Úrval - 01.08.1946, Blaðsíða 88
86
tjRVAL
jð fram, að við höfum aðeins
barizt fyrir að innleiða ástandið
sem var fyrir stríð.
Vissulega hljóta að vera til
Ameríkumenn, sem álíta ekki
styrjaidir einu öruggu lausnina
á alþjóðlegum deilum. Vissulega
verðum við að vera fúsir til að
treysta því, að miljónir manna
víðsvegar um heim séu jafnfrið-
samir og við. Vissulega trúum
við því ekki öll, að við getum
með góðum árangri talað máli
friðarins með spennta byssu í
liöndunum.
En ef til eru menn, sem vilja
frið, þá eru raddir þeirra of
veikar til að heyrast gegnum
hávaðann í hinni gömlu hern-
aðarklíku okkar. Við setjum
ekki traust okkar sem þjóð á
alþjóðasamvinnu, heldur á
kjarnorkusprengjuna og vilja
„piltanna okkar“ til að ábyrgj-
ast ákvarðanir okkar með lífi
sínu. Ef það er gamall sannleik-
ur að tvo aðilja þurfi til að
heyja styrjöld, þá erum við
vissulega að sjá svo um, að við
verðum annar aðilinn.
Ég ætla mér ekki þá dul að
tala fyrir munn allra stríðsfé-
iaga minna. Á 40 mánaða her-
þjónustutíma mínum var ég að-
eins bifreiðastjóri á sjúkrabif-
reið, sjómaður á kaupskipi, og
stríðsfréttaritari •— aldrei ó-
breyttur þátttakandi í bardög-
um. Ef til vill eru þeir sem urðu
meira fyrir duttlungum her-
stjórnarinnar ánægðir með sig-
urinn, en ég efast um það.
Ég hitti aldrei ævintýraper-
sónuna Jóa soldáta, sem öllum
stjórnmálamönnum, blaðamönn-
um og öðnim blekdólgum er svo
tíðrætt um. En ég hitti marga
aðra Jóa, og grunur minn er sá,
að þeir muni áður en langt um
líður vakna af draumum sínum
um frið, atvinnu og heimili, tii
meðvitundar um, að þjóð þeirra
hafi brugðizt þeim.
Hinn óbreytti hermaður var
ekki gefinn fyrir djúpar hugs-
anir, þrátt fyrir allar þær há-
leitu hugsjónir, sem þrálátir
skriffinnar hafa viljað tileinka.
honum. Það sem honum var
mest umhugað var að binda
enda á styrjöldina — og allar
styrjaldir — eins fljótt og kost-
ur var. Og þó að það mætti
aldrei segjast, er sannleikurinn
sá, að níu hermenn af hverjum
tíu, vildu engin frekari afskipti
hafa af styrjöldum eftir að þeir
höfðu verið eina viku í herþjón-
ustu.
Við Ameríkumenn erum mjög