Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Page 90
88 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 3. tbl. 97. árg. 2021
byggjast á einstaklingsviðtölum við unga karlmenn meðal
annars um reynslu þeirra af smokkanotkun en þær hafa
ekki gefið ítarlegar lýsingar eins og á því augnabliki þegar
smokkanotkunin á sér stað (Chernick o.fl., 2019; Dalessandro
o.fl., 2019; Smith o.fl., 2012). Miðað við fyrri þekkingu þá þótti
mikilvægt að taka einstaklingsviðtöl við unga karlmenn um
smokkanotkun. Þegar hefur verið gerð rýnihóparannsókn
meðal íslenskra ungra karlmanna á þessu efni og er þessi
rannsókn því ætluð til að skoða viðfangsefnið af enn meiri
dýpt. Það er mikilvægt að skyggnast inn í reynslu- og
hugarheim ungra karlmanna til að geta betur áttað sig á því
hvað liggur að baki neikvæðri afstöðu til smokkanotkunar
og erfiðleikum við notkun. Tilgangur þessarar eigindlegu
rannsóknar er að skoða reynsluheim ungra karlmanna
varðandi smokkanotkun en jafnframt að skoða þeirra
sjónarmið gagnvart notkuninni.
Rannsóknin er hluti af stærri eigindlegri rannsókn sem var
tvíþætt. Fyrst var gerð rýnihóparannsókn og í seinni hluta
rannsóknarinnar voru tekin einstaklingsviðtöl. Þessi grein
byggir á einstaklingsviðtölunum.
Rannsóknarsnið
Til að öðlast dýpri skilning á reynsluheimi ungra íslenskra
karlmanna varðandi smokkanotkun og hvað skipti máli
sem varðar þá reynslu var ákveðið að byggja rannsóknina
á eigindlegu rannsóknarsniði, fyrirbærafræðilegri nálgun.
Túlkandi fyrirbærafræði var valin fram yfir lýsandi fyrirbæra-
fræði þar sem hún tekur mið af samhengi (e. context) eins
og aðstæðum og að einstaklingurinn verður fyrir áhrifum
af þeim heimi sem hann lifir í. Þetta samhengi er mikilvægt
til að geta skilið reynsluheim einstaklingsins. Einnig taldi
aðalrannsakandi, sem safnaði gögnunum, sig ekki geta
einangrað sinn eigin reynsluheim heldur er fyrri reynsla og
fræðileg þekking mikilsverð við vinnslu rannsóknarinnar
(Neubauer o.fl., 2019). Rannsóknin er mikilvæg til þess að geta
aukið skilning á smokkanotkun. Var rannsakandinn opinn
gagnvart frásögnunum ungu karlmannanna um upplifun
þeirra og merkingu hennar (Neubauer, o.fl., 2019). Slíkar
eigindlegar rannsóknir henta vel til að skoða fyrirbæri sem
lítið er vitað um, til að öðlast betri skilning á þeim eða til að
rannsaka fyrirbæri sem megindlegar rannsóknir ná ekki að
fanga (Stewart o.fl., 2008).
Þátttakendur
Stuðst var við tilgangsúrtak við val á þátttakendum sem
miðaðist við ákveðin einkenni eins og kyn og aldur. Valdir
voru einstaklingar sem voru taldir hafa persónulega þekkingu
og reynslu af fyrirbærinu sem átti að rannsaka (Katrín
Blöndal og Sigríður Halldórsdóttir, 2013). Til að auka líkur á
fjölbreytni í sjónarmiðum þátttakenda var kynhneigð höfð
í huga. Valdir voru ungir karlmenn sem stunda kynlíf með
konum og karlmenn sem stunda kynlíf með körlum. Farin
var sú leið að nálgast þátttakendur í gegnum Göngudeild
húð- og kynsjúkdóma á Landspítala og Samtökin ´78. Á
Landspítalanum fengu mögulegir þátttakendur kynningarbréf
en Samtökin ´78 auglýstu rannsóknina. Þátttakendur fengu
upplýsingar fyrir rannsóknina að greitt yrði fyrir þátttöku.
AÐFERÐ
Fjöldi einstaklingsviðtala miðaðist við mettun gagna (Fusch og
Ness, 2015).
Siðfræðilegir þættir rannsóknarinnar
Rannsóknarverkefnið hlaut leyfi Vísindasiðanefndar,
VSNb2017110012/03.01, leyfi framkvæmdastjóra lækninga á
Landspítala og yfirlæknis Göngudeildar húð- og kynsjúkdóma.
Jafnframt gáfu þátttakendur upplýst skriflegt samþykki fyrir
þátttöku.
Gagnasöfnun
Einstaklingsviðtölin voru tekin fyrri hluta árs 2019 af fyrsta
höfundi þessarar greinar. Áður en hvert viðtal fór fram var haft
samband símleiðis við þátttakendur og rannsóknin útskýrð. Til
grundvallar rannsókninni var byggt á hálfstöðluðum viðtölum
en þau gefa færi á að fara út fyrir spurningarammann ef ný
atriði koma fram eða leitast er eftir frekari skýringum (Gill
o.fl., 2008). Í byrjun hvers viðtals var rannsóknin kynnt fyrir
viðmælanda, fjallað um tilgang hennar, áætlaða tímalengd
viðtals, rafræna upptöku viðtals, að nafnleyndar væri gætt
og að viðkomandi væri heimilt að hætta hvenær sem væri.
Áður en viðtalið hófst var lagður fyrir stuttur spurningalisti
um bakgrunn viðkomandi og lögð áhersla á að viðtalið
sjálft byggðist sem mest á frásögn viðmælandans en síður á
spurningum og svörum. Þar sem viðtalið var um viðkvæmt
málefni var byrjað á því að fjalla almennt um efnið. Þá var
spurt hvort viðkomandi hafði fengið einhverjar upplýsingar
eða fræðslu um smokkanotkun og það skoðað nánar út frá
vinum, foreldrum og samfélaginu. Í framhaldi af því var farið
nánar út í smokkanotkun og viðkomandi beðinn um að lýsa
því hvernig það væri að nota smokkinn. Var spurningunni
fylgt eftir með atriðum eins og feimni, mati á áhættu, áfengi,
hve auðvelt/erfitt er að setja hann á, aðgengi að smokkum,
þekkja bólfélaga og fleira. Til að auðvelda umræður um
smokkanotkun var stuðst við dæmisögur og mynd af helstu
skrefum smokkanotkunar. Viðtölin fóru fram í húsnæði
Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands.
Gagnagreining
Við greiningu gagna var stuðst við rammaaðferð (e. framework
method) Gale og félaga (2013). Með þeirri aðferð er gerð
þemagreining þar sem kerfisbundið var leitast eftir mynstri
sem varpað gat ljósi á fyrirbærið sem var til skoðunar. Til
að ná utan um og skipuleggja rannsóknargögnin var settur
fram greiningarammi sem samanstóð af kóðum og flokkum,
ákveðnir af rannsakendum. Fyrstu tveir höfundar greinarinnar
gerðu greiningaramma sem byggðist á nokkrum viðtölum,
báru saman og samræmdu. Hann var síðan notaður við
greiningu hinna viðtalanna en var stöðugt í endurskoðun.
Samkvæmt Gale og félögum (2013) eru kóðar lýsandi eða
huglæg hugtök rannsóknargagnanna og eru flokkar samsafn
af kóðum sem fjalla um svipuð eða tengd hugtök. Þemu
eru svo túlkuð hugtök eða setningar sem gefa mynd af
merkingabærum frásögnum í rannsóknargögnunum, sem eru
svo loka greiningarniðurstöðurnar fyrir rannsóknargögnin
í heild sinni. Þemu eru sett fram og þróuð með því að rýna
í flokka rannsóknargagnanna með samanburði innan
hvers viðtals og á milli viðtalanna. Þess var gætt að rödd
þátttakenda fengi að heyrast. Rammaaðferðin byggist á sjö
stigum og hefur þeim áður verið lýst nákvæmlega (Katrín
Hilmarsdóttir, 2021).
Smokkanotkun ungra karlmanna