Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1995, Side 105

Læknaneminn - 01.04.1995, Side 105
RETINITIS PIGMENTOSA með tímanum. Augnbotnar líta langoftast eðlilega út. Þetta fyrirbæri erfist autosomal ríkjandi, víkjandi og X-tengt og er þá nærsýni oftast meðfylgj- andi. Sett hefur verið fram sú kenning eftir prófun með sjónhimnuriti og fleiri prófum að sennilega sé um að ræða galla í taugaleiðni í sjóntaug, en ekki í Ijósnemum. Tvær gerðir CSNB hafa óeðlilega augnbotna, Oguchi sjúkdómur og Fundus albi- punctatus. 5. Thioridazine - (,,Melleril“) - sjónhimnu- sjúkdómur. Notkun þessa lyfs getur valdið sjón- himnuskemmdum sem veldur einkennum á borð við náttblindu og minnkaðri sjónskerpu. Við sjónsviðs- mælingar geta komið fram hringeyður í sjónsviði líkt og í RP og ERG getur orðið óeðlilegt. I augn- botnum sjást litarefnistilfærslur, lfkt og í RP. Ahrifin eru skammtabundin. Breytingarnar og einkennin kunna að hverfa eftir að meðferð er hætt, en í sum- um tilfellum helst ástand óbreytt og getur jafnvel versnað. 6. Syphilis neuroretinitis (sjónhimnu- og sjóntaugarbólga). Getur verið í öðru auganu eða báðum. Sjónskerpa minnkar oft fljótt. Kemur fram sem sjónhimnubólga (retinitis), sjóntaugarbólga (optic neuritis) eða hvort tveggja (neuroretinitis). Gengur yfirleitt til baka með meðferð. Nokkur orð um erfðafræði RP Með aðferðum sameindaerfðafræði hefur reynst kleift að flokka RP enn frekar niður og kemur þá æ betur í ljós hversu margskiptur sjúkdómurinn er. Þetta er hópur sjúkdóma sem orsakast af afbrigði- legum genum í nokkrum litningum. Ríkjandi teg- undin hefur verið rannsökuð mest og er hún rakin til litninga 3, 6, 7 og 8. Víkjandi tegundin hefur verið rakin til litnings 3 og víkjandi tegundin sem tengist Usher heilkenni (m.a. heyrnarleysi) til litnings 1.1 það minnsta tvær X-tengdar tegundir hafa verið raktar til mismunandi staða (loci) á stutta armi X- litningsins. Árið 1984 var rhodopsíngenið staðsett á litningi 3q. Fjórum árum síðar fannst genagalli í fjölskyldu með rfkjandi RP einmitt á litningi 3q. Rhodopsín er staðsett í diskum stafa í sjónhimnu og gegnir það veigamiklu hlutverki við ljósmiðlun (phototrans- duction) sem er grunnur Ijósskynjunar og þar með sjónar. Rhodopsíngenið er 7000 basar að stærð og inniheldur 5 exona, eða kódasvæði. Þessir exonar eru þýddir af mRNA yfir í rhodopsínpróteinið sjálft, sem inniheldur 348 amínósýrur. Hver rhodopsín- sameind hlykkjast sjö sinnum í gegnum frumuhimnu ytri hluta stafanna, fjórar lykkjur vísa inn í cyto- plasma og þrjár lykkjur út í millidiskabilið í stöfunum (Mynd 4). A-vítamín, eða 11-cis-retinal hreiðrar síðan um sig í eins konar lófa sem mynd- aður er úr litlum hlykkjum í rhodopsínmólekúlinu. Nú hafa greinst yfir 40 tegundir af stökkbreytingum sem verða víðsvegar á rhodopsínpróteininu í auto- somal ríkjandi RP. Þetta eru punktstökkbreytingar þar sem í flestum tilfellum verða basaskipti og þar með kemur fram ný amínósýra í próteininu, eða að heilu basaraðirnar detta út. Flafa menn velt fyrir sér þeim áhrifum sem þetta gæti haft í för með sér. Ýmsir hlutar próteinsins gætu aflagast, inni í cyto- plasma, í frumu-(diska) himnunni eða í millidiska- bilinu. Hæfni til að binda A-vítamín gæti minnkað, aðlögun að frumuhimnu minnki eða sambland allra þessara þátta. Talið er að um 25-30% allra sjúklinga með ríkjandi RP hafi eina af þessum stökkbreyt- ingum. Nú þegar hefur verið sýnt fram á mismun- andi sjúkdómsgang eftir því hvar stökkbreytingin verður. Til dæmis er áætlað að sjúklingar með Pro23His (amínósýra 23 breytist úr Prolíni í Histi- dín) stökkbreytingu verði lögblindir að meðaltali um sjötugsaldur, en þeir sem séu með Pro347Leu Mynd 4. Þrívíddarbygging rhodopsínsameindarinnar. Hún myndar nokkurs konar lófa sem tekur við A-vítamín- inu er tengist lysínafleiðu með samgildu tengi (merkt með bókstafnum K) í sjöundu lykkju mólekúlsins (lykkjurnar eru merktarfrá 1-7) (Úr: Applebury ML: Molecular gene- tics. Insight into blindness. Nature, 343, bls. 317) LÆKNANEMINN I. tbl. 1995 48. árg 99
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.