Læknaneminn - 01.04.1995, Síða 128
þeir hafa ekki þegar fengið þá og er ætlast til að allir hafi
greitt ráðningagjöldin fyrir 4. nóvember. Rétt er að benda
á að þeir sem ekki greiða ráðningagjöldin fyrir þann tíma
verða ekki dregnir út í ráðningaröð og það sama á við um
félagsgjöld í F.L. Undanfarin ár hafa ráðningagjöld verið
óbreytt.
Deilumál:
Sem fyrr komu upp ýmis deilumál og er ekki
ætlunin að fara að rekja hvert einstakt mál. Eins og áður
sagði voru nokkur þeirra tengd 48-tíma reglunni og er
mikilvægt að enginn velkist í vafa um hvernig túlka beri
þessa reglu. Ekki kom til þess að ráðningastjórar þyrftu
að beita sektum eða refsingum þetta starfsárið og er
vonandi að svo verði áfram.
Niðurlag:
Ráðningakerfið er í raun stórmerkilegt jöfn-
unarkerfi sem á að koma í veg fyrir blóðuga baráttu okkar
á milli. Mikilvægt er að við stöndum saman um að fylgja
reglum þess. Það krefst nokkurs félagsþroka og aðhalds
en mikilvægast er að heiðarleiki sé í fyrirrúmi þannig að
allir geti treyst því að farið sé nákvæmlega eftir settum
reglunum.
Að lokum vil ég þakka Steingerði Gunnarsdóttur
fyrir gott samstarf og óska þeim er taka við velfarnaðar á
komandi starfsári.
Jón Örvar Kristinsson
aðalráðningastjóri
Skýrsla íþróttanefndar 1993-1994.
íþróttanefndin hóf ötult starf sitt á kaffihúsi í
nóvembermánuði. Voru nefndarmenn kappsfullir og
skipulögðu vetrarstarfið allt á einu bretti , örvaðir af
kaffidrykkju. Afleiðingarnar urðu þessar:
íþróttamótin urðu 5 talsins og auk þess stóð íþrótta-
nefnd fyrir skíðaferð í vetrarlok.
Ahugi læknanema á þessu brölti var mismikill. Til að
mynda var fyrir jól haldið einstaklingsmót í skák þar sem
aðeins mættu 6 þáttakendur. Hrafnkell Þorsteinsson á 5.
ári stóð þar uppi sem sigurvegari eftir úrslitaskák við Ottar
Bergmann á 3. ári.
Góð þátttaka var hins vegar í sveitakeppni í skák , en 6
sveitir tóku þátt og sigraði lið 1. árs A með nokkrum
yfirburðum.
í knattspyrnumóti utanhúss kepptu 4 lið og að vanda voru
það hinir stæltu drengir á 5. ári sem fóru heim með
verðlaunaféð, þó eftir tvísýnan úrslitaleik við 2. árið.
Síðar um veturinn sýndu svo 2. árs nemendur að þeim er
ekki fisjað saman er þeir sigruðu í innanhúss knat-
tspyrnumótinu.
Körfuknattleiksmótið varð ofsafjörugt, en mér vitanlega
var þetta í fyrsta skipti sem læknastúdínur keppa innbyrðis
á íþróttamóti. Ungliðarnir á 1. ári sýndu ekki tilhlýðilega
virðingu heldur óðu yfir eldra og reyndara fólk og hreyktu
sér af sigri bæði í kvenna - og karlakeppninni.
Fáir mættu í skíðaferð í Hrafnagil, en þeir 20 sem fóru
hafa margir hug á að fara aðra ferð í vetur.
Kostnaður Félags læknanema af þessu öllu var:
Leiga á grasvelli kr. 6800,-
Gisting fyrir 20 manns í Hrafnagili kr. 8500.-
Samtals kr. 15300,-
Vil ég þakka læknanemum fyrir þáttökuna í vetur og
nefndarmönnum fyrir gott samstarf.
Fyrir hönd íþróttanefndar,
Þrándur Ulfarsson.
Skýrsla fulltrúaráðs
Megin verkefni fulltrúaráðs (og í raun það eina) á
liðnu vormisseri var að hópa læknanemum saman, og
halda í okkar árvissu vísindaferð. Að sjálfsögðu var megin
tilgangurinn með ferð þessari, sem og hinna fyrri, að
fræðast um þá aðstöðu sem læknum býðst úti á lands-
byggðinni og að stunda fræðin fjarri skarkala höfuð-
staðarins. Reyndist mest akademísk interessa fyrir því að
heimsækja höfuðstað norðurlands, Akureyri. Akveðið var
að fara fremur með áætlunarbílum en flugi, þar sem þá
gæfist meiri tími til lestrar.
Haldið var af stað eftir hádegi á föstudegi og komið
norður á besta tíma. Gist var í félagsheimili K.A. manna,
þar sem í ljós kom við eftirgrennslan að 87% læknanema
voru áhangendur þess félags. Nokkuð misjafnt var hvað
menn tóku sér fyrir hendur þetta fyrsta kvöld, en stór hluti
hópsins fór þó á dansleik í Sjallanum þar sem hljómsveitin
„Síðan Skein Sól“ skemmti. Að sjálfsögðu voru flestir
með ótóskópin og skoðuðu í eyru nágrannans.
Laugardagurinn var síðan vel nýttur. Fyrst var
Fjórðungssjúkrahúsið skoðað, og þar urðu stúdentar
gestrisni heimamanna aðnjótandi. Síðan var haldið út að
prestsetrinu forna að Laufási og kirkjan þar og torfbærinn
skoðuð. Að því loknu var nýopnað Listagil Akureyringa
kannað. Þar kom það í ljós sem margan hafði grunað, að
læknanemar væru mjög listfengir.
Kvöldið hófst svo með kokkteilboði sem bæjar-
stjórn bauð til, og síðan var haldið í Sjallann þar sem
kvöldverður var snæddur. Að honum loknum var blönduð
bolla í og við Þórsheimilið. Síðan var aftur haldið í
Sjallann og hóplæknisskoðun framkvæmd við undirleik
Rokkabillýbands Reykjavíkur.
A sunnudagsmorgni var síðan skruddunum safnað
saman og haldið í bæinn.
122
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg.