Læknaneminn - 01.04.1995, Qupperneq 79
suma hluta líkamans með berum höndum. Hand-
klæðið verður að vera rétt samanbrotið og viss hluti
sápunnar notaður fyrir vissan hluta þvottapokans.
Hún telur hve oft hún þvær hvern líkamspart og
finnst hún t.d. ekki hrein á fótunum fyrr en hún
hefur nuddað fótinn 50 sinnum. Það tekur óratíma
að snyrta sig og blása hárið, því fyrst þarf að raða
öllum snyrtivörunum upp á sérstakan hátt á
snyrtiborðið. Þær verður svo að nota í nákvæmlega
réttri röð. Ef eitthvað fer úrskeiðis þarf hún að byrja
á öllu upp á nýtt. A kvöldin þarf hún að sannreyna
mörgum sinnum hvort gluggar og hurðir séu lokaðar
og læstar, og hvort slökkt hafi verið á eldavélinni.
Öllum þessum athöfnum og hugsunum fylgir mikill
kvíði og spenna sem minnkar við framkvæmdina.
Henni finnst ömurlegt að þurfa að fylgja þessum
ritúölum. Stundum sækja á hana hugsanir sem valda
henni mikilli vanlíðan. Hún sér t.d. myndir fyrir sér
þar sem hún stingur mann sinn eða barn með hnífi
og jafnvel drepur þau. Hún skammast sín vegna alls
þessa, leynir því og segir ekki einu sinni manni
sínum frá öllum einkennunum.
Persónu- og félagssaga
Sjúklingur er giftur rithöfundi og eiga þau 14
mánaða dreng. Hjónabandið og heimilislífið virðist
ganga ágætlega.
Hún ólst upp í Reykjavík hjá foreldrum sínum og
tveimur eldri systrum. Meðganga og fæðing munu
hafa gengið vel. Hreyfi- og málþroski var eðlilegur
og náði hún stjórn á þvagi og hægðum á eðlilegum
tíma. Móðir hennar var heimavinnandi og var
heilsutæp. Níu ára gömul varð hún fyrir þeirri
hörmulegu reynslu að missa móður sína í bílslysi.
Hún var ein með móður sinni í bílnum en slapp
ómeidd. Hún segist aldrei hafa haft tækifæri til að
ræða þetta við neinn og það hafi ríkt óþægileg þögn
yfir þessu áfalli. Faðir hennar var framkvæmdastjóri
í litlu fyrirtæki. Hún lýsir honum sem afar stjórn-
sömum manni sem alltaf var með aðfinnslur.
Sambandið við föðurinn var aldrei náið. Eftir lát
móðurinnar fluttist til þeirra frænka hennar, með
lítið bam, til að annast heimilið. Nokkrum mánuðum
síðar giftist frænkan föður sjúklings og áttu þau
seinna 2 börn saman. Upp frá því fannst henni hún
vera eins konar blóraböggull á heimilinu sem kennt
var um allt sem aflaga fór. Hún segir að önnur systir
sín hafi haft yndi af því að stríða sér og kvelja, og
SJÚKRATILFELLI
hafi notað öll tækifæri til að gera lítið úr sér. I dag er
þó samband systranna með miklum ágætum.
Sjúklingi gekk vel í barnaskóla og átti þar fáa en
góða vini. Hún var alltaf mjög feimin og óframfærin
í samskiptum við hin börnin í skólanum. Enn þann
dag í dag á hún tvær nánar æskuvinkonur sem hún
hittir af og til. Henni finnst hún vera utangátta,
minni máttar og eins og illa gerður hlutur í ýmsum
öðrum hópum, t.d. í vinnunni. Segist oft hafa það á
tilfinningunni að hún sé öðruvísi en fólk er flest og
skammast sín fyrir það. Heima fyrir vinnur hún
eingöngu allra nauðsynlegustu heimilisstörfin. Hún
er lengi að öllu vegna fullkomnunaráráttunnar og sér
maður hennar þess vegna að mestu um matseldina.
Hún segir mann sinn óánægðan með hve lítinn þátt
hún tekur í heimilisstörfunum.
Heilsufarssaga
Hún hefur alltaf verið líkamlega hraust, reykir og
drekkur í hófi.
Fjölskyldusaga
Saga um geðsjúkdóma í föðurætt. Faðir heil-
brigður en tvær frænkur fengu einhvers konar þung-
lyndi sem tengdist skjaldkirtilssjúkdómi hjá a.m.k.
annarri þeirra.
Geðskoðun við komu
Sjúklingur var snyrtileg og útlit svaraði aldri.
Myndaði góð tengsl við viðmælanda en átti erfitt
með að sitja kyrr og var öll á iði. Döpur yfirlitum og
grét af og til. Lýsti afar slæmri innri líðan, bæði
depurð og kvíða. Hugsanagangur var rökréttur og í
samhengi. Hugsanainnihald snérist um áhyggjur
varðandi framtíðina, einkum í sambandi við starfið.
Engar sjálfsvígshugsanir, ranghugmyndir eða of-
skynjanir. Sjúkdómsinnsæi og dómgreind í góðu
lagi. Greind virtist yfir meðallagi og engin merki um
röskun á vitrænni heilastarfsemi.
Skoðun við komu
Hávaxin kona, mjög grönn, föl og tekin að sjá.
Skoðun á hjarta, lungum og öðrum líffærakerfum
var eðlileg. Púls reglulegur 82 sl/mín og blóðþrýst-
ingur 130/80.
Rannsóknir
Blóðstatus, diff, sökk, elektrolýtar, prótein,
albumin, kreatínín, blóðsykur og TSH allt eðlilegt.
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg
73