Úrval - 01.06.1942, Qupperneq 57
ÖRSMÆÐIN Á UNDANHALDI
55
Til þess skulum við fara 250
ár aftur í tímann. Um það leyti
bjó Hollendingurinn Anthony
van Leeuwenhoek til fyrstu
smásjána. f gegnum hana horfði
hann á dropa af blóði og sá þá
rauðu blóðkornin. Enginn hafði
séð þau fyrr. Enginn vissi, hvers
vegna blóðið var rautt, og engan
grunaði, að blóðið væri samsett
úr smáum, óteljandi ögnum.
Þetta varð upphafið að hinum
stórstígustu framförum lækna-
vísindanna.
Þetta var stórkostleg fram-
för, en síðan hefir smásjáin líka
að heita má staðið í stað þang-
að til nú fyrir rúmum tveim
árum.
Auðvitað hafa verið búnar til
miklu margbrotnari og skraut-
legri smásjár, en sú, sem van
Leeuwenhoek bjó til. Og í þeim
má sjá svo smáar agnir, að
5000 af þeim kæmust fyrir á
ydduðum blýantsoddi.
Það er býsna smátt. En
hvergi nærri nógu smátt fyrir
vísindamennina. Sýklafræðingar
kvörtuðu undan því, að ekki
væri hægt að sjá helminginn af
þeim sýklum, sem þeir þyrftu
að sjá. Þeir gátu ekki séð kvef-
sýkilinn, og ekkiheldurskarlats-
sóttarsýkilinn. Þeir höfðu ekki
hugmynd um, hvemig mænu-
veikissýkillinn leit út.
Og ekki voru efnafræðingam-
ir ánægðari. Þeir höfðu stóra
doðranta fulla af kenningum
um það, hvernig mólikýlin litu
út, hvernig þau höguðu sér, og
hvernig atómin byggðu upp
mólikýlið. En þeir gátu ekki
sannað kenningar sínar, af því
að smásjáin var ekki nógu öflug.
Vísindamaðurinn var eins og
nærsýnn maður, sem horfir á
konu afklæða sig fyrir óbyrgð-
um glugga hinum megin götunn-
ar. Hann vissi, að eitthvað var
að ske, en gat ekki með vissu
greint, hvað það var.
Verst af öllu var, að eðlisfræð-
ingar — menn eins og Einstein
— fullyrtu, að engin von væri
til, að hægt væri að búa til smá-
sjá, sem gæti stækkað meira.
Þeir héldu því fram, að hversu
stórt og öflugt, sem safnglerið
í smásjánni væri, gæti það aldrei
sýnt minni hlut en sem svaraði
lengd ljósbylgjunnar. Og þeir,
sem gerðu smásjárnar, urðu
að viðurkenna, að þetta væri
rétt.
Um skeið leit svo út, sem vís-
indamönnunum myndi aldrei
auðnast að sjá þessa örsmáu
sýkla og mólikýl.