Gátt - 2010, Page 86

Gátt - 2010, Page 86
86 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0 gefinn. Í öðrum nemendahóp geta verið þátttakendur af mismunandi þjóðerni, karlar og konur, fólk á mismunandi aldri og úr mismunandi atvinnugreinum eða landshlutum. Enn fremur getur námsefni og námsumhverfi miðast við aðrar menningarlegar forsendur en þátttakendur í náminu hafa. Það er því mikilvægt fyrir leiðbeinendur að skilja að mismunandi menningarbakgrunnur einstaklinga hefur áhrif á námsáhuga og námsferlið. Menningin samanstendur af þéttriðnu neti tungumáls, skoðana, gilda og hegðunarmynstri sem umlykur líf okkar sem einstaklinga og hefur mikil áhrif á áhugahvötina. Eðlislæg áhugahvöt stjórnast að miklu leyti af tilfinningum en þær mótast einmitt af því menningar- og félagslega umhverfi sem einstaklingurinn tilheyrir. Námsmaður upplifir margvíslegar tilfinningar meðan á námsferli stendur og þær geta bæði verið jákvæðar og neikvæðar. Einstaklingar með ólíkan menningarbakgrunn geta t.d. brugðist mjög ólíkt við vanmáttarkennd gagnvart verkefni. Einn gefst strax upp og hættir en annar heldur áfram af enn þá meiri einbeitingu. (Wlodkowski, 2008:bls. 20) Í ritgerð Svanfríðar Jónasdóttur „Námsáhugi fólks með litla formlega menntun“ kemur ýmislegt fram sem gæti verið vísbending um að hlúa þurfi betur að öllum nemendum og taka meira tillit til menningarbakgrunns þeirra ef við viljum efla og glæða námsáhuga þeirra og skapa námsumhverfi sem mætir þörfum þeirra. Rannsókn hennar byggðist á ein- staklingsviðtölum og rýnihópasamtölum við fólk með litla formlega menntun. Þar kemur skýrt fram að umhverfið (menningin) hefur mikil áhrif á námsáhuga einstaklinganna. Viðhorf foreldra og félaga til náms, atvinnuástand og sam- setning atvinnulífsins á staðnum ásamt þeirri hvatningu, umræðu og ráðgjöf, sem veitt er innan grunnskólans, hafa mótandi áhrif á námsáhuga og viðhorf til náms. Þeir viðmæl- endur, sem komu af landsbyggðinni, höfðu minni áhuga á námi, fóru síður í framhaldsskóla og hættu fyrr en þeir sem komu af höfuðborgarsvæðinu. Menntun foreldra ræður tals- vert miklu um námsáhuga ungs fólks þannig að því minni menntun sem foreldrar hafa því minni hvatningu til náms veita þeir börnum sínum. (Svanfríður Jónasdóttir, 2005:bls. 79–80) Ef markmiðið er að skapa námsaðstæður sem eru árang- ursríkar og hvetjandi fyrir alla í námshópnum þarf leiðsögnin og námsferlið að einkennast af menningarlegri næmni og virðingu fyrir fjölbreytileika. „Culturally responsive teaching is characterized by respect for diversity; engagement of the motivation of all learners; creation of a safe, inclusive, and respectful learning environment; teaching practices that cross dis- ciplines and cultures; integration of culturally responsive practices into all subject areas; and the promotion of justice and equity in society (Wlodkowski and Ginsberg, 1995; Phuntsog, 1999).“ (Wlodkowski, 2008:bls. 21) H V A Ð H V E T U R F U L L o R Ð N A T I L N á M S ? Í öllum menningarheimum er ætlast til að fullorðinn einstak- lingur beri ábyrgð á eigin lífi. Ábyrgðinni fylgir þörf fyrir að ná árangri í því sem gefur lífinu gildi fyrir einstaklinginn. Þessir tveir þættir eru hornsteinar í áhugahvöt fullorðinna einstaklinga og hafa afgerandi áhrif á námsáhuga. Fyrri reynsla og þekking hefur mikil áhrif á það sem fullorðnir telja áhugavert, hagnýtt og þess virði að læra. Ein mikilvægasta forsenda námsáhuga hjá fullorðnum er sjálfviljug þátttaka í námsferlinu. Líklegt er að áhugi dvíni smám saman ef þátt- taka er skylda eða kvöð gegn vilja einstaklingsins enda er þá tekin af viðkomandi ábyrgð á eigin ákvörðunum sem er svo mikilvæg. Wlodkowski telur að leiðbeinendur þurfi að hafa fjögur meginatriði (motivational conditions) í huga þegar kennsla er skipulögð, kennsluhættir og námsathafnir valdar í því augnamiði að efla og glæða námsáhugann. Þessi meginatriði eru öll mikilvæg og hafa gagnverkandi áhrif. (Wlodkowski, 2008:bls. 102–112) Hér verður sagt stuttlega frá hverju þeirra og nefnd dæmi úr okkar umhverfi. Í bókinni sjálfri er sjálfstæður kafli um hvert þessara atriða með góðum rök- stuðningi, útskýringum og reynslusögum höfundar sem á að baki áratuga kennslureynslu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.