Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1996, Page 76

Læknaneminn - 01.10.1996, Page 76
Nýmyndun æða og krabbamein - bylting í krabbameinslyfjameðferð innan seilingar? Fjölgun og þroski æðaþelsfrumna er einnig háð efn- inu sem þær sitja á. Til að æðaþelsfrumurnar nái að dreifa sér og mynda nýja æðasprota þarf að brjóta nið- ur millifrumuefnið. Eiginleikar millifrumuefnisins skipta því auðsjáanlega miklu máli. Ef æðaþelsfrumur eru ræktaðar á plastundirlagi í nærveru bFGF þá geta þær fjölgað sér, en þær mynda ekki háræðapípur. Það gerist hins vegar ef þær eru ræktaðar á kollageni eða millifrumuefni. Heparansúlfat virðist vera sérlega mik- ilvægt. Það eykur sækni bFGF í viðtaka sinn og vernd- ar aFGF og bFGF gegn niðurbroti (4). FGF virðist vera í millifrumuefninu á óvirku formi og aukin virkni prot- eolytískra ensíma eykur styrk virks FGF (8). LYFJABÚÐ HÁSRÓLA ÍSLANDS ■■■■■■ mm STOFNAÐ 1760 SÍMI • 551 1760 FAX* 551 1744 AUSTURSTRÆTI 16, 101 REYKJAVÍK NÝMYNDUN ÆÐA 0G KRABBAMEIN Nýmyndun æða er nauðsynlegur þáttur í vexti æxla. Æxlin geta einungis orðið 1-2 mm. ef nýjar æðar vaxa ekki inn og þá hættir æxlið að stækka. Súrefni flæðir einungis 150-200 m í vef og því verður fljótt súrefnis- skortur í vaxandi æxli (3). Vöxtur æða inn í æxlið er því nauðsynlegur til að æxlisfrumurnar fái næringu og losni við úrgangsefni. Einnig fá þá æxlisfrumurnar ýmsa vaxtarþætti sem æðaþelsfrumur og frumur úr blóði framleiða eins og bFGF, PDGF (platelet derived growth factor), G-CSF (granulocyte-colony stimulat- ing factor),IL-6 (interleukin-6) o.fl. (9). Auk þess er innvöxtur æða mikilvægur til að meinvörp nái að sá sér til fjarlægra líffæra. Til að krabbameinsfrumur geti dreift sér þurfa þær náttúrulega að komast inn í æðar og inn í blóðrásina. Nýiega myndaðar háræðar eru lekar og hjálpar það enn frekar æxlisfrumunum við að kom- ast inn í blóðrásina (4). I þessu sambandi er nú mikið rætt um tengsl á þéttni smáæða í æxli við batahorfur og eru ekki allir á eitt sáttir um þau tengsl. Margt virðist benda til þess að þéttni smáæða sé sjálfstæður áhættu- þáttur við mat á batahorfum, en þó eru margar rann- sóknir sem ekki geta sýnt fram á það (10,11). Toi o.fl. ganga svo langt að halda því fram að æðaþéttni sé jafn- vel álíka mikilvæg og eitlameinvörp m.t.t. batahorfa í brjóstakrabbameini (8). Weidner o.fl. skoðuðu smá- æðaþéttni í brjóstakrabbameini árið 1991 og báru sam- an við meinvörp. Fyrir aukningu smáæða um 10 í hverjum smásjárfleti við 200 falda stækkun jókst hætt- an á meinvörpum 1,59 falt og öll æxli með 100 æðar á hvern 200x flöt höfðu dreift sér (12). I annarri rann- sókn voru 328 brjóstakrabbameinssjúklingar skoðaðir sem höfðu farið í brjóstatökuaðgerð (mastectomiu) og algjöra hreinsun á holhandareitlum. Þar kom í ljós að smáæðaþéttni hafði jafngott spágildi um batahorfur og það hvort æxlisfrumur fundust í eitlum. Jákvæð litun fyrir VEGF í æxlisvef sýndi sterk tengsl við smáæða- þéttni, en virtist ekki vera sjálfstæður áhættuþáttur. Fleiri svipaðar rannsóknir hafa verið gerðar og sýna margar þeirra fram á það sama. Smáæðaþéttni á því e.t.v. eftir að koma inn sem rútínuvefjarannsókn og væri hún þá sérstaklega mikilvæg til að meta batahorf- ur kvenna með neikvæða eitla (8). Núna virðast flestir vera á eitt sáttir um mikilvægi æðanýmyndunar í framgangi krabbameins. Rannsókn- ir á þessu sviði hófust fyrir u.þ.b. 30 árum og efuðust þá margir. Frumkvöðullinn að þessum rannsóknum LÆKNANEMINN gg 2. tbl. 1996, 49. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.