Úrval - 01.08.1946, Qupperneq 37
MÆRIN EÐA TÍGRISDÝRIÐ ?
35
íiafði henni tekizt það sem eng-
um hafði lánast fyrr — að kom-
ast að leyndardómi hurðanna
tveggja. Hún vissi á bak við
hvora hurðina tígrisdýrið var,
og á bak við hvora mærin var.
Hurðirnar voru þykkar og
klæddar feldi að innan, og var
óhugsandi að nokkur hávaði eða
vísbending hvað á bak við þær
var, gæti náð til mannsins, sem
átti að taka hespuna frá ann-
arri þeirra og opna hana; en
gull og máttur konuvilja hafði
aflað prinsessunni vitneskju um
leyndarmálið.
Og hún vissi ekki aðeins út
um hvorar dyrnar mærin kæmi,
i-jóð og brosandi, ef hurðin
hennar yrði opnuð, hún vissi
einnig hver mærin var. Það var
fallegasta og bjartasta yngis-
mærin við alla hirðina, er
hafði verið valin sem laun
handa hinu ákærða ungmenni,
ef hann skyldi reynast saklaus
af jieim glæp að hafa sótzt eftir
ástum konu, sem var svo hátt
yfir hann hafin; og prinsessan
hataði hana.
Oft hafði hún séð, eða ímynd-
að sér að hún sæi, þessa björtu
yngismey horfa aðdáunaraug-
iun á elskhuga hennar, og
síundum sýndist henni, að tek-
ið væri eftir þessu augnatilliti
og það jafnvel endurgoldið.
Stöku sinnum hafði hún séð þau
tala saman; það var aldrei nema
örstutta stund, en það er margt
hægt að segja á skömmurn
tíma; það gat hafa verið um
eitthvað nauðaómerkilegt, en
hvernig átti hún að vita það?
Mærin var yndisleg, en hún
hafði dirfzt að lyfta augum sín-
um til elskhuga prinsessunnar;
og af öllum þeim ofsa og blóð-
hita sem hún hafði erft frá villt-
um forfeðrum í marga liði, hat-
aði hún yngismeyna sem beið á
bak við hurðina, titrandi og
rjóð.
Þegar elskhugi hennar leit á
hana og augu þeirra mættust,
sá hann af þeirri skarpskyggni
sem léð er tveim einstaklingum,
sem eru ein sál, að hún vissi á
bak við hvora hurðina tígris-
dýrið lá í leyni, og á bak við
hvora mærin beið. Hann hafði
búizt við þessu. Hann þekkti eðli
hennar, og hann var þess full-
viss, að hún inni sér ekki hvíla-
ar fyrr en hún vissi það sem öll-
um öðrum var hulið, jafnvel
konunginum. Eina von ung-
mennisins var við það bundin,
að prinsessunni tækist að kom-
ast að leyndarmálinu; og um