Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1995, Page 90

Læknaneminn - 01.04.1995, Page 90
Röntgen A röntgenmyndum af brjóstholi sjúklingsins eru ákveðin merki alveg einkennandi fyrir ósæðar- þrengsli. Hjá nýburanum sést hjartastækkun og þandar æðar (stasi) en hjá þeim eldri er hjarta- stækkunin minna áberandi. Einnig kentur fram s.k. „3“ merki í útlínur ósæðarbogans, þ.s. lungna- vefurinn liggur upp að honum. Hjá eldri krökkum og fullorðnum koma fram úrátur eða holur í rifbeinin (rib notching), þ.s. stórar og hlykkjóttar millirifjaæðar (aa. intercostalis) liggja og þjóna sem hliðarblóðrás framhjá ósæðarþrengslunum. Holurnar eru mest áberandi í fyrstu sex rifbeinunum og koma fram sem pör u.þ.b. 5 og 8 cm. frá hrygg (26). Hiartaómun Með tvívíddarómskoðun af hjarta er unnt að meta hversu þröng ósæðin er og þrýstingsfall yfir þrengsl- in má mæla með Doppler ómun. Einnig fást mikils- verðar upplýsingar um ástand hjartavöðvans og einnig hvort um tengda hjartagalla geti verið að ræða. Omun kemur einnig að notum við greiningu á ósæðarþrengslum, eins og öðrum hjartagöllum, á fósturskeiði. Ef vinstri hluti hjarta fósturs og ósæðarboginn eru vanþroska (hypoplastisk), er það talið greiningaratriði fyrir ósæðarþrengsli, en erfitt er að greina sjáif þrengslin. Kostir ómskoðunar eru augljósir enda án inngrips, sársaukalaus fyrir sjúklinginn og henni fylgir engin skaðleg geislun (27, 28,29). Hjartaþræðing Hjartaþræðing og æðamyndataka eru notaðar til greiningar og til að meta alvarleika þrengslanna, þ.e. hvort um algjöra lokun er að ræða eða ekki. Með hjartaþræðingu má einnig meta blóðþrýstingsfallið yfir þrengslin mjög nákvæmlega (9). Hjá nýburum er æðamyndatöku sjaldnar beitt en áður þar sem rannsóknir án inngrips, eins og ómun og segulómun, hafa leyst hana af hólmi. Fullorðna þarf aftur á móti ætíð að rannsaka með æðamyndatöku. Segulómun Segulómun (Magnetic resonance imaging) er mikilvæg til að hjálpa skurðlækni að átta sig á legu og lengd þrengsla fyrir aðgerð (Mynd 4). Með sömu tækni (cine M.R.I.) er hægt að skoða atriði eins og hjarta og hjartalokur, á hreyfingu. Ákveðin útfærsla á þeirri tækni s.k. velocity en- coded cine magnetic resonance imaging (VENC- MRI) gerir okkur etv. kleyft, í framtíðinni, að áætla blóðflæði um hliðarblóðrás fram hjá ósæðar- þrengslum. Þetta er mjög mikilvægt þar eð einn fylgikvilli aðgerðanna, sem kemur stöku sinnum fyrir, er blóðþurrðarskemmd á mænu vegna ónógrar hliðarblóðrásar (30). Meðferð Nvburar Eftir að greining liggur fyrir hjá hjartabiluðum nýbura eru gerðar ráðstafanir til að opna fósturæðina með prostaglandin E, og tryggja þannig blóðrás til neðri hluta líkamans þar til aðgerð hefur verið framkvæmd. Við hjartabilun er samdráttarkraftur hjartans aukinn með inotróp lyfjum eins og digitalis, þvag- útskilnaður aukinn með þvagræsilyfjum og súrefnis- mettun bætt með 02 gjöf. Einnig er mikilvægt að hvíla og róa sjúkling, t.d. með morfíni. Þá getur verið nauðsynlegt, til að minnka álag á sjúklinginn, að setja sjúklinginn á öndunarvél. I kjölfarið verður ástand hans stöðugra og hann því betur undirbúinn til aðgerðar. Aðgerð er nauðsynleg til að nema burt þrengslin. Þá er ýmist gerð s.k. subclavian flap aðgerð, end to end anastomosis, extended end to end anastomosis eða patch angioplasty. Ef æðin vex of hægt næstu árin geta þrengsli komið aftur, en þá er hægt að gera æðaútvíkkun (balloon angioplasty) á svæðinu (3,17,18). Eldri börn og fullorðnir Barn eða fullorðinn einstaklingur sem greinist með ósæðarþrengsli, en er annars einkennalítill, fer í elektíva aðgerð eftir rannsóknir og uppvinnslu, sem tryggja að sjúklingurinn sé í eins góðu líkamlegu ástandi og frekast er kostur. Þannig er tryggt að fylgikvillar aðgerðar verði færri. Skurðaðgerðir Sagan Aðgerð vegna ósæðarþrengsla er ein elsta þekkta aðgerð á hjarta og æðakerfinu. Fyrstur manna til að lýsa aðgerð á ósæðarþrengslum var Robert E. Gross, 84 LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.