Læknaneminn - 01.04.1995, Side 121
AÐALFUNDUR
AÐALFUNDUR F.L.
1993-1994
Aðalfundur Félags læknanema var haldinn þann ló.okt
1993 og lyktaði kosningum til stjómar á eftirfarandi veg:
Formaður:
Ritari:
Gjaldkeri:
Form. kcnnslumálanefndar:
Form. fræðslunefndar:
Stúdentaskiptastjóri:
Fulltrúi 3. árs:
Fulltrúi 2. árs:
Fulltrúi 1. árs (byrjaði e. jól):
Þorsteinn Gunnarss.
Arnar Þór Guðjónss.
Agnes Smáradóttir.
Helena Sveinsdóttir.
Sigurður Magnason.
Halidóra Jónsdóttir.
Jórunn Viðar
Valgarðsd.
Ingibjörg Guðmunsd.
Sunna Snædal.
Starfsemi félagsins var með hefðbundnu sniði og
voru stjórnarfundir haldnir tvisvar til fjórum sinnum í
mánuði eftir því sem ástæða þótti til. Enginn félagsfundur
var haldinn þar sem sú hefð hefur skapast að ekki séu
haldnir félagsfundir nema eitthvað meiriháttar mál sé til
umfjöllunar. Hér á eftir verður stiklað á því helsta sem
stjórn félagsins hafði afskipi af.
I. Samskipti við Stúdentaráð.
1. Formannafundir voru heldur stopulir framan af vetri
en fjölgaði þegar leið að kosningum s.l. vor. Eftir að skipt
var um höfuðpaura í Stúdentaráði fjölgaði fundunum til
muna. Það sem helst skipti læknanema einhverju máli í
vetur voru úthlutunarreglur Stúdentasjóðsins sem voru
harkalega gagnrýndar af mörgum forsvarsmönnum
deildarfélaga. Við þá umræðu kom berlega í Ijós að
deildarfélögin hafa mjög mismunandi áherslur í sínu
félagsstarfi, allt frá því að vera eingöngu „förum í partý“
félög og upp í hliðstæð félög og F.L. með metnaðarfulla
útgáfustarfsemi (ekki okkur-langar-ókeypis-til -útlanda
blöð), stúdentaskipti o.s.frv. Það sem sló formann F.L.
sérstaklega var áhugaleysi nemenda á kennslumálum og
skilningsleysi þeirra á því t.d. að læknanemar þyrftu að
fara til útlanda vegna þessara málefna. Ahugi okkar á
kennslumálum er að öllum líkindum svona mikill vegna
þess að læknanámið er óvenju flókið í dýnamískt og
byggist mikið upp á maður á mann kennslu. Það þarfnast
því mjög mikils aðhalds. Læknanámið er líka það
langt að læknanemar sjá árangur verka sinna og
njóta ávaxtanna áður eftir að þeir hætta í baráttu
sinni fyrir bættri kennslu ef vel tekst til. Auk þess er
læknanám í mjög örri þróun um allan heim. Svo
virtist sem úthlutunarreglur Stúdentasjóðsins
henturðu ekki F.L. og því voru styrkir til okkar
fremur rýrir og eflaust höfum við verið „of
heiðarleg“ í umsóknum okkar um styrki. Auk þess
voru fastir styrkir til hvers félags litlir og ekkert tillit
tekið til stærðar félagsins. í kjölfar þessa var skipuð
nefnd til að endurskoða úthlutunarreglurnar og fá nú
stóru félögin hærri upphæðir en þau minni og einnig
hefur reglum um hvað er styrkt og hvað ekki verið
breytt þannig að í vetur ætti að vera auðveldara að
sækja um hina ýmsu styrki.
2. Starfsemi Félags deilda- og skorafélaga lá að
mestu leyti niðri í vetur en þó náðist að skipuleggja
eina fylleríisferð í einhvem banka og mættu örfáir.
Auk þess leið starfsemin fyrir sambandsleysi milli
formanna.
3. f vetur var hafin herför gegn hinum gífurlega
gróðabisness í kringum jólaballið undanfarin ár sem
viðskiptafræðinemar, laganemar o.fl. hafa stórgrætt
á. Hafa þeir greitt þeim sem selja fyrir þá miða
smánarlegar upphæðir. F.L., hjúkrunarfræðinemar,
sálfræðinemar o.fl. félög stóðu fyrir dansleik á
Hóltel Sögu á sama tíma og hinir (21. des) og olli
þessi dansleikur mikilli hysteríu meðal keppinaut-
anna sem leiddi til þess að meira var nú greitt til
þeirra sem seldu miða. Viðskiptafræðinemar fundu
einnig hjá sér þörf til að rita níð um okkur, sem
stóðum að fyrrnefndum dansleik, í fréttabréfi sfnu
sér til skammar. Bæði böllin heppnuðust vel og
greinilegt er að grundvöllur er fyrir tveimur
jólaböllum og höfum við þegar lagt á ráðin um eitt
slíkt um næstu jól í samvinnu við sömu aðila.
4. í vetur var óvenju mikið og gott samstarf milli
F.L. og annarra nemendafélaga innan læknadeildar,
sérstaklega þó við hjúkrunarfræðinema. Voru
haldnir tveir sameiginlegir fræðslufundir allra
nemendafélaga í læknadeild og var mæting stjarn-
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg
115