Læknaneminn - 01.04.1995, Síða 129
AÐALFUNDUR
í febrúai'byrjun tókst svo fulltrúaráð á við sitt annað
stóra verkefni, er árshátíð félagsins var haldin með pompi
og prakt. Eins og svo oft áður var hún haldin á Hótel
Sögu. Heiðursgestir voru hen'a Arni Björnsson læknir og
eiginkona hans.
Eftir að ljúffengum réttum hafði verið sporðrennt
og óvenju góðum skemmtiatriðum var lokið, var dansað
fram undir morgun við ágætan undirleik hljómsveitarinnar
Papa frá Vestmannaeyjum. Flestir munu hafa skilað sér
heim að dansleik loknum.
F.h. fulltrúaráðs, Ivar Þór Jónsson
Síðasta skýrsla fulltrúa læknanema í
BS-nefnd.
Starf BS-nefndar var með hefðbundum hætti í vetur þar
sem afgreiddar voru umsóknir BS-nema og ýmis önnur
mál afgreidd sem upp komu þar að lútandi. Auk
undinitaðra sátu í nefndinni kennararnir Gunnar Sigurðs-
son, formaður nefndarinnar, Guðmundur Þorgeirsson og
Jón Olafur Skarphéðinsson.
Skipulagning 4. árs verkefna tókst vel og eins og
alltaf stóðu nemendur sig frábærlega. Þetta var í þriðja
sinn sem 4. árs rannsóknaverkefni er skipulagt og
yfirgnæfandi hluti nemenda er þeirrar skoðunar að þetta
sé bráðnauðsynlegur þáttur í læknanáminu og furðar sig á
því að þetta hafi ekki verið tekið upp fyrr. Betur var nú
mætt á rannsóknarráðstefnuna en í fyrra.
í vetur var gerð sú breyting að BS-nefnd var lögð
niður og í hennar stað var stofnuð ný nefnd sem kallast
rannsóknarnámsnefnd að tillögu fulltrúa læknanema í BS-
nefnd. Þessi nefnd verður skipuð fjórum kennurum,
fulltrúa MS-nema og tveimur læknanemum, einum af
fjórða ári og einum BS-nema. Þessi breyting kemur til
vegna aukinna umsvifa nefndarinnar sem á að hafa
umsjón með rannsóknaverkefnum 4. árs nema, BS-námi,
MS-námi og doktorsnámi í læknadeild.
Nemendur þakka öðrunt nefndarmönnum ánægju-
legt samstarf.
Margrét Valdimarsdóttir
Þorsteinn Gunnarsson
Skýrsla Læknanemans "93-'94
Starf ritnefndar hófst fjótlega eftir aðalfund '92.
Frjór hópur sem samanstóð af Ingu S. Þráinsdóttur, Ingólfi
Einarssyni, Jóhanni R. Guðmundssyni, Kristínu Leifs-
dóttur , Halldóru Jónsdóttur auk undirritaðra hittist
reglulega til að koma hreyfingu á sálarlíf sitt í þeirri von
að hugmyndir kviknuðu um greinar sem læknanemar
hefðu gagn og gaman af. A endanum reyndust hugmynd-
irnar fleiri en hægt var að vinna úr. Höfundar, sem höfðu
nóg á sinni könnu fyrir, voru síðan ákaft hvattir til að
skrifa á þessum tíma og gekk þar harðast fram Inga sem
einnig sýndi einstakan dugnað við yfirlestur greina.
Afraksturinn má sjá í tveimur tölublöðum. Fyrra tölublað
okkar, 46. árg. 2. tbl., kom út á aðalfundi '93 og það
seinna, 47. árg. 1. tbl., í lok mars mánaðar á þessu ári.
Fjárhagsstaða blaðsins olli okkur í ritnefndinni í
fyrstu talsverðum áhyggjum, þrátt fyrir að fráfarandi
ritnefnd hafi ólíkt árunum áður, skilað hagnaði. Við
töldum það því mikilvægt að leita á náðir hliðhollra aðila
til styrktar útgáfunni. Til að gera langa sögu stutta þá
fékkst styrkur frá Heilbrigðisráðuneytinu ásamt því að
góðir samningar tókust við mörg lyfjafyrirtæki um
auglýsingar. Ennfremur var brugðið á það ráð að gera
átak í áskriftarmálum. Þannig stækkuðum við við
áskrifendahópinn um 160 manns og fengu þannig samtals
425 manns (fyrir utan Iæknanemana) bæði tölublöð okkar.
Fræðilegt gildi blaðsins ætti að vera hafið yfir öll
gróðasjónarmið en þrátt fyrir það varð töluverður hagn-
aður af útgáfunni að þessu sinni. Var hluti hagnaðarins
notaður til kaupa á nýrri tölvu og prentara. Vildum við
þannig leggja okkar af mörkum til að bæta tölvuaðstöðu
læknanema sem löngum hefur verið ábótavant.
I dag eru flestar greinar skrifaðar af sérfræðingum
en ákjósanlegt væri að fleiri læknanemar fengju hugmynd
að greinarskrifum og skrifuðu greinar undir leiðsögn
sérfræðinga.
Þegar litið er tilbaka er ljóst að mikil vinna hefur
verið lögð í gerð þessara blaða. Vel hefur verið vandað til
greinaskrifanna. Munu gæði greinanna tryggja blaðinu þá
virðingu sem það verðskuldar.
Læknaneminn er í dag mikilvægur vettvangur fyrir
yfirlitsgreinar um læknisfræðileg mál á íslensku og við
eigum að tryggja að svo verði áfram.
Með kveðju
f.h. ritstjórnar Læknanemans
Kristján Skúli Asgeirsson
Helgi Birgisson
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg
123