Gátt - 2010, Blaðsíða 31
31
Þ á T T T A K A Í F R Æ Ð S L U o g N á M I
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
Hvernig reynist fullorðnum karlmönnum, sem hurfu frá
námi, að stíga það stóra skref að fara í raunfærnimat
og hefja nám í framhaldsskóla að því loknu?
Viðmælendur mínir í þessari rannsókn eru allir skilgreindir
brotthvarfsnemendur en það felur í sér að þeir hurfu frá námi
eftir stutta veru í framhaldsskóla eða hófu ekki nám að grunn-
skóla loknum nema einn sem hóf iðnnám eftir stúdentspróf.
Hann flosnar þó upp úr iðnnámi og hefur ekki nám að nýju
fyrr en tveimur áratugum seinna. Ósigrar í námi vegna náms-
örðugleika hafa haft mest um það að segja að viðmælendur
mínir hurfu frá námi en ástæður má einnig rekja til áhrifa-
þátta eins og lítils stuðnings og hvatningar fjölskyldu sem og
innan skólakerfisins, stefnuleysis í námsvali og persónulegra
erfiðleika. Brösótt gengi í bóklegum greinum og afleiðingar
neikvæðrar upplifunar á skólakerfinu hafa haft áhrif á sjálfs-
mynd þeirra og trú á eigin getu. Erfiðleikarnir hafa hindrað þá
í að ljúka námi en samkvæmt náms- og starfsráðgjöfum, sem
sinna þátttakendum í raunfærnimati iðngreina, á stór hluti
þeirra einstaklinga, sem hafa farið í gegnum slíkt mat, við
námserfiðleika að stríða og hafa þessar hindranir haft áhrif á
allt þeirra nám og framtíðarsýn. Ákveðið vonleysi og úrræða-
leysi einkennir frásögn þeirra og hindranir verða á köflum
óyfirstíganlegar eins og einn viðmælenda minna nefnir:
,,þetta var seinasta önnin þegar ég var alveg búinn að gefast
upp og ætlaði bara ekkert í skóla aftur“. Ætla mætti að þeir
tilheyri hópi nemenda sem eiga erfiðara með að takast á við
hindranir sem á vegi þeirra verða í skólaumhverfinu og virðast
þurfa lítið til að gefast upp í námi. Óttinn við að mistakast er
til staðar og hræðslan við að standast ekki þær kröfur, sem
settar eru, hafa óneitanlega sett mark sitt á sjálfsmynd þeirra
eins og einn viðmælandi minn lýsir hér svo sterkt:
… að vera þetta gamall og vera svo sá sem maður er
skilurðu það í rauninni, ég myndi segja, ég veit eiginlega
ekki hvernig ég á að segja þér það þú veist, ég skammast
mín fyrir að þú veist að kunna ekki meira. Mér fannst svo
erfitt að koma mér á framfæri … og vera þetta gamall
og vera svo sá sem maður er skilurðu …
Þrátt fyrir erfiðleika í grunnskóla fóru viðmælendur mínir
flestir í framhaldsskóla strax eða fljótlega eftir að grunnskóla
lauk. Fljótlega í framhaldsskóla fór að bera á erfiðleikunum
sem höfðu áhrif á þá í náminu líkt og áður. Þeir upplifa að ná
ekki að halda eðlilegri námsframvindu og eru komnir á eftir í
námi. Neikvæð sjálfsmynd þeirra og lítil trú á eigin getu virð-
ist gera það að verkum að þeir hafa ekki frumkvæði að því að
leita sér aðstoðar. Allir viðmælendur mínir nefna að stuðn-
ingur innan skólakerfisins hafi ekki verið sýnilegur og enginn
af þeim leitaði sér aðstoðar þegar ákvörðun um að hætta í
námi var yfirvofandi. Ákvörðunin var tekin af þeim einum og
sjaldnast í samráði við foreldra eða aðra fagaðila. Annað var
uppi á teningnum þegar viðmælendur mínir ákváðu að taka
þátt í raunfærnimatinu en þá fundu þeir mikinn stuðning og
hvatningu frá fjölskyldu og vinum og þeir fundu loks leið til
þess að klára nám sem þeir byrjuðu á fyrir margt löngu. Þeir
telja hvatninguna mikilvæga og hafa þeir nú allir fjölskyldu
sína með í ráðum um framhaldið.
Í N á M á N ý j A N L E I K
Sú ákvörðun að hætta í námi hefur reynst viðmælendum
mínum erfið og hugsunin um að ljúka námi hefur aldrei
vikið úr huga þeirra. Allir hafa þeir reynt að fóta sig í skóla-
samfélaginu að nýju og margir oftar en einu sinni. Árangur
þessara tilrauna hefur ekki verið sem skyldi en þrátt fyrir
brösótt gengi og uppgjöf sögðust allir viðmælendur mínir
hafa haft mikla löngun til að hefja nám að nýju. Viljinn og
löngunin hefur verið til staðar en þá hefur vantað frumkvæði,
hvatningu og þor til að yfirstíga hindranir sem hafa orðið á
vegi þeirra. Þeir nefna allir að þeir hafi alltaf haft hug á ljúka
sveinsprófi og fannst mikil byrði að hafa ekki lokið námi.
Mikilvægi þess að öðlast réttindi vegur hér þyngst hjá þeim
þar sem allir nema einn eru fjölskyldufeður og ábyrgðin að
standa sig sem framfærsluaðili og fyrirvinna skiptir þá miklu
máli. Ein leið til að tryggja hag fjölskyldunnar er að öðlast
starfsréttindi að þeirra mati.
ó T T I N N V I Ð A Ð M I S T A K A S T –
L Í T I L T R ú á E I g I N g E T U
Sú ákvörðun að hefja nám að nýju, eftir að hafa farið í
gegnum raunfærnimat, vakti upp blendnar tilfinningar hjá
viðmælendum mínum þar sem kvíði og tilhlökkun toguðust