 64%
fyrir mikilli tilfinningalegri örmögnun, 36% fundu fyrir
mikilli bölsýni/hlutgervingu og 88% fundu fyrir minnkaðri
faglegri afkastagetu í náminu (da Silva o.fl., 2014). Klínískur
hluti hjúkrunarfræðináms hefur verið tengdur við kulnun,
líkt og streita og hafa hjúkrunarfræðinemar fundið fyrir
aukinni kulnun í kjölfar klíníska námsins. Rannsókn á kulnun
hjúkrunarfræðinema fyrir og eftir klínískt nám í Tyrklandi
leiddi í ljós að 34,7% nemanna (N=101) upplifðu kulnun fyrir
klíníska námið sem jókst í 43,6% eftir að því lauk. Þættir
sem höfðu mikil áhrif voru að skipta stöðugt um vettvang,
hjúkrun krefjandi sjúklinga, erfið reynsla, hræðsla við
mistök og sú tilfinning að einhver sé stöðugt að meta færni
viðkomandi (Ayaz-Alkaya o.fl., 2018). Í langtímarannsókn sem
gerð var á 1.702 sænskum hjúkrunarfræðinemum þar sem
tilfinningaleg örmögnun og kulnun var skoðuð yfir þriggja
ára tímabil, kom í ljós að báðir þessir þættir jukust jafnt og
þétt eftir því sem leið á námið. Á fyrsta ári sögðust 29,7%
nemanda finna fyrir kulnun en á þriðja ári og lokaárinu fundu
41,0% nemanda fyrir kulnun (Rudman og Gustavsson, 2012).
Ofannefndar rannsóknir í mismunandi löndum benda til þess
að það sé alþjóðlegt áhyggjuefni að kulnun aukist meðal
hjúkrunarfræðinema meðan á námi stendur.
Rannsóknir á streitu og kulnun meðal hjúkrunarfræðinema
eru mikilvægar en hvoru tveggja hefur verið tengt við lakari
námsgetu og námsárangur en þessi streita og kulnun á þátt
Rannsóknarsnið
Aðferðin er megindleg með lýsandi könnunarsniði. Gögnum
var safnað í maí 2018.
Úrtak og framkvæmd
Þýði og jafnramt úrtak rannsóknarinnar voru nemendur á
lokamisseri í hjúkrunarfræði við HÍ (N=66) og HA (N=47) vorið
2018, alls 113.
Gagna var aflað rafrænt í maí 2018 með notkun forritsins
RedCap (nd) og voru netföng fengin hjá deildarskrifstofum
háskóladeildanna. Opið var fyrir þátttöku nemenda í 21 dag
og var ítrekun send sjö dögum og 10 dögum eftir að opnað var
fyrir þátttöku. Svörun var 72,6% (n=82).
Mælitæki
Streita
Almenn streita var mæld með PSS (Cohen o.fl.,1983) þar
sem spurt er um 10 atriði sem kanna tilfinningar og hugsanir
sem einstaklingur hefur upplifað síðastliðinn mánuð
(svarmöguleikar aldrei=0, næstum aldrei=1, stundum=2,
nokkuð oft=3 og mjög oft=4). Viðmiðurnargildi sem notuð
eru fyrir streitu er 13,7 (Cohen og Williamsson, 1988).
Spurningalistinn hefur verið notaður í íslenskum rannsóknum
á hjúkrunarfræðingum (Berglind Harpa Svavarsdóttir og
Elísabet Hjörleifsdóttir, 2020) og mælst með gott innra
AÐFERÐ
Streita og kulnun hjúkrunarfræðinema
í að umræddir nemendur ákveða að starfa ekki við hjúkrun
í framtíðinni. Jafnframt hefur kulnun í námi verið tengd
við lakari faglega færni í starfi eftir útskrift (Njim o.fl., 2018;
Rudman og Gustavsson, 2012; Rudman o.fl., 2014).
Bjargráð segja til um hvaða aðferðir einstaklingurinn
notar til að takast á við steituvalda. Samkvæmt Lazarus og
Folkman (1984) má lýsa bjargráðum sem síbreytulegu ferli
þar sem einstaklingurinn reynir að takast á við steitu og álag
í umhverfinu með því að meta aðstæður og fara yfir þau
úrræði sem hann hefur til að draga úr, lágmarka eða þola
aðstæðurnar. Bjargráð eru ýmist talin jákvæð (t.d. slökun,
leysa vandamál með því að greina og taka á rót vandans) eða
neikvæð, t.d. að afneita vandanum og nota áfenga drykki og
fíkniefni (Labrague o. fl. 2018; Rice og Van Arsdale, 2010).
Skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa er alvarlegt vandamál
hér á landi og úttektir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
benda til að allt að fimmtán prósent nýútskrifaðra
hjúkrunarfræðinga velji að yfirgefa starfið (Guðbjörg
Pálsdóttir o.fl., 2017). Mikilvægt er að skoða alla þætti sem
hugsanlega hafa áhrif þar á og er líðan nemenda í námi einn
þeirra þátta. Í þeirri rannsókn sem hér er lýst eru til skoðunar
hjúkrunarfræðinemendur á Íslandi og er markmiðið að
a) lýsa framtíðaráformum, almennri streitu, námstengdri
streitu, bjargráðum og kulnun hjá hjúkrunarfræðinemum
í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri á lokamisseri
í námi, b) skoða samband almennrar streitu og kulnunar
innbyrðis, við námstengda streitu, nám og framtíðaráform og
bakgrunnsbreytur og c) greina áhrifaþætti almennrar streitu
og kulnunar.