Læknaneminn - 01.04.1995, Page 122
fræðilega góð. í fyrra skiptið var rætt um hjartasjúkdóma
út frá sjónarmiði hinna ýmsu stétta og talaði Gestur
Þorgeirsson læknir fyrir okkar hönd. Kunnum við honuin
og öðrum þáttakendum bestu þakkir fyrir fróðleg og
skemmtileg erindi. í seinna skiptið talaði Vilhjálmur
Arnason um siðfræði lífs og dauða og þökkum við houm
einnig fyrir sitt framlag. I seinna skiptið komu
tannlæknanemar inn í dæmið og er það fagnaðarefni. í
raun er furðulegt hvað nemendur í hinum ýmsu
heilbrigðisgreinum hafa lítið samband því að þeir eiga
mörg sameiginleg hagsmunamál. Er mikill vilji hjá
hjúkrunar fræðinemun fyrir því að halda áfram þessu
samstarfi. Einnig héldum við sameiginlegan dansleik með
lyfjafræðinemum á árshátíðinni að lokinni máltíð og
skemmtiatriðum. Heppnaðist það mjög vel þrátt fyrir
efasemdir nokkurra aðila.
II. Tillögur um breytingar á
stjórnkerfi F.L.
Ritari félagsins hefur sett fram tillögur um breytingu á
stjórnkerfi F.L. í samráði við stjórnina og formenn þeirra
nefnda er tillögurnar snerta.
Tillögur þessar fela í sér breytingar á stjórnkerfi
félagsins. Breytingunum er ætlað að gera starfsemi F.L.
skilvirkari og umfram allt léttari í vöfum. Við núverandi
aðstæður er svo komið að stjórnkerfi F.L. veldur ekki því
umfangsmikla embættismannakerfi sem félagið sjálft
hefur byggt upp. (Þessu til stuðnings má benda á að nú eru
embættismenn F.L. 68 talsins sem jafngildir því að á
hverjum tíma eru rúmlega 30% læknanema embættis-
menn.)
Því er með breytingum þessum leitast við að einfalda
stjórnkerfið og gera það markvissara.
I dag er stór hluti þeirra sem sitja í fjölmennri stjórn
félagsins (9) vannýttur, t.d. eru fulltrúar yngri áranna (1.2.
og 3. ár) í rauninni aðeins tengiliðir við sín ár. Því kveða
tillögurnar á um að hver og einn stjórnarmeðlimur hafi
ákveðin fyrirfram skilgreind hlutverk, sem honum er ætlað
að inna af hendi. Með þessu móti er hægt að efla stjórnina
og gera hana betur í stakk búna til að sinna hagsmuna-,
félags- og kennslumálum læknanema.
Einnig er reynt að tengja betur saman stjórnina og
hinar ýmsu nefndir félagsins. Boðskiptaleiðum milli
stjórnar og sumra nefnda sem og milli nefndanna sjálfra
hefur verið áfátt og hefur það komið niður á starfsemi
félagsins, t.d. varðandi skipulagningu og fleira og dæmi
eru fyrir því að skipulagðir hafi verið viðburðir sem áttu
að eiga sér stað, sama dag á sama tíma. Þess vegna er
miðað að því að auka tengslin og þannig auðvelda
boðskiptin milli stjórnarinnar og hinna ýmsu nefnda á
þann hátt sem lýst er hér á eftir. Stjórnin hefur þá betri
yfirsýn og er í mun meiri tengslum við þá starfsemi sem
fram fer í nafni félagsins, og f framhaldi af því verður
skipulagning félagslífsins mun auðveldari.
Til að framkvæmanlegt sé að henda reiður á
fjárinunum félagsins þá er gert ráð fyrir því að innan
félagsins séu aðeins þrjár einingar með sjálfstætt bókhald:
Stjórn F.L., Læknaneminn og Stúdentaskiptanefnd.
Fjármál þessara eininga eru undir yfirstjórn og eftirliti
gjaldkera F.L. Æskilegt væri að Stúdentaskiptanefnd og
Læknaneminn skiluðu yfirliti yfir stöðu fjámála sinna á
ca. 3- 6 mán. fresti til að auðvelda gjalkera störf sín.
Stjórn F.L. mælir endregið með því að tillögur
þessar verði samþykktar.
III. Deildarráð og deildarfundir.
Deildarfundur er æðsta vald læknadeildar og fer þar
fram öll meiriháttar ákvarðanataka. Þar voru efst á baugi
ráðningar nýrra prófessora í fæðinga- og kvensjúk-
dómafræði, lífefnafræði og barnalæknisfræði. Bjóðum
við þá velkomna til starfa og vonumst eftir góðu samstarfi
við þá í framtíðinni. Mikill tími fór í að samþykkja reglur
um doktorsnám f læknadeild sem hafa verið mörg ár í
mótun en nú geta nemendur hafið formlegt doktorsnám í
læknadeild að því tilskyldu að læknadeild beri engan
kostnað af því. Einnig var þar rætt um breytingu á
stjórnkerfi læknadeildar.
I vetur var einnig haldið málþing á vegum lækna-
deildar þar sem á dagskrá voru kennslumál og ræddar
voru niðurstöður kennslumálaráðstefnu F.L. Þar komu
fram margar athyglisverðar hugmyndir og hástemmdar
yfirlýsingar um læknakennslu í framtíðinni.
Deildarráð fer með framkvæmdavald læknadeildar
og hefur ákvarðanavald um flest málefni deildarinnar.
Deildarráð fundar á hálfs mánaðar fresti. Formaður og
ritari F.L. sitja þessa fundi og hafa atkvæðisrétt. Attu þeir
gott samstarf við aðra deildarráðsmenn. A hverju ári eru
ótal erindi afgreidd í deildarráði og verður hér fyrst og
fremst vikið að þeim málefnum sem snúa að stúdentum
beint.
1. 30 í numerus clausus. Ákveðið var að fara fram á
það að 30 manns fengju að halda áfram námi á öðru
misseri eins og var í fyrra.
2. Takmörkun á fjölda tilrauna í numerus clausus. í
kjölfar mikilla umræðna um afdrif stúdenta sem oft reyna
við numerus calusus kom kennslustjóri með þá tillögu að
í framtíðinni fái nemendur aðeins að reyna tvisvar við
úrtökuprófin. Fulltrúar læknanema lögðu fram þá
breytingartillögu að þeir sem ná öllum prófum í annað
sinn fái að reyna í þriðja og síðasta skipti. Var þetta
samþykkt í deildarráði og hyggst deildarforseti kynna
þetta mál í Háskólaráði á næstunni í annað sinn en því var
hafnað í fyrra skiptið. Þessi ákvörðun ætti að fyrirbyggja
mannlega harmleiki sem orðið hafa þegar stúdentar reyna
116
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.