Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 58
og þá sennilega F-actin mícrofílament og viðtakar,
t.d.í frumuhimnunni sem eru næmir fyrir mekan-
ískum kröftum, vinni santan við að umbreyta
eðlisorkunni í boð innan frumunnar (3) (Mynd 3).
Stutt breyting á núningskrafti veldur breyttu
gegndræpi frumuhimnunnar fyrir jónum (opnun K+
ganga er sennilega mikilvægust), virkjun adenýl
cýklasa, myndun ínósítól fosfata og hækkun á
[Ca2+]j. Eru þessi viðbrögð svipuð og þegar frum-
urnar eru virkjaðar með áverkunarefnum (agon-
istum) og gerast á millisekúndum eða mínútum. Ef
breytingin á núningskrafti varir í nokkrar klukku-
stundir hefur það áhrif á tjáningu gena, t.d. fyrir
vaxtarþætti og endothelin, og ef breytingin er
varanleg veldur það endurskipulagningu á
frumugrindinni með tilheyrandi útlitsbreytingu á
frumunni. Svörun æðaþelsfrumanna er þannig mis-
munandi eftir því hversu lengi breytingin á nún-
ingskrafti og/eða þrýstingi hefur varað.
Æðaþelið gegnir mikilvægu hlutverki sem
þröskuldur milli blóðs og vefja og stjórnar flutningi
vökva og efna þar á milli Vatn og sameindir minni
en 10 nm í þvermál fara í gegnum æðaþelið um lítil
göt en sameindir stærri en 10 nm notast við stærri
göt aðskilin þeim fyrri. Þessi göt voru talin vera í
millifrumubilinu en nýlegar rannsóknir benda frekar
til þess að flutningur efna gegnum æðaþelið fari
fram með blöðrukerfi (vesicular system) og um
göng í gegnum frumuna sem opnast í frumuhimn-
unni (4). Efni sem auka gegndræpi æðaþelsins
hækka [Ca2+]j og örva prótein kínasa C þannig að
æðaþelsfrumurnar dragast saman.- Hvernig það
hefur svo áhrif á gegndræpið er ekki vitað.
Efni sem auka cAMP og cGMP í æðaþels-
frumunum framkalla slökun frumanna og minnka
þannig gegndræpi æðaþelsins (5).
Stjórnun á æðavídd.
Stjórnun æðaþelsins á vídd æða er flókin og
ræðst af mörgum þáttum. Helstu æðavíkkandi þætt-
irnir sem æðaþelið framieiðir eru prostacyclin
(PGH), slökunarþáttur æðaþels (endothelium deri-
ved relaxing factor, EDRF) og ofskautunar þáttur
æðaþels (endothelium-derived hyperpolarizing
factor, EDHF) en thromboxane A2, prostaglandin H2
og endothelín eru helstu æðaþrengjandi efnin. Nún-
ingskraftur og ýmis áverkunarefni (t.d. histamín,
acetylcholín og bradykínín) örva frumurnar til
myndunar á þessum efnum. Það er svo mismunandi
hvernig frumurnar bregðast við eftir því hvort um er
að ræða bláæðar, bláæðlinga, slagæðar eða háræðar.
Mynd 4. tiíynd sem sýnir áhrifNO á sléttar vöðvafrumur í œðum. NO, Nitrið oxide; cGMP, hringlaga guanosín 3’, 5'
einfosfat; NOS, NO synthasi; GC, guanýlate cýklasi.
56
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.