Úrval - 01.08.1946, Qupperneq 42
-40
tjRVAL
öflugu virki til að vernda Jesú
fyrir Rússlandi. Ekki svo að
skilja að við tryðum á Jesú, sei,
sei, nei; en við trúðum á trúna
á Jesú, eða héldum það. Að
minnsta kosti vissum við, að líf-
ið er samkeppni; og að sérhver
ungur maður sem eitthvað er í
spunnið getur orðið nógu ríkur
og voldugur til að pústra annað
fólk.
I Ameríku köllum við þessa
samkeppni lýðræði. Þeir sem
fyrir pústrunum urðu voru nátt-
úrlega ekki alltaf ánægðir. Ekki
svo að skilja að þeir tryðu ekki
á hið frjálsa framtak, en það
var einhvers staðar hlykkur á
hjólinu. Þá fundum við upp
„New Deal“ og ákváðum að
pústrararnir yrðmn að lúta
ákveðnum reglum, hversu ríkir
sem þeir væru.
En við komumst brátt að því,
að við vorum ekki eina þjóðin
þar sem fátækir og óþekktir
æsktunenn geta orðið ríkir og
voldugir. Hitler og Mussolini
höfðu verið fátækir og óþekktir,
en þeir höfðu sigrað umhverfi
sitt og voru nú á hnotskóg eftir
nýjum sigrum. Við gátum ekki
varizt því að dást að þeim, jafn-
vel þótt við yrðum að játa, að
þeir hefðu beitt óþarfa hörku.
Þú getur ekki sopið eggið nema
brjóta á því skumið. Og Musso-
lini hafði komið reglu á rekstur
jámbrautanna og Hitler hafði
útrýmt atvinnuleysi; og báðir í
sameiningu höfðu þeir hjálpað
Franco og hinum múhameðsku
Márahersveitum hans til að
bjarga kristindóminum undan
oki lýðræðisins á Spáni.
En það var galli á gjöf Njarð-
ar. Hið frjálsa framtak Hitlers
og Mussolinis var nú orðið svo
voldugt, að það var farið að
veita öðrum þjóðum pústra; og
þegar um samkeppni milli þjóða.
var að ræða, giltu engar reglur.
Og gleymum ekki Japönum.
Þeir höfðu hertekið Mansjúríu
árið 1931 og voru í óða önn að
leggja undir sig allt Kína. Við
höfðum leyst þennan vanda, éða
töldum okkur hafa leyst hann,
með því að byrgja þá upp með
vopnum. Samt var eitthvað
öðnivísi en það átti að vera; og
engum létti verulega, fyrr en
raunsæismennimir fóm til Mún-
chen árið 1938 og tryggðu „frið
meðan við lifum.“
Ég fór ekki þangað. Ég lagð-
ist til svefns einu ári áður, og
mig dreymdi draum. Þetta er
vani hjá mér. Það hefir fleytt
mér yfir marga erfiðleika. Að