Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1995, Page 89

Læknaneminn - 01.04.1995, Page 89
Einstaklingarnir geta þannig verið einkennalausir allt þar til flysjunin gefur sig eða æðagúllinn spring- ur og sjúklingurinn örkumlast eða deyr. Þannig er subarachnoidal blæðing ein algengasta dánarorsök þessara sjúklinga. Sjaldgæfara einkenni frá tauga- kerfi er lömun neðri útlima (þverlömun, paraplegia) af völdum þrýstings frá stórum hliðarblóðæðum í mænugöngum (22). Vandamálin geta einnig stafað af því aukna viðnámi (afterload) sem þrengslin valda og hjartað þarf að vinna á móti. Fullorðnir einstaklingar fá því stundum hjartabilunareinkenni og hjartadrep sem fyrstu einkenni ósæðarþrengsla. Fullorðnir einstaklingar með ósæðarþrengsli geta lifað í einstaka tilfelli, eðlilegu lífi fram á fullorð- insár. Meðal ævilengd sjúklinga með ósæðarþrengsli án meðferðar er á bilinu 30-40 ár, en 75% eru látnir fyrir fimmtugsaldur (23). Síðkomnir fylgikvillar ósæðarþrengsla eru nú mun sjaldgæfari en áður. Munar þar mestu um betri greiningartækni og fleiri snemmgreiningar í ung- barnaeftirliti. Einnig hefur meðferð og meðhöndlun sjúklinga í og eftir aðgerðir, sem og þróaðri aðgerðartækni bætt lífshorfur þeirra (22). Greining Við sögutöku er mikilvægt að spyrja út í viðeigandi einkenni m.t.t. aldurs eins og greint var frá hér að ofan. Við skoðun er einkum þrennt sem er einkennandi fyrir sjúklinga með þrengsli á ósæð og sést það í meira eða minni mæli hjá öllum aldurshópum. 1.1 fyrsta lagi er að þreifa eftir púlsum í nára og bera saman við púls í hægri úlnlið. Púlsinn ætti að koma örlítið fyrr og vera kröftugri í nára. Hjá sjúklingum með þrengsli á ósæð er púls í nára ýmist mjög veikur og síðkomnari samanborið við púls í úlnlið, eða alveg horfinn. Þetta á við alla aldurshópa, Samanburðurinn við hægri úlnlið er mikilvægur því í einstaka tilviki á a. subclavia sin. upptök sín fyrir neðan þrengslin. 2. Þá er mikilvægt að mæla blóðþrýsting bæði í upphandlegg og lærlegg. Systoliskur blóðþrýstingur er um 20 mmHg hærri í neðri hluta líkamans. Ef hann mælist svipaður, eða hærri, í upphandlegg miðað við læri er það mjög grunsamlegt fyrir ósæðarþrengsli. Systoliskur blóðþrýstingur sem er ÓSÆÐARÞRENGSLI meira en 20 mmHg hærri í upphandlegg heldur en lærlegg er einkennandi fyrir ósæðarþrengsli (9). 3. Hjartahlustun getur einnig hjálpað. Hjá nýbura í hjartabilun er oft dauft óhljóð en gallop getur heyrst. Hjá eldri einstaklingunum heyrast óhljóð frá þrengslunum sjálfum en þau eiga upptök sín í því iðustreymi sem verður um og aftan við þrengslin. Þau heyrast greinilegast á milli herðablaðanna. Óhljóðið er systoliskt en þ.s. útflæðisbylgjan fer nokkrum msek. seinna um þrengslin nær óhljóðið inn í diastoluna. Samhliða ósæðarþrengslunum eru oft hjartagallar sem valda hjartaóhljóði. Algengastur þeirra er tvíblaðka ósæðarloka, en þá heyrist oft útflæðisóhljóð og smellur. Einnig má oft heyra flæðisóhljóð sem eiga upptök sín frá hliðarblóðrás (3,9,24,25). Helstu rannsóknir Til að staðfesta greiningu ósæðarþrengsla og sem undirbúningur fyrir skurðaðgerð eru ýmsar rann- sóknir nauðsynlegar. Hiartarit (EKG) Sýnir hægri slegilsstækkun hjá nýburum en hjá eldri einstaklingum kernur fram vinstri slegils- stækkun (24). Mynd 4. Hér sést greinilega, með segulómun, lokun á ósœð hjá þriggja og hálfs árs gömlum sjúklingi (Röntgendeild Landspítala). LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.