Úrval - 01.08.1946, Qupperneq 19
HIÐ NÝJA „GUÐSLYF"
1T
hafi hann ekki áður neytt ann-
ara deyfilyfja. Sá möguleiki er
til, að deyfandi áhrif lyfsins
geti vakið löngun manna til að
neyta þess að staðaldri. Þetta er
ekki venjuleg deyfilyfjanautn,
því að þótt hætt sé að neyta
demerols, koma engar slæmar
afleiðingar í Ijós. Læknar eru nú
farnir að nota efnið meira og
djarflegar en áður, þar sem það
er laust við þennan rnikla ókost
annara deyfilyfja.
Deyfilyf hafa ekki verið not-
uð við ólæknandi krabbamein
fyrr en í síðustu forvöð, af því
að það þarf alltaf að vera að
auka skammtinn. öðru máli
gegnir um demerol í langflest-
um slíkum tilfellum. Það er
sama hvort það hefir verið gef-
ið í vikur eða mánuði — sami
skammtur hefir jafnan sömu
deyfiáhrif.
Demerol er mikil blessun í
helstríði dauðvona manna, en
áhrif þess eru líka góð og til
aukins öryggis við bamsfæð-
ingar. Árið 1941 fékk ung kona
taugaáfall af hræðslu, er hún
var að því komin að eiga fyrsta
barn sitt. Hún æpti og engdist
sundur og saman í hríðunum, og
Iæknar og hjúkrunarkonur
fengu engu tauti við hana kom-
ið. Henni var gefið demerol. Eft-
ir nokkrar mínútur var allt
kyrrt í fæðingarstofunni. Hún
var spurð, hvort hún finndi ekki
lengur til kvalanna. „Jú,“ svar-
aði hún, ,,en það er eins og ég
hirði ekki um þær. Þetta iyf
gerir mig hugrakka."
Lyfið var reynt á 150 mæðr-
um í sjúkrahúsi i Baltimore, og
kom í ljós, að það stytti tímabil
hríðanna, var skaðlaust börn-
um og gerði mæðurnar kjark-
meiri.
í sjúkrahúsi einu í Boston
voru gerðar tilraunir með að
blanda demerol saman við scop-
olamine til notkunar við barns-
fæðingar. Morfín og scopolam-
ine, sem áður var notað, deyfir
að vísu sársauka, en var hættu-
legt fyrir öndunarstarfsemi
barnanna. I tilraunum, sem
gerðar voru með 1000 fæðandi
konur, kom í ljós, að dernerol
dró úr þjáningum og bægði
brott ótta; scopolaminið olli
því, að konumar gleymdu fæð-
ingarþrautunum. Sjötíu af
hmidraði mundu ekki eftir hríð-
unum — eða a. m. k. ekki að
neinu ráði. Engin þessara.
kvenna minntist þess, að hafa
fundið til.
Hríðatímabilið styttist um