Heilbrigt líf - 01.12.1947, Qupperneq 109
Flateyrarhér. (163 börn skoðuð). Á Flateyri litu börnin mjög
vel út, voru í góðum holduin, hraustleg, vel klædd og óþrif í
fremur fáum, eða tæplega 15%. Þau hafa og næga mjólk, nóg
af garðávöxtum, mikið af lýsi, lifur og lirognum. Þau liafa næga
útivist og sólarljós, og sund stunda þau flestöll á sumrum í
hinni nýju sundlaug þorpsins. í Mosvallahreppi litu börnin
einnig vel út og voru hraustleg, en mun meira var þar um
óþrif, eða lús og nit í 30%. Virtist mér skorta nokkuð á, að
hirða sumra barnanna væri sem skyldi. í Súgandafirði litu
börnin yfirleitt illa út, einkum piltarnir. Voru þeir litlir, grann-
ir og óþrifalegir. Lús og nit voru í 49% barnanna. Virðist þar
margt leggjast á eitt til lélegs þroska ungviðisins, mjólkurskort-
ur, alger grænmelisskortur, mikið sólarleysi og hirðuleysi um
dagfar barnanna. Einn forustumaður hreppsins sagði mér, að á
götunni væru börnin fram á nætur, og þar væru þau árla
morguns, er hann kæmi á fætur, og að því er virtist með sama
skítnum, jiví að tími gæfist lítill til þvotta, jiegar seint væri
til sængur gengið. Sólskýli er þarna, og nota börnin það nokkuð
og eins sundlaug litla, sem er skammt innan við þorpið. Eitt-
hvað mun rofa til á vorin eftir vetrarlanga baráttu við lúsina í
skólanum, en að hausti situr allt við sama.
í Akureyrarbarnaskóla höfðu 57 börn nagaðar neglur.
Það er óskemmtilegur ávani og oft ólæknandi.
Sérstakur kafli er um skólaeftirlit, og er þar margur
fróðleikur. Læknar telja skólastaði góða fyrir 67,3% barn-
anna, en óviðunandi fyrir 4,4%. Sums staðar mikið gert
til framfara, t. d. í Svarfdæla- og Hólshéraði. í Bolunga-
vík var t. d. sett í skólann vatnssalerni og handlaug. En
í Árskógi var reistur myndarlegur heimavistarskóli. Bað
er fyrir 8610 skólabörn, og er það mikið þrifnaðaratriði.
I Vestmannaeyjum telur héraðslæknir, að börn séu hrein-
legri með sig seinni árin. —
En svo er margt, sem stendur til bóta. Á ísafirði féllu
t. d. alveg niður Ijóslækningar þetta ár, þar eð tækin voru
ónýt orðin. Lýsisgjafir og mjólkur voru stopular; er kennt
um þrengslum í skólanum. Úr Flateyrarhér.: „Skólahúsin
Ileilbrigt Uf
223