Læknaneminn - 01.04.1995, Síða 108
Minning
Guðmundur Tómas Arnason var fœddur íReykjavík 21. janúar 1969. Hann lést 27. nóvember
1994. Foreldrar hans eru Selma Guðmundsdóttir píanóleikari og Arni Tómas Ragnarsson læknir.
Systkini Guðmundar Tómasar eru: 7. Ragnar Tómas laganemi, f. 28. ágúst 1970, kvœntur Sigríði
Freyju Ingimarsdóttur píanónema. Þeirra sonur er Ingimar Tómas. 2. Kristján Tómas
menntaskólanemi, f. 6. desember 1978, og 3. Selma Lára, f. 10 desember. Unnusta Guðmundar
Tómasar er Olöf Sigríður Valsdóttir söngnemi. Guðmundur Tómas lauk BA-prófi í heimspeki frá
Háskóla Islands veturinn 1993 og var á öðru ári í lœknisfræði er hann lést. Útför Guðmundar
Tómasar var gerð frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 8 desember 1994.
Þau voru þung skrefin er við kvöddum hjart-
fólginn vin okkar og skólafélaga, Guðmund
Tómas Arnason síðla árs 1994. Það er í raun
fyrst nú, nokkrum
mánuðum eftir and-
lát hans, að við erum
farin að átta okkur á
því að við sjáum
hann ekki aftur og að
það er eitthvað sem
við verðum að sætta
okkur við og læra að
lifa með. Það verður
engu að síður alltaf
ofar okkar skilningi
hvers vegna hæfi-
eikaríkur maður eins
og hann skyldi deyja
í blóma lífsins.
Kraftur, metnaður
og kappsemi eru orð
sem lýstu Gumma
vel. Hlýja, umhyggja
og mannkærleikur
einkenndu hann ekki
síður. Slíkir eigin-
leikar komnir saman í einni manneskju segja
meira en mörg orð. Gummi var einstakur á allan
hátt.
Gummi var hlýr og persónulegur við alla og
gaf sér tíma til að kynnast hverjum og einum á
forsendum viðmælanda. Þessi eiginleiki aflaði
honum mikillar vinahylli og það var eiginlega
sama hversu lítið fólk þekkti hann, allir litu á
hann sem góðan vin
sinn. Hann var að
auki mjög skemmti-
legur og það var
gaman að vera nálægt
honum. Það var ætíð
ljóst að þessi fram-
koma hans var sönn
og sprottin af hlýju og
áhuga hans á með-
bræðrum sínum. Ekk-
ert mannlegt var
honum óviðkomandi
og hann gat snert
strengi í hverri sál.
Það fór ekki fram-
hjá neinum þeim sem
Gumma kynntist að
hann bjó yfir mikilli
þekkingu og visku.
Hann var heimspek-
ingur bæði að mennt
og sál. Djúp hugsun
og víðsýni einkenndu málflutning hans enda
hlustuðum við þegar Gummi talaði. Hann var
hvort tveggja í senn, jafningi okkar og ofjarl.
Gummi kom víða við og stóð sig vel í öllu
því sem hann tók sér fyrir hendur. Ahugamálum
102
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.