Úrval - 01.10.1943, Page 13
BARÁTTAN VIÐ KAFBÁTANA
11
væri vopnið, sem hægt væri að
framleiða í stórum stíl, og gæti
gert höfin örugg gegn kafbát-
um. En korvettan reyndist alls
ekki hlutverki sínu vaxin sem
sóknarvopn, vegna þess að hraði
hennar er aðeins 15 hnútar —
fimm hnútum minni heldur en
hraði kafbáta. Korvettan var
ekki betur vopnum búin, heldur
en nýtízku kafbátur. Þegar
korvetta réðist á kafbát, kom
hann oftast upp á yfirborðið,
hóf skothríð og sökkti oft kor-
vettunni eða laskaði. Korvettan
reyndist þannig aðeins varnar-
vopn og alls ekki hæf til að
útrýma kafbátahættunni, þó að
hún hafi reynzt mikilvæg til
þess að draga úr henni.
Bretar tóku einnig að nota
flugvélar, sem vopn gegn kaf-
bátum. Þær hafa reynst mikil-
vægar, en þýðing þeirra hefir
verið misskilin af flestum.
Beztu flugvélar til þess að
elta uppi kafbáta eru Catalina-
pprengjuflugvélar. Bretar tóku
þessar flugvélar, komu byssum
jfyrir í fremra sprengjurúmi
þeirra, bjuggu þær djúpsprengj-
um og sendu þær síðan í eft-
irlitsferðir að degi til. Þess-
ar flugvélar geta verið margar
klukkustimdir á flugi í einu, og
geta farið yfir stór svæði. Það
er hægt að þakka Catalina-
sprengjuflugvélunum fyrir að
hafa hrakið kafbátana burt af
500-mílna belti í kring um
Bretlandseyjar. En að þessar
flugvélar hafi í raun og veru
eyðilagt marga kafbáta, eins
og margir álíta, er ekki rétt.
Aðalgallinn við að nota flug-
vélar gegn kafbátum er sá, að
þær er aðeins hægt að nota að
degi til, en það er einmitt á
nóttunni, sem kafbátarnir eru
hættulegastir. Flugvél getur
ekki séð kafbát, sem er í kafi,
nema í logni og ládeyðu og í
mjög björtu veðri. Slík skilyrði
eru sjaldnast fyrir hendi í
Norður-Atlantshafi. Þegar kaf-
bátur er uppi á yfirborði sjáv-
ar, kemur hann auga á flugvél,
sem nálgast, löngu áður en hún
sér kafbátinn. Kafbáturinn get-
ur kafað niður á 20 metra dýpi
á minna en 60 sekúndum, svo
að ef hann hefir ekki áður verið
laskaður, er ekki líklegt, að
nokkur flugvél komi að honúrn
óvörum á yfirborðinu.
Mesta gagnið sem flugvélarn-
ar gera, er að þvinga kafbátana
til að halda kyrru fyrir í kafi,
það dregur úr hraða þeirra.
Þýzkir kafbátar hafa haldið sig